Fréttablaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 38
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn. Hvern faðmaðir þú síð- ast og kysstir? Ég er allt- af að knúsa, kyssa og faðma börnin mín. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Ég kom sjálfri mér á óvart í síðustu viku þegar ég tók hnébeygjur. Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi? Ég get verið hrein- skilin á mislukkaðan hátt en sem betur fer hafa flestir sem umgangast mig að ráði húmor og skilning á því. Ég hef þó eitthvað lagast með árunum. Ertu hörundsár? Maðurinn minn segir að ég sé alls ekki hörundsár og mér finnst gott að heyra það því mér leiðist sjálfri að umgangast hörund- sárt og viðkvæmt fólk, nenni ekki að tipla á tánum. Dansarðu þegar enginn sér til? Nei, en ég og Nói sonur minn tökum oft góðar syrpur saman. Hvenær gerðirðu þig síð- ast að fífli og hvernig? Ég er svo viðutan og nokkuð góð í að gera mig að fífli. Í síðustu viku fór ég dagavillt og sendi yngri drenginn minn í vit- laust afmæli í leikjagarðinum í Ásbrú. Einnig þarf fólk sem er í kringum mig í ræktinni að passa drykkjarbrúsana sína vel því ég á það til að drekka úr annarra manna brúsum. Hringirðu stundum í vælubílinn? Já, það er bara gott fyrir sálina að bjalla stundum á vælubílinn. Tekurðu strætó? Það er langt síðan ég tók strætó á Íslandi. Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Get ekki sett tíma á það en ég tala mikið við vini mína bæði hér heima og erlendis á Face- book og á það til að detta í að lesa hinar og þessar grein- ar sem fólk er að pósta, þetta er hin besta fréttaveita. En það er mjög auðvelt að eyða of miklum tíma þarna. Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim? Nei, ég fer ekki hjá mér ef ég hitti frægt fólk enda finnst mér það ekkert merki- legra en aðrir. Hef samt oft heilsað þekktu fólki sem ég tel mig þekkja en fatta svo eftir á að ég þekki það ekkert. Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Já, hversu mikið ég tek í hnébeygju. Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Ekki hanga mikið á Facebook. Lína Rut Wilberg ALDUR: Fædd 1966 STARF: Listamaður ...SPJÖ RU N U M Ú R Hún býr í Danmörku og heldur úti lífsstílsblogginu hilma- onnu.blogspot.dk. Hilma bloggar um ýmislegt sem vert er að fylgjast nánar með. Hvort sem það er hönnun, matur, fatnaður, börn, ný trend eða litir, þá virðist sem aðdáenda- hópur hennar stækki ört. Hilma Berdino er til að mynda með tæpa milljón fylgjendur á Pinterest. BLOGGARINN MEÐ TÆPLEGA MILLJÓN FYLGJENDUR Á PINTEREST Hilma Berdino Önnudóttir hilmaonnu.blogspot.dk http://www.pinterest.com/ search/pins/?q=hilma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.