Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 34
FRÉTTABLAÐIÐ Valentínusardagurinn. Dagur í lífi Írisar Bjarkar. Spjörunum úr og bloggarinn.
8 • LÍFIÐ 14. FEBRÚAR 2014
ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON
rithöfundur
„Hvorki ég né frúin tökum svona dag hátíðlegan,
og því síður bóndadaginn því allir dagar eru ein-
stakir og dásamlegir. Þar fyrir utan er frúin á skíð-
um á Ítalíu og verður þar á Valentínusardaginn en
ég myndi fyrst og fremst heiðra minningu Valdís-
ar Gunnarsdóttur á þessum degi því hún flutti hann
til Íslands.“
Valentínusardagurinn er helgaður ástinni og á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld. Í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum hefur dagurinn verið haldinn há-
tíðlegur á ýmsan máta en hefðbundið þykir að dekra við ástina sína, gefa gjafi r, blóm og falleg kort. Tilstandið á Íslandi hefur færst í aukana en ekki eru allir
sammála um að dagurinn eigi heima á Íslandi.
VALENTÍNUSARDAGURINN HVAÐ GERIR ÞÚ?
RÓSA GUÐBJARTSDÓTTIR
ritstjóri Bókafélagsins
„Ég verð að viðurkenna að ég hef lítið verið fyrir
það að láta „segja mér fyrir verkum“ í þessum
efnum með því að láta útlenska siði „ákveða“
hvenær skuli dekrað við makann eða annað slíkt.
Hins vegar vill nú þannig til að ég hafði einmitt
hugsað mér að gera eitthvað skemmtilegt til að
gleðja hann á þessum degi í þetta sinn. Hef ég
hugsað talsvert til Valdísar Gunnarsdóttur heitinn-
ar og fyrrverandi samstarfskonu á Bylgjunni nú
í aðdragandanum og hvernig hún kynnti þenn-
an dag fyrir Íslendingum. Hún var á öldum ljós-
vakans ötul við að hvetja landsmenn til elsku og
ástar og hafi Valentínusardagurinn áhrif á okkur
í þá átt er það vitaskuld af hinu góða.“
STEINUNN VALA SIGFÚSDÓTTIR
eigandi Hring eftir hring
„Við Stebbi erum ekki vön að halda upp á Valent-
ínusardaginn á rómantískan hátt, þó við höfum reynd-
ar nokkuð sterka tengingu við dagsetningu hans því
þann 14. febrúar árið 2004 urðum við par. Við höld-
um hins vegar upp á afmælin okkar og förum þá út
að borða og gerum vel við okkur tvö ein eða í félags-
skap góðra vina okkar. Í ár erum við fjölskyldan að
fara í ferðalag norður en strákarnir okkar þrír, Snorri
8 ára, Trausti 7 ára og Nikulás Flosi 4 ára, verða í
vetrarfríi í næstu viku. Við ætlum í skíðafrí og heim-
sækja Tindastól og Hlíðarfjall en gista í Skagafirði.
Kannski ég helli upp á gott og sterkt kaffi og grípi
með mér súkkulaði fyrir bílferðina okkar, en langir bíl-
túrar geta breyst í unaðsstundir hjá okkur Stebba þar
sem gefst tími til að spjalla saman í friði og ró.“
JÓGVAN HANSEN
söngvari
„Ég er að sinna börnunum mínum tveimur sem eru
rúmlega 2 ára og tæpra 4 mánaða og mér finnst
það alveg nógu rómantískt. Ég er kannski ekki sá
sem gerir mest úr þessum degi því hugmyndin er
svo erlend þrátt fyrir að hún sé falleg. Konan á
afmæli bráðlega og svo er konudagurinn líka og
þá er um að gera að gera eitthvað sniðugt fyrir
hana.“
Fjóla Björk Jensdóttir er með há-
skólagráðu í ayurvedískum fræð-
um sem tengjast jógafræðunum og
byggjast á læknisspeki og teng-
ingu okkar við náttúruna
og veröldina í kringum
okkur. Hún rýndi í
staðsetningu tungls-
ins sem er fullt í
dag. „Fullt tungl á
Valentínusardegi
ýtir undir magn-
aðar tilfinning-
ar því tunglið er
núna baðað í sólar-
orku. Sólin er faðir-
inn og tunglið er móðir-
in. Þetta eru kraftar jing
og jang sem sameinast í þessu fulla
tungli svo að karlorkan umvefur
kvenorkuna. Þessi áhrif verða sér-
staklega kröftug fyrir ljón og vatns-
bera, en án efa fyrir alla. Fullt tungl
táknar vissa hugarljómun og skap-
ar uppsveiflu í hugarorku. Margar
konur finna hvernig tunglhringur-
inn hefur áhrif á tíðahring-
inn og almenna líðan
en samkvæmt forn-
um mýtum er tungl-
hringurinn bein-
tengdur konunni
innra með okkur,
sérstaklega horm-
ónakerfinu sem
öllu stýrir í líkam-
anum. Í sjamanisma
Indlands og fornum
búddisma áttu konur að
tengjast hringferli tunglsins
til að viðhalda heilbrigðu hormóna-
kerfi og æxlunarfærum. Enn í dag
iðka heilarar þessar aðferðir á Ind-
landi með góðum árangri.“
KARLORKAN UMVEFUR
KVENORKUNA Í FULLU TUNGLI
Á VALENTÍNUSARDAGINN
Fjóla Björk Jensdóttir er ayurvedískur læknir og stjörnu-
spekingur og rýnir í áhrif tunglsins á degi ástarinnar.
Hrútur Hreinsunin verður á
hugarorku og rómantískum
vettvangi.
Naut Fyrir rísandi naut
verður hreinsunin á heimilinu
og tilfinningasviðinu.
Tvíburi Hreinsunin verður
á heilsu- og samskiptasviði.
Krabbinn Fyrir krabbann
verður hreinsunin í málefn-
um fjölskyldu og innkomu.
Ljón Fyrir rísandi ljón
verður hreinsunin algjör og
að öllu leyti, á líkama og sál, og
gæti markað nýtt upphaf.
Meyja Hreinsunin verður á
sviði endurhæfingar og
svefns.
Merkin og áhrifin
Vog Hreinsunin verður á
sviði vináttu, hópavinnu og
markmiða (æðstu drauma).
Sporðdreki Fyrir
sporðdrekann verður
hreinsunin á sviði atvinnumála og
orðstýrs.
Bogmaður Hreinsunin
verður á sviði menntunar,
trúar (siðferðis) og stuðnings.
Steingeit Hreinsunin verður
á sviði aðskilnaðar og ótta.
Vatnsberi Fyrir rísandi
vatnsbera verður hreinsunin á
sviði sambanda og þinna nánustu.
Fiskur Hreinsunin verður
á sviði heilsu, lífsstíls og
rútínu.
AUSTURSTRÆTI 8 - 10
SÍMI 534 0005
Finndu okkur á Facebook
Minkapels
38.800 kr
Úlfapels
38.800 kr
OPIÐ ALLA DAGA