Fréttablaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 22
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 22
Staðan á íslenskum
vinnumarkaði kemur
ekki á óvart. Kaupmátt-
arskerðingin tekur í. Þol-
inmæði margra er þrot-
in. Þeir sem kusu gegn
nýgerðum kjarasamningi
hafa annaðhvort ekki
haft trú á því tækifæri
sem hann átti að skapa
eða höfðu ekki vilja til
að taka sameiginlega í
árarnar inn í stöðugleika
og framfarir, eins og boðað var.
Kannski var það glappaskot að
sleppa þessu tækifæri. Kannski
var vitlaust gefið.
Íslenska krónan, sem
leikið hefur dapurlegt
hlutverk í kjaraskerð-
ingum launafólks í heila
öld, er enn í öndvegi.
Engin áform eru um að
farga því tæki. Engin
áform eru um að þjóðin
eigi kost á varanlegum
stöðugleika og nýjum
tækifærum. Kjaraum-
hverfið er ekki trúverð-
ugt, endurreisn efnahagslífsins
stendur á sér, étið sjálfir ykkar
kauphækkanir, segir fólkið.
Stéttarfélög sem felldu samn-
ingana standa frammi fyrir
því að þurfa að semja ein fyrir
sína félagsmenn. Félög á mestu
láglaunasvæðum landsins hafa
ætíð notið góðs af samfloti við
stærstu félögin innan ASÍ. Nú
reynir á þau sjálf að spjara
sig. Hætt er við að heldur miði
afturá bak en áfram í þeim slag,
því miður.
Þolinmæði þarf til að ná sátt-
um um kjaraumhverfið. Annars
eru líkur á því að við hjökkum í
sömu láglaunasporunum. Okkar
menntaðasta fólk flyst brott,
yfirgefur kotsamfélagið handa
okkur hinum til að þrátta í.
Vandinn sem við er að etja
á sér aðdraganda í hruninu og
í lokuðu hagkerfi krónunnar.
Gengi hennar mun ekki standa
af sér 10-15% launahækkun
fyrir alla. Hefðbundin víxlverk-
un gengis, launa og verðlags fer
af stað með þekktum afleiðing-
um verðbólgu og kjaraskerðinga.
Leið hóflegra launahækkana
sem byggir á aukinni framleiðni,
líkt og annars staðar á Norður-
löndunum, virðist vera eina færa
leiðin til að bæta lífskjör smátt
og smátt, ár eftir ár. Þannig
muni kaupmáttur launa vaxa
umtalsvert. Sú leið er einung-
is fær, ef um hana verður sátt.
Slíka sátt þurfa aðilar vinnu-
markaðarins að sammælast um,
einnig BSRB og BHM.
Hringavitleysa
Í kjarasamningum eftir hrun
tókst að verja kaupmátt hinna
lægst launuðu. Um það var sátt
þótt svigrúm væri lítið. Bent er
á að kjarasamningar ASÍ-félaga
séu ekki boðlegir. Sérhæfður
fiskvinnslumaður hafi 220 þús.
krónur í mánaðarlaun eftir
taxta. Heildarlaun starfsfólks í
fiskvinnslu eru hins vegar um
360 þús. krónur á mánuði. Með-
allaun samkvæmt kjarakönnun
Eflingar og flóafélaganna eru
357 þús. krónur á mánuði, þar af
voru 31% með meira en 400 þús.
krónur, en ekki 210 til 250 þús.
eins og strípaður taxtinn segir
til um, þó víst finnist fólk á svo
lágum launum. Úr því verður
að bæta. Heildarlaun byggja
m.a. á yfirvinnu, með 80% álagi
á dagvinnukaup, vaktaálögum
og öðrum kaupaukum. Íslend-
ingar skila um fjórðungi lengri
vinnutíma en þekkist á Norður-
löndum. Þar er yfirvinnu- og
vakta álög í engu samræmi við
það sem hér gerist og yfirvinna
fátíð.
Standi vilji til þess að koma til
móts við láglaunafólk á stríp-
uðum launum, mætti hækka
grunntaxta, en lækka yfirvinnu-
og önnur álög í staðinn, þannig
að t.d. 10-15% hækkun grunn-
taxta leiði einungis til um 3%
hækkunar heildarlauna yfir til-
teknu lágmarki, svo dæmi sé
tekið, þannig að kjarabætur í
heild raski ekki stöðugleika.
Slík nálgun yrði áfangi að því
marki að dagvinnulaun dygðu
til framfærslu og settu aukna
framleiðnikröfu á atvinnurek-
endur. Í Finnlandi var svigrúm
til launahækkana um 3,5% fyrir
nokkrum árum. Finnska verka-
lýðshreyfingin var sammála um
að tilteknir hópar hefðu dreg-
ist aftur úr. Þessir hópar fengju
þess vegna meira en aðrir á
kostnað heildarinnar, enda rask-
aði það ekki heildarsvigrúmi til
launahækkana fyrir alla.
Félagar BHM og kennarar
hafa dregist aftur úr öðrum.
Þeir hópar eiga samleið með
láglaunahópunum innan ASÍ.
Þeir þurfa meiri hækkanir en
aðrir. Það þarf að gerast á kostn-
að heildarinnar þannig að það
raski ekki grundvallarmarkmiði
um kaupmáttaraukningu allra,
innan ramma þess svigrúms sem
er. Gangi það ekki eftir heldur
hringavitleysan áfram á kostnað
allra. Þá er fjandinn laus.
Fjandinn laus?
KJARAMÁL
Skúli Thoroddsen
félagi í BHM
➜ Félög á mestu láglauna-
svæðum landsins hafa ætíð
notið góðs af samfl oti við
stærstu félögin innan ASÍ.
Nú reynir á þau sjálf að
spjara sig. Hætt er við að
heldur miði afturábak en
áfram í þeim slag, því miður.
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2