Fréttablaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 58
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 42
47
Sævar Birgisson keppir í dag í 15
km skíðagöngu og er einn af 92
keppendum. Sævar
ræsir númer 85.
Bestum árangri
Íslendinga í þessari
grein náði Haukur
Sigurðsson á ÓL
1980 í Lake
Placid þegar
hann endaði
í 47. sæti.
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR SOCHI 2014 STJARNA DAGSINS MARTIN FOURCADE SKÍÐASKOTFIMIMAÐUR
Frakkar hafa þurft að bíða í 46 ár
eftir margföldum Ólympíumeistara
en biðin var á enda í gær þegar
Martin Fourcade tryggði sér gull-
verðlaun í 20 km skíðagöngu á
Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í
Rússlandi. Fourcade, sem er 25 ára
gamall fimmfaldur heimsmeistari í
skíðaskotfimi, varð þar með fyrstur
til að vinna tvö einstaklingsgull á
leikunum og jafnframt fyrsti Frakk-
inn til að vinna tvö Ólympíugull á
sömu Vetrarólympíuleikum síðan að
alpagreinamaðurinn Jean-Claude
Killy vann þrjú gull á leikunum í
Grenoble árið 1968.
Martin var að elta eldri bróður sinn
Simon Fourcade þegar hann byrjaði
að æfa skíðaskotfimi árið 2002 en
Simon, sem er fjórum árum eldri,
endaði í 13. sæti í keppninni í gær.
Martin Fourcade hefur bætt sig í
öllum greinum frá því í Vancouver
fyrir fjórum árum þrátt fyrir að 6.
sætið í fyrstu grein hafi valdið von-
brigðum. Hann vann glæsilegan sigur
í 12,5 km eltigöngu sem fór fram á
mánudaginn og nú er bara eftir 15
km gangan þar sem hann vann silfur
á síðustu leikum. Þrennan er því í
sjónmáli hjá þessum frábæra franska
skíðaskotfimimanni. - óój
DAGSKRÁ ÞRIÐJUDAGUR
06.55 ALPATVÍK. KARLA: BRUN
08.00 ÍSHOKKÍ KARLA: TÉK-LET
09.55 15KM SKÍÐAGANGA
KARLA (S2 SPORT 3)
10.00 KRULLA KVENNA (S5)
11.25 ALPATVÍK. KARLA: SVIG
12.30 ÍSHOKKÍ KARLA: SVÍ-SVI
13.55: 15 KM SKÍÐASKOTFIMI
KVENNA (SPORT 3)
15.00 LISTHLAUP KARLA (S4)
16.50 MAGASLEÐABRUN
KVENNA (S3)
17.00 ÍSHOKKÍ KA: NOR-FIN
17.30 SKÍÐAFIMI KVENNA (S5)
22.00 SAMANTEKT FRÁ DEGI 7
GÓÐUR DAGUR FYRIR...
LANGBEST Justyna Kowalczyk frá
Póllandi vann gull í 10 km skíðagöngu
kvenna en hún var 18 sekúndum á
undan næsta keppenda. Þetta er annað
Ólympíugull Kowalczyk en hún vann 30
km göngu með hefðbundinni aðferð á
ÓL í Vancouver fyrir fjórum árum.
ÞREFALT HJÁ BANDARÍKJUNUM Gus
Kenworthy (silfur), Joss Christensen
(gull) og Nicholas Goepper (brons) voru
allir á palli í brettafimi á skíðum en
keppt var í greininni í fyrsta sinn.
HVOR ER ÁNÆGÐARI? Kínverjinn Li
Jianrou vann gull í 500 metra skautaati
kvenna en hin 23 ára gamla Arianna
Fontana frá Ítalíu tók silfrið og þar með
verðlaun á þriðju leikunum í röð.
M
YN
D
/A
P
M
YN
D
/G
ET
TY
M
YN
D
/A
FP
M
YN
D
/G
ETTY
SPORT
HANDBOLTI „Það skemmir svo
sannarlega ekki fyrir að vera
Íslendingur. Við erum vinsælir í
dag,“ segir Aðalsteinn Reynir Eyj-
ólfsson, þjálfari þýska úrvalsdeild-
arliðsins Eisenach, en hann er einn
fjögurra íslenskra þjálfara í sterk-
ustu handboltadeild heims. Hinir
eru Alfreð Gíslason, Guðmundur
Þórður Guðmundsson og Dagur
Sigurðsson.
„Það var Alfreð Gíslason sem
opnaði þessar dyr upp á gátt fyrir
íslenskum þjálfurum. Ef hann
hefði ekki náð þessum árangri frá
aldamótum þá væru klárlega ekki
fjórir íslenskir þjálfarar í þessari
deild í dag. Hann er maðurinn sem
opnaði fyrir okkur hinum.“
Hraður uppgangur
Ferill Aðalsteins er mjög áhuga-
verður en hann skapaði sér fyrst
nafn sem þjálfari kvennaliða og
þeir voru líklega ekki margir sem
trúðu því að hann myndi þjálfa í
bestu deild heims er hann tók við
neðrideildarliði Kassel fyrir sex
árum. Þangað kom hann eftir að
hafa verið þjálfari kvennaliðs
Fylkis.
„Það væri frekja að pirra sig á
því hvar ég er staddur í dag. Ég
var að þjálfa kvennalið Fylkis
árið 2008. Þetta hefur verið hrað-
ur uppgangur en það er alltaf vont
að lenda á vegg eins og í vetur. Ég
hef verið vanari því að berjast um
titla á mínum ferli. Þetta er því ný
reynsla fyrir mig. Þetta er mjög
lærdómsríkt og ég tek því með
auðmýkt og reyni að bæta mig. Ég
er alltaf að læra. Þetta hefur verið
mikil vinna hjá mér og eitthvað
sem ég ætlaði mér alltaf. Það er
gaman að þessi draumur hjá mér
hafi ræst.“
Það hefur gengið á ýmsu hjá liði
Aðalsteins í vetur. Því var spáð
neðsta sæti deildarinnar af öllum
miðlum fyrir veturinn enda með
lítinn hóp og ekkert lið í deildinni
hefur úr eins litlum peningum að
moða og Eisenach. Aðalsteinn tók
við liðinu í fallsæti í B-deildinni og
hefur skilað því í úrvalsdeild þrátt
fyrir að hafa úr litlu að moða.
„Fyrstu umferðir mótsins
vorum við fyrir ofan fallsæti þó
að við ættum erfiðari leiki fyrir
áramót en eftir. Við erum í falls-
æti núna en það er mikið eftir og
við eigum enn möguleika á því að
bjarga okkur,“ segir þjálfarinn en
lið hans tapaði fyrir meisturum
Kiel á miðvikudag með níu marka
mun. Liðið hefur þó komið á óvart
og tókst meðal annars að skella liði
Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin.
„Við eigum minnst af peningum
í deildinni og erum að gera mikið
úr litlu. Við getum ekki keppt fjár-
hagslega við önnur lið í deildinni.
Miðað við allt sem hefur gengið
á er vel gert að vera komnir með
ellefu punkta. Það er eitthvað sem
enginn átti von á. Það hafa þrír
brotnað hjá okkur í vetur. Aðal-
varnarmennirnir báðir meiddust
í fimm mánuði, örvhenta skyttan
hefur spilað þrjá leiki í vetur. Svo
hefur Hannes Jón verið mikið frá
og aðeins náð 5-6 leikjum á full-
um krafti. Þetta er of mikið fyrir
okkur,“ segir Aðalsteinn en hann
hefur þó ekki gefist upp enda
leikmenn að skríða til baka úr
meiðslum um þessar mundir.
Þar á meðal lykilleikmaður liðs-
ins, Hannes Jón Jónsson, en hann
hefur verið að glíma við krabba-
mein og nú síðast lífshættulega
sýkingu í öxl.
„Hann þurfti að fara í tvöfalda
aðgerð til að bjarga axlarliðnum.
Hann er á fullu að fá sig góðan og
stefnir á að koma til baka í mars.
Ef einhverjum tekst það þá er það
Hannes.“
Verður áfram hjá Eisenach
Aðalsteinn er að klára sitt fjórða
ár með Eisenach og allt bendir
til þess að hann verði þar næsta
vetur, sama hvaða deild liðið verð-
ur í.
„Ég er einn langlífasti þjálfar-
inn í sögu félagsins. Samningur
minn rennur út í sumar og það er
nánast klárt að ég framlengi um
eitt ár í viðbót með möguleika á
öðru ári. Ég var með önnur járn
í eldinum sem ekki gengu upp en
ég er ánægður með að það sé vilji
hjá þeim að semja við mig í þriðja
skiptið. Það er ákveðinn gæða-
stimpill í Þýskalandi.“
henry@frettabladid.is
Íslenskir þjálfarar vinsælir
Fjórir íslenskir þjálfarar stýra liðum í bestu handboltadeild heims í Þýskalandi. Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson
þakkar Alfreð Gíslasyni fyrir að hafa opnað dyrnar í Þýskalandi fyrir íslenskum þjálfurum. Aðalsteinn hefur
náð afar áhugaverðum árangri með lið Eisenach eft ir að hafa lengstum verið þjálfari kvennaliða á Íslandi.
MAÐUR Á UPPLEIÐ Árangur Aðalsteins í Þýskalandi hefur vakið athygli víða enda
hefur uppgangur hans í þjálfaraheiminum verið mjög hraður. MYND/AÐSEND
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI