Fréttablaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 6
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu oft stöðvaði Tryggingastofn-
un greiðslur til fólks í fyrra?
2. Fyrir hvað fékk íslenska fyrirtækið
Cooori fyrstu verðlaun í keppninni
Japan Night?
3. Hvað heitir félag kvenna í tónlist?
SVÖR:
VEISTU SVARIÐ?
1. 277 sinnum.
2. Tungumálaforrit með gervigreind.
3. KÍTON..
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð
1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna.
Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er
að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða
munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú
ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf,
sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
HEILBRIGÐISMÁL Um 83 prósent
notenda eru mjög eða frekar
ánægð með þjónustu Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins og liðlega
75 prósent bera mikið eða frekar
mikið traust til hennar.
Þá telja tæplega 89 prósent að
mjög eða frekar vel hafi verið
leyst úr erindi þeirra þegar þau
komu síðast á heilsugæslustöðina
sína.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í þjónustukönnun sem
rannsóknafyrirtækið Maskína
gerði fyrir Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins í lok síðasta árs.
„Ég tel að Heilsugæsla höfuð-
borgarsvæðisins geti unað nokk-
uð vel við þessar niðurstöður. Þær
sýna að þrátt fyrir erfitt árferði
og mikið aðhald í rekstri hefur
okkur tekist að halda uppi þjón-
ustu sem notendur eru almennt
sáttir við,“ segir Svanhvít Jakobs-
dóttir, forstjóri Heilsugæslu
höfuð borgarsvæðisins.
„Þetta má meðal annars þakka
frábæru starfsfólki sem hefur
lagt mikið á sig og verið tilbúið
að laga sig að breyttum aðstæð-
um til að halda uppi sem bestri
þjónustu.“
Hún bendir á að framlög til
Heilsugæslunnar voru lækkuð
um tæpar 400 milljónir króna á
árunum 2009 til 2012, og lækka
að auki um 100 milljónir króna í
ár. Ekki síst í ljósi þessa sé niður-
staða könnunarinnar ánægjuleg
og viðurkenning á því góða starfi
sem fer fram innan Heilsugæsl-
unnar. - fb
Þjónustukönnun leiðir í ljós að 83 prósent notenda eru mjög eða frekar ánægð með Heilsugæsluna:
Sjúklingar ánægðir þrátt fyrir niðurskurð
STJÓRNSÝSLA Fiskistofa hefur ekki
framfylgt opinberu eftirliti með
merkingum norskra eldisseiða í
sjókvíum. Strangar reglur eru um
eftirlit. Landssamband veiðifélaga
(LS) krefur Fiskistofu um svör og
vill rannsókn á því hvort reglur um
laxeldi séu brotnar.
Óðinn Sigþórsson, formaður LS,
sendi fiskistofustjóra bréf á mánu-
dag til að fá upplýsingar um hvern-
ig eftirliti með laxeldi í sjó er hátt-
að. Tilefni bréfsins var óskýr svör
um eftirlit með
laxeldi í sjókvíum
frá starfsmönn-
um Fiskistofu á
stjórnarfundi LS í
nóvember, eins og
segir í bréfinu.
Eyþór Björns-
son fiskistofu-
stjóri segir það
rétt sem kemur
fram í bréfi LS
að eftirliti sé
ekki sinnt sam-
kvæmt ákvæðum
reglugerðar innar
hvað þetta tiltekna
verkefni varðar.
„Þetta verkefni
hefur ekki komist
á koppinn ennþá
og það er rétt sem segir í bréfinu að
við höfum ekki verið að framfylgja
þessu. Ég gengst við því. Þetta er
klárlega eitthvað sem við þyrftum
að gera betur og við erum að bregð-
ast við þessu,“ segir Eyþór og bætir
við að fljótlega verði óskað eftir ráð-
gjöf Veiðimálastofnunar um hvern-
ig það verði best gert.
Óðinn segir að gert hafi verið
samkomulag við stjórnvöld um að
falla frá því að seiði væru örmerkt
með því skilyrði að seiðin væru auð-
kennd og með því væri hægt að lesa
af erfðamörkum ef eldislax veiddist
á stöng í veiðiám.
„Þetta er stórmál fyrir okkur af
því að eldisfiskur á Íslandi er allur
af norskum uppruna,“ segir Óðinn
og undirstrikar þá hættu sem
íslenska stofninum er búin af erfða-
blöndun við norskan lax.
Eyþór segir að Fiskistofa hafi
fyrst í apríl á síðasta ári sett á fót
sérstaka fiskeldisdeild, en fiskeld-
ið hafði til þess tíma verið hálfgert
olnbogabarn og til skiptis verið á
ábyrgð Matvælastofnunar og Fiski-
stofu. Í kjölfar reglugerðarsetning-
ar árið 2012, sem gerir miklar kröf-
ur um eftirlit, var hins vegar sett
á fót fiskeldisdeild innan Fiskistofu
og til starfa ráðnir sérfróðir menn
um fiskeldi í fyrsta skipti.
Frá áramótum hefur aðeins einn
maður starfað í fiskeldisdeildinni,
en þeir hafa verið tveir. Starfsmað-
urinn sér um alla stjórnsýslu og eft-
irlit með fiskeldi. Eyþór segir hins
vegar að aukið fjármagn þurfi til að
bæta eftirlitið.
svavar@frettabladid.is
Eftirliti með laxeldi
í sjó ekki framfylgt
Fiskistofa hefur ekki framfylgt eftirliti með merkingum norskra eldisseiða í sjóeldi
á Íslandi. Landssamband veiðifélaga krefst svara og lýsir yfir þungum áhyggjum.
■ Stjórn Landssambands veiðifélaga bókaði eftir ársfund í nóvember
2013: „Ekki hefur verið sannreynt að ákveðið hlutfall eldisseiða sé
uggaklippt eins og áskilið er í reglugerð. Enn sem komið er virðist eftir-
litið fremur laust í reipunum og telur stjórnin það óviðunandi.“
■ Reglugerð nr. 401/2012 um merkingar útsettra eldisseiða í sjó:
29. grein: Fiskistofa skal gera kröfur um auðkenningu laxfiska þannig að
10% af útsettum seiðum í sjókvíar verði uggaklippt. Fiskistofa getur
krafist þess að hærra hlutfall af útsettum seiðum sé uggaklippt ef sér-
stakar ástæður eru fyrir hendi. Veiðimálastofnun skal veita Fiskistofu
ráðgjöf um framkvæmd 1. málsl. þessarar greinar.
Tíunda hvert seiði skal uggaklippt
HEILSUGÆSLA 83 prósent notenda
eru mjög eða frekar ánægð með Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ELDISLAX Í Noregi er verið að herða reglur um sjókvíaeldi á laxi, þrátt fyrir að lax-
inn sé af þeirra eigin stofni. MYND/SIGURJÓN
HEILBRIGÐISMÁL Tómas Gíslason,
framkvæmdastjóri Neyðarlínunn-
ar, segir ekki við Neyðarlínuna,
Mýflug eða Landhelgisgæsluna að
sakast þótt veikur maður í Öræfa-
sveit hafi ekki verið fluttur með
flugi til Reykjavíkur heldur með
sjúkrabíl.
Silja Dögg Gunnarsdóttir alþing-
ismaður sagði í Fréttablaðinu í gær
frá óánægju konu í Öræfasveit sem
vildi fá sjúkraflugvél fyrir mann
sinn en hefði verið tjáð að vélin
væri ekki tiltæk. Þá hefði henni
verið sagt að ekki borgaði sig að fá
þyrlu og hún látin aka með sárkval-
inn manninn til móts við sjúkrabíl.
Tómas Gíslason sendi af þessu til-
efni athugasemdir til Silju. Tómas
segir að læknir mannsins hafi
hringt í Neyðarlínuna í hádeginu 8.
janúar og verið „pollrólegur að vega
og meta fljótlegustu og einföldustu
leiðina til að koma manni úr Öræfa-
sveit í aðgerð í Reykjavík“ en ekki
viljað kalla til þyrlu því málið væri
ekki svo „akút“ að þess þyrfti.
„Mýflug væri alveg í myndinni
en þar sem þeirra vél getur ekki
lent í Freysnesi eða á Kirkjubæjar-
klaustri, þá væri um það að ræða
að flytja sjúkling fyrst á Höfn og
fá sjúkravél þangað. Um hádegið
var Mýflug að lenda á Vopnafirði
að taka sjúkling, sem var á leið á
Akureyri, og hefði því getað verið
á Höfn um tveimur tímum síðar,“
lýsir Tómas stöðunni þennan dag.
„Niðurstaðan er því að fagmenn
mátu málið og komust að niður-
stöðu, sem var sú að senda sjúk-
linginn landleiðina, en þó ekki með
neinum látum,“ segir
Tómas. - gar
Neyðarlínan segir ekkert athugavert við sjúkraflutning manns úr Öræfum:
Segir ekki við Mýflug að sakast
FRÉTTABLAÐIÐ Í GÆR
Framkvæmdastjóri
Neyðarlínunnar segir
það hafa verið lækni
veiks manns sem
ákvað að hann yrði
fluttur með sjúkrabíl í
stað þess að bíða eftr
sjúkraflugvél.
ÓÐINN
SIGÞÓRSSON
EYÞÓR
BJÖRNSSON