Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 56

Fréttablaðið - 14.02.2014, Side 56
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 40 VIDEODROME SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas ROBOCOP 8, 10:25(POWER) LEGO - ÍSL TAL 2D 3:50 LEGO - ÍSL TAL 3D 3:50, 6 DALLAS BUYERS CLUB 5:45, 8, 10:20 47 RONIN 3D 10:30 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D 3:45, 6 SECRET LIFE OF WALTER MITTY 8 Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. S.G.S - MBL 5% EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI SPARBÍÓ KEFLAVÍK AKUREYRI TIME ENTERTAINMENT WEEKLY BÍÓVEFURINN/SÉÐ OG HEYRT HOLLYWOOD REPORTER VARIETY ENTERTAINMENT WEEKLY ROGEREBERT.COM CHICAGO SUN-TIMES JOBLO.COM - THE GUARDIAN 36.000 GESTIR! SÝNINGUM FER FÆKKANDI! NÁNAR Á MIÐI.IS NYMPHOMANIAC PART 1 KL. 8 - 10:15 ROBOCOP KL. 8 - 10:15 INSIDE LLEWYN DAVIS KL. 5.50 DALLAS BUYERS CLUB KL. 5.50 NYMPHOMANIAC PART 1 ROBOCOP INSIDE LLEWYN DAVIS DALLAS BUYERS CLUB AUGUST: OSAGE COUNTY THE BOOK THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 KL. 5.30 - 8 - 10.30 KL. 5.40 - 8 KL. 10.30 KL. 6 KL. 9 ÍLEGO SL. TAL 2D LEGO ÍSL. TAL 3D ÍLEGO SL. TAL 3D LÚXUS ROBOCOP ROBOCOP LÚXUS HER SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 2D SECRET LIFE OF WALTER MITTY THE HOBBIT 3D 48R KL. 3.30 - 5.45 KL. 3.30 - 5.45 KL. 3.30 - 5.45 KL. 5 - 8 - 10.35 KL. 8 - 10.35 KL. 8 - 10.30 KL. 3.30 KL. 8 - 10.30 KL. 5.40 - 9 Miðasala á: og „Bibbi úr Skálmöld og Óttar Proppé úr Ham ætla að syngja bakraddir með okkur á laugar- dagskvöldið,“ segir rauði pollinn, Haraldur Freyr Gíslason, söngv- ari og gítarleikari í Pollapönk. Það er því ljóst að hljómsveitirnar Pollapönk, Botnleðja, Dr. Spock, Ham og Skálmöld munu í fyrsta skipti í sögunni stíga saman á svið í Háskólabíó á laugardagskvöld- ið, þegar úrslitin í Söngvakeppni Sjónvarpsins fara fram. Pollarnir voru staðráðnir í að bæta atriðið sitt ef þeir kæmust í úrslit. „Það var alltaf planið að byggja ofan á atriðið ef við kæm- umst áfram, nú erum við líka að nálgast regnbogafánann í litum,“ segir Haraldur. Alþingismaðurinn og gullbark- inn Óttar Proppé verður fjólublái pollinn og Bibbi (Snæbjörn Ragn- arsson), verður appelsínuguli pollinn. „Appelsínuguli pollinn er svokallaður skyndihjálparpolli og mun hjálpa fólki í vanda. Fjólublái pollinn eða Alþingispollinn ætlar að gera Ísland að fordómalausri þjóð,“ útskýrir Haraldur. Pollapönk hefur æft af kappi frá því að sveitin komst áfram. „Við höfum æft daglega frá því við komumst áfram og tökum þetta gríðarlega alvarlega. Það skiptir okkur mjög miklu máli að gera þetta vel,“ segir Haraldur og bætir við að þeir geti vart beðið eftir því að stíga á svið. Óttar og Bibbi eru miklir rokk- arar en líklega síst þekktir fyrir bakraddasöng. „Nú erum við með raddir í öllum regnbogans litum þannig að þetta verður litríkt og skemmtilegt.“ Það er þó enn óákveðið hvort Bibbi og Óttar verða með hljóð- færi á sér, en þeir munu pottþétt munda míkrófóninn af mikilli fag- mennsku. „Þó að enginn af okkur hafi unnið söngvakeppni fram- haldsskólanna þá lofa ég fögr- um söng,“ segir Haraldur léttur í lundu. Þá hefur enn ekki verið ákveðið hvort bakraddasöngvararnir verði fullgildir meðlimir Pollapönks eftir Eurovision-flutninginn. „Þeir verða með okkur á laugardaginn en við sjáum svo til með fram- haldið, við þurfum að sjá hvort þeir hafa pollaandann í sér. Þeir eru samt fordómalausir, ég finn það strax.“ Pollapönk flytur lagið Enga for- dóma í Háskólabíói á laugardags- kvöldið. gunnarleo@frettabladid.is Pollarnir fá aðstoð frá Ham og Skálmöld Hljómsveitin Pollapönk sem tekur þátt í Eurovision um helgina hefur fengið mikla reynslubolta til að aðstoða sig– þá Óttar Proppé úr Ham og Bibba úr Skálmöld. LITSKRÚÐUG HLJÓMSVEIT Pollapönk fær aðstoð frá Bibba úr Skálmöld og Óttari Proppé úr Ham í Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Appelsínuguli pollinn er svokallaður skyndi- hjálparpolli og mun hjálpa fólki í vanda. Fjólublái pollinn eða Alþingispoll- inn ætlar að gera Ísland að fordómalausri þjóð. Haraldur Freyr Gíslason Allar Önnur í Afríku, Malíkar Græn-lands, Litháar, kaffidrekkandi Kín- verjar, Svíar sem flokka ekki rusl, gagn- kynhneigðir skautadansarar, ófullnægðar unglingsstelpur, graðir búddistar, glaðir Samar, Indverjar í ástarsorg, Finnar í Hlíð- unum, konan sem seldi mér ilmvatn á Rue du Borg Tibourg, strákarnir sem rændu mig í sumar, lögfræðingurinn minn, og þeirra, amma mín, Breivik, nauðgarar, sam- verjar, skipverjar, einherjar, þú og þið hin. STUNDUM ligg ég andvaka og hugsa um hvað þið séuð að gera. Hvort ég hitti ykkur öll á morgun, hvort einhvern tíma komi sá dagur að við sjáumst öll, nótt þar sem ég mæti ykkur öllum í draumi, einu af öðru og þakka ykkur fyrir allar hugmyndirnar, áhyggjurnar, reiðina, hlátrana og mynd- böndin af ykkur á YouTube. Sum þeirra eru mjög góð. Oftast sef ég þó og oftast er mér sama. Sjaldan er ég sanngjörn. Sum ykkar hef ég hatað án þess að þekkja, sum án þess að skammast mín, sum alltof lítið og einhverja í hárnákvæmu magni. Suma hef ég blekkt, aðra hrekkt, ég hef rifist vitandi að ég hafði rangt fyrir mér, neitað að fyrirgefa til að pína, ég hef hugsað illa til Mæðrastyrksnefndar, leitað hefnda og fundið til annarlegra kennda. Ég hef verið fífl. Og á köflum andstyggilegt fífl. EN stundum skipta gallar og mistök mig engu. Ég gleymi bráðnandi jöklum, sól sem fuðrar upp fyrir rest og stjörnuþokunni Andrómedu sem mun sundra okkur öllum á endanum. Þá megið þið vera mér ósammála um allt, hella sápu í sjóinn, setja dömubindi í klósettin, kaupa ykkur ólífræna útlenska innflutta óhamingjusama genabætta tómata úr mengandi flugvélum af ökrum ósann- gjarnra óðalsbænda sem borga engum fyrir að tína þá. OG ég hef aldrei sagt ykkur þetta. Öllum í einu; Ekkert hreyfir mig meira en þú, elsku mannkynið mitt. Ef ég skyldi ekki ná ykkur öllum saman eða hitta á rétta draum- inn langar mig að þakka ykkur, hér og nú, fyrir allar vökustundirnar, fíflaskapinn og algleymið. Takk fyrir allar tilfinningarnar. Án ykkar væri mér alltaf sama. EINMITT núna, þegar einhver hrasar í hlíðum Himalaja og Austurvöllur lyktar eins og allt gubb síðasta vetrar, er líkami minn undirlagður af ást til ykkar. Ástarbréf til heimsins BAKÞANKAR Sögu Garðarsdóttur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.