Fréttablaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 52
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 36
„Það eru tvær meginástæð-
ur sem liggja að baki mikl-
um áhuga á kraftlyftingum hjá
konum í dag. Fyrir það fyrsta
þá er ákveðin vitundarvakning
um líkamsrækt og hin ástæðan
er sú að áhuginn spyrst hratt
út og í kjölfarið hefur myndast
ákveðinn hópur í kringum þetta,“
segir Ingimundur Björgvinsson,
einkaþjálfari hjá World Class á
Seltjarnarnesi. Hann segir það
mikinn misskilning að konur í
kraftlyftingum séu bosmamikl-
ar heldur séu þær konur sem
sinna kraftlyftingum á heims-
mælikvarða flestar grannar og
nettar og í góðu formi. „Ef stoð-
kerfið er í lagi þá er ekkert því
til fyrirstöðu að æfa þetta en það
er lykil atriði fyrir allar konur að
læra tæknina. Góður undirbún-
ingur, rétt tækni, hraði og rétt
líkamsbygging hefur mikið um
þetta að segja,“ segir Ingimund-
ur þjálfari. „Þú brennir auðvi-
tað vel og það tekur langan tíma
að jafna sig eftir hverja æfingu.
Það sem kraftlyftingar hafa fram
yfir margar aðrar æfingar er að
þetta er svo krefjandi að þú getur
eiginlega ekki einbeitt þér að
öðru á meðan. Margar konur fara
í þetta til þess að gleyma stað og
stund og sjá markmið sín verða
að veruleika.“
Ása Ólafsdóttir er lögfræð-
ingur að mennt og starfar sem
dósent við lagadeild Háskóla
Íslands. Hún hefur verið að æfa
kraftlyftingar í þrjú ár og segist
hafa fundið sig í sportinu enda sé
félagsskapurinn góður og árang-
urinn sé sýnilegur.
„Ég æfði og keppti áður í karate
en hætti því þegar ég eignaðist
börnin mín og svo vantaði mig
eitthvað að gera. Mér fannst
þessi líkamsrækt henta mér
mjög vel því það er allt gert undir
eftirliti. Maður stjórnar svo vel
áreynslunni og það er sýnilegur
og mælanlegur árangur. Þetta er
svo skemmtilegt því að það sem
maður leggur í þetta, skilar sér til
baka,“ segir Ása Ólafsdóttir sem
æfir kraftlyftingar fjórum sinn-
um í viku ásamt þremur öðrum
konum. Ása segir að þær lyfti afar
sjaldan miklum þyngdum held-
ur séu þær að æfa almennilegar
styrktaræfingar.
„Ég vil vera fyrirmynd fyrir
krakkana mína og þetta snýst
raunverulega ekki bara um útlit-
ið heldur að maður sé að gera eitt-
hvað gott fyrir líkamann. Þetta
eru endalausar tækniæfingar og
heilinn þarf að fá að vera með.
Þetta er bara eins og að læra
tungumál undir réttri stjórn.
Ég treysti þjálfaranum mínum
og við höfum allar náð miklum
árangri þrátt fyrir að ég sé bara
að keppa við sjálfa mig. Takmark
mitt er að vera hresstasta og
sterkasta amman í framtíðinni.“
marinmanda@frettabladid.is
Kraft lyft ingaæði íslenskra kvenna
Kraft lyft ingar kvenna hafa síaukist að undanförnu með mikilli vitundarvakningu um sportið og hafa myndast stórir hópar kvenna sem
stunda það af kappi. Einkaþjálfarinn Ingimundur Björgvinsson segir sportið afar krefj andi og að iðkendur gleymi stað og stund.
MIKIÐ EFTIRLIT MEÐ LYFTINGUNUM Ingimundur Björgvinsson þjálfari sérsníður
æfingaprógramm fyrir hverja og eina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STERK OG Í GÓÐU FORMI Ása Ólafsdóttir, dósent og kraftlyftingakona.
Þetta snýst raun-
verulega ekki bara um
útlitið heldur að maður
sé að gera eitthvað gott
fyrir líkamann.
Ása Ólafsdóttir
VE
RSL
AÐU Á NETINU
V
WWW.GA
P.IS
NETTILB
OÐ Á HV
ERJUM
DEGI!
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
ALLT FYRIR YOGAÆFINGAFATNAÐUR OG SKÓR LÓÐ OG KETILBJÖLLUR BOLTAR OG NUDDVÖRUR ÞREKTÆKI
ÞÚ FÆRÐ ALLAN BÚNAÐ TIL HEIMAÞJÁLFUNAR Á GÁP.IS
ALLUR BÚNAÐUR Í BIGGEST LOSER
„GYMMINU” ER FRÁ OKKUR!
Búnaður sem gott er að
eiga í kraft lyft ingum
■ Flatir skór, eins og Nike Free eða
sérhæfðir skór með stuðningi við
ökklann. Ekki skór með loftpúðum.
■ 10 cm keppnisleðurbelti.
Einungis notað í hámarksþyngdum.
■ Úlnliðsvafningar sem styðja
við úlnliðinn og minnka álagið og
auðvelda stjórnun á stönginni.
■ Háar og stífar æfingabuxur sem
hindra ekki hreyfingar.
■ Bómullarbolur sem þolir
stöngina.