Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 52

Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 52
14. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 36 „Það eru tvær meginástæð- ur sem liggja að baki mikl- um áhuga á kraftlyftingum hjá konum í dag. Fyrir það fyrsta þá er ákveðin vitundarvakning um líkamsrækt og hin ástæðan er sú að áhuginn spyrst hratt út og í kjölfarið hefur myndast ákveðinn hópur í kringum þetta,“ segir Ingimundur Björgvinsson, einkaþjálfari hjá World Class á Seltjarnarnesi. Hann segir það mikinn misskilning að konur í kraftlyftingum séu bosmamikl- ar heldur séu þær konur sem sinna kraftlyftingum á heims- mælikvarða flestar grannar og nettar og í góðu formi. „Ef stoð- kerfið er í lagi þá er ekkert því til fyrirstöðu að æfa þetta en það er lykil atriði fyrir allar konur að læra tæknina. Góður undirbún- ingur, rétt tækni, hraði og rétt líkamsbygging hefur mikið um þetta að segja,“ segir Ingimund- ur þjálfari. „Þú brennir auðvi- tað vel og það tekur langan tíma að jafna sig eftir hverja æfingu. Það sem kraftlyftingar hafa fram yfir margar aðrar æfingar er að þetta er svo krefjandi að þú getur eiginlega ekki einbeitt þér að öðru á meðan. Margar konur fara í þetta til þess að gleyma stað og stund og sjá markmið sín verða að veruleika.“ Ása Ólafsdóttir er lögfræð- ingur að mennt og starfar sem dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Hún hefur verið að æfa kraftlyftingar í þrjú ár og segist hafa fundið sig í sportinu enda sé félagsskapurinn góður og árang- urinn sé sýnilegur. „Ég æfði og keppti áður í karate en hætti því þegar ég eignaðist börnin mín og svo vantaði mig eitthvað að gera. Mér fannst þessi líkamsrækt henta mér mjög vel því það er allt gert undir eftirliti. Maður stjórnar svo vel áreynslunni og það er sýnilegur og mælanlegur árangur. Þetta er svo skemmtilegt því að það sem maður leggur í þetta, skilar sér til baka,“ segir Ása Ólafsdóttir sem æfir kraftlyftingar fjórum sinn- um í viku ásamt þremur öðrum konum. Ása segir að þær lyfti afar sjaldan miklum þyngdum held- ur séu þær að æfa almennilegar styrktaræfingar. „Ég vil vera fyrirmynd fyrir krakkana mína og þetta snýst raunverulega ekki bara um útlit- ið heldur að maður sé að gera eitt- hvað gott fyrir líkamann. Þetta eru endalausar tækniæfingar og heilinn þarf að fá að vera með. Þetta er bara eins og að læra tungumál undir réttri stjórn. Ég treysti þjálfaranum mínum og við höfum allar náð miklum árangri þrátt fyrir að ég sé bara að keppa við sjálfa mig. Takmark mitt er að vera hresstasta og sterkasta amman í framtíðinni.“ marinmanda@frettabladid.is Kraft lyft ingaæði íslenskra kvenna Kraft lyft ingar kvenna hafa síaukist að undanförnu með mikilli vitundarvakningu um sportið og hafa myndast stórir hópar kvenna sem stunda það af kappi. Einkaþjálfarinn Ingimundur Björgvinsson segir sportið afar krefj andi og að iðkendur gleymi stað og stund. MIKIÐ EFTIRLIT MEÐ LYFTINGUNUM Ingimundur Björgvinsson þjálfari sérsníður æfingaprógramm fyrir hverja og eina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STERK OG Í GÓÐU FORMI Ása Ólafsdóttir, dósent og kraftlyftingakona. Þetta snýst raun- verulega ekki bara um útlitið heldur að maður sé að gera eitthvað gott fyrir líkamann. Ása Ólafsdóttir VE RSL AÐU Á NETINU V WWW.GA P.IS NETTILB OÐ Á HV ERJUM DEGI! HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS ALLT FYRIR YOGAÆFINGAFATNAÐUR OG SKÓR LÓÐ OG KETILBJÖLLUR BOLTAR OG NUDDVÖRUR ÞREKTÆKI ÞÚ FÆRÐ ALLAN BÚNAÐ TIL HEIMAÞJÁLFUNAR Á GÁP.IS ALLUR BÚNAÐUR Í BIGGEST LOSER „GYMMINU” ER FRÁ OKKUR! Búnaður sem gott er að eiga í kraft lyft ingum ■ Flatir skór, eins og Nike Free eða sérhæfðir skór með stuðningi við ökklann. Ekki skór með loftpúðum. ■ 10 cm keppnisleðurbelti. Einungis notað í hámarksþyngdum. ■ Úlnliðsvafningar sem styðja við úlnliðinn og minnka álagið og auðvelda stjórnun á stönginni. ■ Háar og stífar æfingabuxur sem hindra ekki hreyfingar. ■ Bómullarbolur sem þolir stöngina.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.