Fréttablaðið - 01.04.2014, Síða 6

Fréttablaðið - 01.04.2014, Síða 6
1. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hversu mikill hluti iðgjalda vegna slysatrygginga við heimilisstörf fór í bætur í fyrra? 2. Hver leikstýrir heimildarmynd um Regnbogamanninn? 3. Hvað voru mörg börn ættleidd til landsins 2008 til 2012? SVÖR: 1. Þriðjungur. 2. Marsibil Jóna Sæmundar- dóttir. 3. 81. FORVARNIR Samtökin Blátt áfram fagna tíu ára afmæli þessa dag- ana. Samtökin eru ein af fáum sem snúa að forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum og hafa aðrar þjóðir leitað til samtakanna til að kynna sér aðferðafræðina sem þau nota, þar á meðal fólk frá Grænlandi og Ungverjalandi. Þessa dagana eru níu manns frá Lettlandi á námskeiði hjá sam- tökunum. „Við erum búin að fræða 35 þúsund manns á síðustu tíu árum og þannig ná til tíu pró- senta þjóðarinnar. Við sjáum árangurinn í þeirri vitundar- vakningu sem hefur orðið varðandi þessi mál á tiltölu- lega stuttum tíma,“ segir Svava Björnsdóttir, ein stofnenda Blátt áfram og varaformaður. Svava segir næst á dagskrá að búa til íslenskt fræðsluefni sem er sérstaklega ætlað full- orðnu fólki. „Við viljum einbeita okkur að fullorðna fólkinu enda liggur ábyrgðin hjá því. Sérstak- lega er mikilvægt að foreldr- arnir fái fræðslu og munum við bjóða upp á fyrirlestra fyrir þá núna í apríl af tilefni alþjóðlegs mánaðar gegn ofbeldi gagnvart börnum.“ - ebg Blátt áfram fagnar tíu ára afmæli í mánuði gegn ofbeldi gagnvart börnum: Hafa frætt 35 þúsund manns STOFNANDI BLÁTT ÁFRAM Svava Björnsdóttir heldur þessa dagana nám- skeið fyrir níu manns frá Lettlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALÞINGI Sjávarútvegsráðherra lagði ekki fram frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða eða um veiðigjöld í gær eins og vænst hafði verið. Dagurinn í gær, 31. mars, var síðasti dagur til að leggja fram ný þingmál á Alþingi fyrir sumarfrí, án þess að leita afbrigða. Annað frumvarp sem beðið hafði verið eftir með nokkurri eftirvænt- ingu kom heldur ekki fram. Það er frumvarp um gjaldtöku á ferða- mannastöðum. Þegar gerðar voru breytingar á lögum um veiðigjöld í fyrra voru þau til eins árs. Að sögn þing- manna er því ljóst að það verður að nota ákvæði þingskaparlaga um afbrigði til að leggja fram veiði- gjaldafrumvarp fyrir þinglok svo ný lög geti tekið gildi þegar nýtt fiskveiðiár gengur í garð fyrsta september næstkomandi. Annað mál sem beðið hefur verið eftir en hillir ekki undir er frum- varp um afnám verðtryggingar. Á þingmálaskrá ríkisstjórnar- innar voru á annað hundrað mál. Það styttist í þinglok, nú eru tólf þingfundardagar eftir áður en Alþingi fer í sumarfrí um miðjan maí. Rúmlega 80 mál bíða umræðu í þinginu. Stærstu málin eru leið- rétting verðtryggðra húsnæðislána og frumvarp um séreignarsparnað. Þá er umdeild þingsályktunartil- laga utanríkisráðherra um að slíta aðildarviðræðum við Evrópusam- bandið til umfjöllunar í utanríkis- málanefnd og kemur væntanlega til annarrar umræðu í þinginu í kring- um páska. Félags- og húsnæðismálaráð- herra lagði fram eitt af stóru mál- unum sínum í gær, um húsaleigu- bætur. Af málum sem efnahags- og fjár- málaráðherra lagði fram má nefna frumvarp um eiginfjárviðmið Seðla- banka og frumvarp um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, þriðja frumvarpið sem kom úr fjármála- ráðuneytinu er frumvarp til laga um opinber fjármál. johanna@frettabladid.is Rúmlega áttatíu mál bíða umræðu Lokadagur til að leggja fram ný þingmál án þess að leita afbrigða var í gær. Ekki kom fram frumvarp um veiðigjöld eða um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Ekkert bólar heldur á frumvarpi um gjaldtöku á vinsælum ferðamannastöðum. „Ég er ekki viss um að ríkisstjórnin hafi styrkt stöðu sína síðustu daga, þrátt fyrir frumvörp sem eiga að taka á skuldavanda heimilanna,“ segir Gunnar Helgi Kristins- son, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. „Það er komið eitthvað frá stjórninni um flest þau mál sem hún lagði upp með nema það hefur ekki komið frumvarp um afnám verðtryggingarinnar sem er gríðarlega flókið og vandasamt mál,“ segir Gunnar Helgi. Hann segist telja að margir sem bjuggust við miklu varðandi niðurfellingu skulda verði fyrir vonbrigðum þegar þeir kíkja í skuldaleiðréttingarpakkann. EKKI STYRKT STÖÐU SÍNA EIRÍKUR TÓMASSON ÞINGMÁL RÍKISSTJÓRNARINNAR ■ Frumvarp til laga um leiðréttingu verðtryggðra fasteignalána. ■ Frumvarp til laga um séreignar- sparnað. ■ Frumvarp til laga um breytingar á lögum um húsaleigubætur. ■ Frumvarp til laga um eiginfjár- viðmið Seðlabanka Íslands. ■ Frumvap til laga um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. ■ Frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, stað- greiðslu opinberra gjalda og fleira ■ Tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2013 til 2016. ■ Frumvarp um stjórn fiskveiða (aflamarkskerfi) ■ Frumvarp um veiðigjöld ■ Frumvarp til breytinga á dóm- stóla- og réttarfarslögum vegna millidómstigs. ■ Frumvarp til laga um gjaldtöku í ferðaþjónustu. ■ Frumvarp um ríkisolíufélag. ■ Frumvarp til laga um stað- göngumæðrun í velgjörðar- skyni. ■ Frumvarp um hamfarasjóð. ■ Frumvarp um húsnæðismál (lyklafrumvarp). ➜ Frumvörp sem búið að leggja fram ➜ Frumvörp sem ekki er búið að leggja fram ÞARF LEYFI ÞINGSINS Ef ríkisstjórn eða þingmenn ætla að leggja fram ný lagafrumvörp eftir fyrsta apríl þarf meirihluti Alþingis að samþykkja framlagningu lagafrum- varpsins. Frumvarp sem lagt er fram með afbrigði þarf að bíða í fimm daga í þinginu áður en það er tekið til umræðu. Ef mikið liggur við, til dæmis ef um mikla vá er að tefla, er hægt að fara fram á flýtimeðferð og er frumvarpið þá tekið til tafarlausrar umræðu. STÓR MÁL BÍÐA Þingmenn verða að halda vel á spöðunum ef á að nást að ljúka mörgum stórum málum sem bíða afgreiðslu áður en þing fer í sumarfrí um miðjan maí. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL. VEISTU SVARIÐ? Nýtt lyf sem verkar bæði gegn nefstíflu og nefrennsli Andaðu með nefinu Nýtt!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.