Fréttablaðið - 01.04.2014, Side 30
1. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26
Rómantísk sunnudagsstemning
Farmers Market með Bergþóru Guðnadóttur í farar-
broddi gerði það sem þau gera best á sýningu sinni á
laugardaginn. Eins og búast mátti við var ullin í lykilhlut-
verki í sýningunni þar sem stórri mynd af sveitakirkju
var varpað á bak við tískupallinn og lifandi tónlist ómaði
undir. Peysur, silkikjólar, gallaskyrtur, hnésíð pils og
vaxjakkar er það sem koma skal frá merkinu sem hefur
fest sig í sessi hér á landi og víðar. Fléttuhárgreiðslur og
náttúruleg förðun fyrirsætanna tónaði vel við fatnaðinn.
Tískufj ör í Hörpu
Reykjavík Fashion Festival fór fram með pomp og prakt um helgina. Fjöl-
breytnin var í fyrirrúmi þar sem áhorfendur sáu allt frá rómantískri sveitasælu
Farmers Market til rokkaðs og reykfyllts tískupallsins hjá Guðmundi Jörunds-
syni. Þeir átta hönnuðir sem tóku þátt í tískuhátíðinni í ár tóku verkefnið alvar-
lega og sýndu það að framtíðin er björt í fatahönnun á Íslandi í dag.
3 verð á rúmfötum
7.990 kr 8.990 kr 9.990 kr
Gæði fara aldrei úr tísku
Mest seldu ofnar á Norðurlöndum
10 ára ábyrgð
Litríkur
flísfatnaður
Útivistarmerkið Cintamani
sýndi í fyrsta sinn fatalínu
sína á Reykjavík Fashion
Festival í ár. Sumir settu
spurningarmerki við það
að útivistarmerki færi á
pallana á RFF enda sýningin
frábrugðin hinum. Fyrir-
sæturnar voru eins og þær
væru nýkomnar niður af
fjallinu, með rjóðar kinnar
og úfið hár. Litadýrðin var
mikil hjá útivistarmerkinu
sem sýndi ullarfatnað, flís-
peysur, ullarsokka og fylgi-
hluti í fjallgönguna. Anna
Clausen sá um stíliseringu
og á hrós skilið fyrir flotta
heildarmynd.
Kvenlegar línur
og áttundi ára-
tugurinn
Rebekka Jónsdóttir, sem
hannar undir merkinu REY,
var með glæsilega sýningu
þar sem andi áttunda ára-
tugarins sveif yfir vötnum.
Hún hafði sjálf lýst línunni
sem hyllingu til kven-
skörunga frá gullaldar-
tímabili Hollywood og fór
það ekki fram hjá neinum.
Samfestingar með víðum
skálmum, flaksandi efni,
áberandi mitti, barðastór
skyggni og skemmtilegar
prjónapeysur. Vönduð lína
þar sem margir ættu að
geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Dökkur og drunga-
legur Jör
Jör by Guðmundur Jörunds-
son var rúsínan í pylsuend-
anum á tískudeginum í
Hörpu. Það kvað við nýjan
tón hjá Jör sem hingað
til hefur verið einna helst
þekktur fyrir jakkaföt á
dömur og herra. Dúndrandi
rokktónlist, blikkandi
neonljós og reykfylltur
tískupallurinn settu sinn
svip á goth-lega fatalínu
Guðmundar. Vel sniðnar
yfirhafnir, rifnar gallabuxur,
síðar skyrtur og buxur með
klauf er það sem koma
skal frá Jör. Hárgreiðslan
og förðunin settu sinn svip
á sýninguna sem stóð upp
úr hvað varðar heildarsvip
og útfærslu á hátíðinni. Vel
gert hjá Jör-teyminu.
Tímalaust og fágað
Þær Katrín Kára og Elínrós Líndal sóttu innblástur sinn til
stríðsáranna fyrir þessa nýju línu Ellu. Upphaf sýningarinnar
gaf strax tóninn fyrir það sem koma skyldi þegar fyrirsætur,
klæddar fallegum síðum ullarkápum með háum kraga, þrömm-
uðu taktfast inn pallinn. Blártt svart og grátt var litaspjaldið í
fatalínunni þar sem allar flíkurnar voru útpældar, vel sniðnar og
klassískar. Fatalínan og sýningin voru óður til sterku konunnar
sem sást í öllu frá förðun til skóbúnaðar fyrirsætanna. Sýningin
endaði svo á laginu Independent Women með Beyoncé til að
kóróna þemað.
Kynþokkafullir
kjólar og flott prent
Margir biðu spenntir eftir
að sjá sýningu Sigga Maiju
sem er fyrsta fatalína
Sigríðar Maríu Sigurjóns-
dóttur undir eigin nafni.
Sýningin var glæsileg
og einkenndist línan af
þröngum buxum með
rennilás niður kálfann og
kvenlegum kjólum með
bert í bakið í litríkum
munstrum. Sigríður María
hefur áður unnið fyrir
Jör og Kron Kron en hún
sótti innblástur til Parísar
í kringum 1920 fyrir eigin
línu.
Flott frumraun Magneu
Fatahönnuðurinn Magnea Einars var að þreyta frumraun sína á
RFF í ár en prjónið leikur stórt hlutverk í hennar hönnun. Sýningin
var vel gerð og greinilega búið að spá í hvert smáatriði. Lita-
spjaldið í línunni var svart, hvítt og fjólublátt með prjónasettum,
pilsum, peysum sem og munstruðum silkikjólum. Þá voru síðar
prjónapeysur og vesti einkar girnileg fyrir næsta vetur. Fyrir-
sæturnar báru allar skemmtilega hatta sem gaf sýningunni flottan
blæ. Það verður gaman að fylgjast með Magneu í framtíðinni.
Leður og prjón frá Zisku
Sýning Hörpu Einarsdóttur, sem hannar undir nafninu
Ziska, hófst á skemmtilegu tískumyndbandi með hestum í
aðalhlutverki. Fatalínan sjálf einkenndist af leðri, prjóni og
silki og var svarti liturinn ríkjandi við hvítan, mintugrænan
og bleikan. Harpa er þekkt fyrir ævintýraleg munstur sín
sem auðvitað fengu pláss í þessari línu. Hvítur leðurkjóll
stóð upp úr á sýningunni sem og stutt prjónapeysa með
flottu munstri. Þá vöktu útskorin leðurhálsbönd athygli.
„Það er frábært að fá hana til
landsins, þetta er frábær listamað-
ur,“ segir Kristinn Sæmundsson,
skipuleggjandi tónleikaferðarinn-
ar sem kallast Litli Íslandstúrinn
2014, en þar koma fram færeyska
tónlistarkonan Laila Av Reyni og
íslenska hljómsveitin Sometime.
Tónleikaferðalagið hefst í dag í
verslun Lucky Records við Rauð-
arárstíg og hefjast tónleikarnir
klukkan 16.30.
Laila Av Reyni er mikil lista-
kona og fyrir utan tónlistina er
hún yfirkennari og stýrir hönnun-
ardeildar Tekníska skúlans í Þórs-
höfn í Færeyjum og hefur til að
mynda hannað klæðnað fyrir feg-
urðardrottningar Danmerkur og
Eurovision-keppendur Dana. „Hún
er rísandi stjarna í tónlistarheim-
inum,“ bætir Kristinn við. Hljóm-
sveitina Sometime skipa þau Rósa
Birgitta Ísfeld og Daníel Þorsteins-
son en þau stofnuðu hana ásamt
nokkrum reyndum tónlistarmönn-
um árið 2005 og hafa með tónleik-
um sínum skapað sér gott orðspor.
„Það sem tengir sveitirnar er að
Rósa Birgitta er einn fjórði Fær-
eyingur,“ segir Kristinn léttur í
lundu. Þá leika sveitirnar báðar
rafskotið popp.
Tónleikaferðalagið heldur áfram
á fimmtudag en þá eru tónleikar á
Café Rosenberg, föstudag í Gamla
kaupfélaginu á Akranesi og laugar-
daginn á Fjörukránni í Hafnarfirði.
Kristinn hefur verið iðinn við að
kynna Íslendinga fyrir færeyskri
tónlist og kynnti til að mynda
Eivöru Pálsdóttur og hljómsveit-
ina Tý fyrir landsmönnum á sínum
tíma. - glp
Færeysk tónlist kynnt
með tónleikaferðalagi
Færeyska tónlistarkonan Laila Av Reyni og íslenska
hljómsveitin Sometime leggja af stað í tónleikaferð.
MIKIL LISTA-
KONA Laila Av
Reyni er mikil
lista kona og
kemur fram á
nokkrum tónlei-
kum hér á landi í
vikunni.
MYND/HØGNI HEINESEN
REY
MAGNEA
JÖR
FARMERS MARKET
CIN
TA
M
A
N
I
SIG
G
A
M
A
IJA
ELLA
ZISKA
LÍFIÐ