Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 10
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SKÝRSLA ALÞJÓÐASTOFNUNAR UM EVRÓPUSAMBANDIÐ
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Líklegt er að Ísland hefði fengið
undanþágur frá reglum Evrópusam-
bandsins til að fá áfram að banna
innflutning á lifandi dýrum hefði
aðildarviðræðum Íslands verið
lokið.
Þetta kemur fram í skýrslu
Alþjóðamálastofnunar Háskóla
Íslands um aðildarviðræður Íslands
við Evrópusambandið. Skýrslan
var unnin fyrir Alþýðusamband
Íslands, Félag atvinnurekenda, Sam-
tök atvinnulífsins og Viðskiptaráð
Íslands, og var kynnt á mánudag.
Í skýrslunni segir að líklega hefði
dugað fyrir Íslendinga að sýna fram
á að bannið væri byggt á vísindaleg-
um grunni. Undanþágan myndi þá
að öllum líkindum vera endurskoð-
uð reglulega, en haldist vísindaleg
rök óbreytt fengi hún að halda sér
áfram.
Þegar er tekist á um bann Íslands
við innflutningi á ófrystu fersku
kjöti á vettvangi ESA, eftirlitsstofn-
unar EFTA. Allt stefnir í að ESA
fari í mál við Ísland vegna banns-
ins, og mun niðurstaðan úr því máli
skipta miklu gangi Ísland í ESB.
Vinni Ísland málið mun það styrkja
stöðu landsins í að halda banninu.
Tapist málið veikist um leið sá mál-
staður.
Haldi aðildarviðræður Íslands og
ESB áfram bendir ekkert til þess
að Ísland muni þurfa á umfangs-
miklum undanþágum eða sérlausn-
um að halda í landbúnaðarmálum
umfram það sem fordæmi eru fyrir,
til dæmis frá Finnlandi.
Þegar kemur að landbúnaðarmál-
unum er líklegt að þrjú úrlausnar-
efni verði erfiðust, að mati skýrslu-
höfunda. Í fyrsta lagi hversu stóran
hluta landbúnaðarstyrkja á Íslandi
megi tengja framleiðslu. Í öðru lagi
hversu mikill stuðningur við bænd-
ur muni verða. Í þriðja lagi verði
tekist á um hversu stóran hluta af
stuðningnum ESB muni greiða.
Langsamlega stærstur hluti
greiðslna til bænda innan ESB er
vegna eignar á landi. Þá er greidd
ákveðin upphæð á hvern hektara
lands sem er ræktaður. Upphæð-
in er misjöfn „vegna sögulegra
ástæðna“, eins og segir í skýrslunni.
Greiðslur eru lægstar um 15 þúsund
á hektara í Lettlandi, en hæstar um
124 þúsund á hektara á Möltu.
Í skýrslu Alþjóðamálastofnunar
segir að illa henti að hafa stuðn-
ing af þessu tagi sem meginstoð
styrkgreiðslna til bænda á Íslandi.
Á Íslandi er nær allur stuðning-
ur tengdur framleiðslu, en slíkir
styrkir eru mjög takmarkaðir í ESB.
Opnað var á frekari framleiðslu-
tengdan stuðning í regluverki ESB
í byrjun þessa árs, en umfanginu
eru settar hömlur. „Ekki virðist þó
útilokað að Ísland gæti nýtt sér und-
anþáguákvæði í reglunum og feng-
ið að viðhalda umtalsverðum fram-
leiðslutengdum stuðningi,“ segir í
skýrslunni.
Þá er „mjög líklegt“ að Ísland fái
að fylgja fordæmi Finnlands, sem
hefur fengið heimild til að styðja
við eigin landbúnað á eigin kostnað.
Heimild Finnlands er tímabundin.
Forsendur fyrir henni eru endur-
skoðaðar reglulega, og breytist þær
ekki er möguleiki á framlengingu.
Við aðild að ESB yrði núverandi
kvótakerfi á mjólk lagt niður, enda
litlar líkur á að Ísland geti fengið,
eða vilji fá, undanþágu frá opin-
beru íhlutunarkerfi ESB. „Það
getur valdið vandamálum fyrir þá
bændur sem eru mjög skuldsettir
og hafa með einhverjum hætti veð-
sett greiðslumark sitt en kemur sér
vel fyrir þá sem hafa möguleika á
að auka framleiðslu sína,“ segir í
skýrslunni.
Verndartollar yrðu felldir niður
Ísland yrði eina ríkið innan ESB
þar sem allir bændur ættu rétt á
svokölluðum harðbýlisgreiðslum.
Stuðningur við dreifbýlið fell-
ur undir landbúnaðarstefnu ESB.
Ísland styrkir bændur þegar með
sambærilegum hætti í gegnum
ýmsa sjóði, og yrði aðlögun að kerfi
ESB því ekki mjög erfið að mati
skýrsluhöfunda.
Erfitt gæti reynst fyrir Ísland að
uppfylla kröfur ESB um stjórnsýslu
landbúnaðarmála. Ljóst er að setja
þyrfti á laggirnar greiðslustofnun í
stað þess að láta greiðslurnar fara
í gegnum Bændasamtök Íslands.
Í skýrslu Alþjóðamálastofnunar
segir að fulltrúar ESB hafi verið
meðvitaðir um að leita þyrfti sér-
lausna fyrir Ísland á þessu sviði.
Afar hæpið er að Ísland fái að
halda verndartollum á landbúnað-
arafurðir, gangi landið í ESB, enda
tollfrjáls viðskipti milli landa eitt af
grundvallaratriðunum í samstarfi
aðildarríkjanna, segir í skýrslu
Alþjóðamálastofnunar. Slík vernd
skiptir langmestu fyrir framleið-
endur kjúklinga- og svínakjöts.
Mögulegt væri að bæta framleið-
endunum upp niðurfellingu toll-
verndar með beinum styrkjum.
Landbúnaðarkerfi ESB hentar illa
Stærstur hluti styrkgreiðslna til bænda í ESB miðast við landsvæði en ekki framleiðslu. Hentar illa hér á landi að mati höfunda skýrslu um
ESB. Ísland ætti að geta haldið áfram að banna innflutning lifandi dýra. Fordæmi Finnlands um styrki til landbúnaðar mikilvægt fyrir Ísland.
Líklegt er að Íslendingar þyrftu að hætta hvalveiðum gengi landið í Evr-
ópusambandið, enda yrði afar erfitt að fá fram sérlausn í aðildarviðræðum
sem gerði áframhaldandi hvalveiðar mögulegar, að mati skýrsluhöfunda
Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Enginn pólitískur vilji er til að heimila hvalveiðar eða viðskipti með
hvalaafurðir í ESB. Skýrsluhöfundar velta þó upp þeim möguleika að hval-
veiðar sem sýnt hafi verið fram á að séu sjálfbærar myndu fá að halda
áfram „að einhverju leyti“, mögulega aðeins fyrir heimamarkað.
Enginn vilji til að leyfa hvalveiðar
NIÐURGREIÐSLUR Íslenskir bændur eru styrktir á grundvelli þess sem þeir fram-
leiða, en styrkir ESB tengjast að mestu landareignum bænda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR
3,7 L/100 KM*
CO2 ÚTBLÁSTUR 95 GRÖMM
ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
RENAULT CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR – VERÐ 3.090.000 KR.
Renault Clio er einn vinsælasti bílIinn á Íslandi. Þegar fallegt útlit, ríkulegur staðalbúnaður, úrval
sparneytinna bensín- og dísilvéla, hagstætt verð og einstök ný „Dual Clutch“ sjálfskipting smellur
saman er ástæðan augljós. Komdu og reynsluaktu nýjum Renault Clio.
www.renault.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
3
0
2