Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 19
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 9. apríl 2014 | 27. tölublað | 10. árgangur
Sjónmælingar í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind
sími 5288500
Optical Studio í Keflavík
sími 4213811
Optical Studio í Leifsstöð
sími 4250500
V I Ð ELSKUM
A Ð P R E N TA !
Símafélagið þjónustar Dohop
Símafélagið hefur samið við hugbúnaðarfyrirtækið
Dohop um að félagið veiti Dohop internet- og síma-
þjónustu vegna starfsemi sinnar. Dohop hefur und-
anfarin tíu ár rekið íslenska ferðavefinn dohop.is
fyrir flug, hótel og bílaleigur.
„Áreiðanleiki og öryggi fjarskipta er gríðarlega
mikilvægt fyrir fyrirtæki eins og okkar sem starf-
ar eingöngu á Internetinu. Þá er hagkvæmni einn-
ig afar mikilvægur þáttur í okkar starfi og því
völdum við Símafélagið sem samstarfsaðila,“ segir
Kristján Guðni Bjarnason, framkvæmdastjóri
Dohop. - skó
Ferðamönnum fjölgi um 20%
Gera má ráð fyrir að erlendum ferðamönnum
hingað til lands muni fjölga um 20 prósent í það
minnsta í ár. Þetta kemur fram í Morgunkorni
greiningar Íslandsbanka. Í því segir að tölur Isavia
um úthlutuð stæði fyrir tímabilið 30. mars til 25.
október bendi til þess að flugumferð um Leifsstöð
verði 18 prósentum meiri á því tímabili en hún var
á sama tímabili í fyrra.
Greiningin spáir einnig að ferðamönnum sem
koma til Íslands með skemmtiferðaskipum fjölgi
hratt og sennilegast verði þeir fleiri en 100 þúsund
á árinu. Þeir skili þó þjóðarbúinu mun minni gjald-
eyristekjum en aðrir ferðamenn. Hlutfallslega
hafi ferðamönnum fjölgað meira utan háannatíma
og verulega hafi dregið úr árstíðasveiflu í ferða-
mannastraumi til landsins.
- skó
Obama gegn launamun kynja
Barack Obama Bandaríkjaforseti skrifaði í gær
undir tilskipun sem gerir það auðveldara að afla
upplýsinga um launagreiðslur. Hann hefur bann-
að yfirmönnum að hegna opinberum starfsmönn-
um sínum fyrir að ræða launagreiðslur sín á milli.
Hann hefur einnig fyrirskipað samantekt gagna
um launagreiðslur byggða á kyni og kynþætti.
„Þetta snýst um að repúblíkanar virðast setja
sig upp á móti öllum tilraunum til að fólk geti stað-
ið jafnfætis á vinnumarkaði,“ sagði Obama þegar
hann skrifaði undir tilskipunina í Hvíta húsinu í
gær, þar sem hann var umkringdur konum.
- fbj
➜ Ný hagspá Al-
þjóðagjaldeyris-
sjóðsins nokkuð
bjartsýn þrátt
fyrir ógnir
➜ Aðalhag-
fræðingur segir
efnahagsbatann
styrkjast og
breiðast út
➜ Gert ráð fyrir
bæði hagvexti
og minnkandi
atvinnuleysi á
Íslandi
SÍÐA 6-7
HAGKERFI HEIMSINS STYRKIST