Fréttablaðið - 09.04.2014, Qupperneq 20
| 2 9. apríl 2014 | miðvikudagur
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Íslenska hugbúnaðarfyrirtæk-
ið App Dynamic hefur samið við
Eik fasteignafélag um leigu á
hluta nítjándu hæðar Turnsins í
Kópavogi þar sem veitingastað-
urinn Turninn nítjánda var áður
rekinn.
„Fyrirtækið er að stækka og
húsnæðið mun gera okkur kleift
að bæta við starfsfólki,“ segir
Pratik Kumar, framkvæmda-
stjóri og stofnandi App Dynamic.
Fyrirtækið var stofnað árið
2011 og hefur síðan þá þróað
ýmis snjallforrit fyrir vefversl-
un Apple, App Store. Vinsælasta
vara fyrirtækisins heitir Air-
Server en um ein og hálf milljón
manna notar forritið á hverjum
degi. Það gerir notendum kleift
að streyma tónlist, myndböndum
eða öðru efni úr Apple- og PC-
tölvum í þráðlaus tæki sem nota
iOS-stýrikerfi Apple, eins og iPad
og iPhone. Einnig er hægt að snúa
dæminu við og skoða gögn úr
spjaldtölvum og símum Apple í
hefðbundnum tölvum.
AirServer hefur fengið já-
kvæða umfjöllun í erlendum
miðlum á borð við Wall Street Jo-
urnal, Macworld og Wired. Net-
miðillinn TUAW, sem fjallar um
vörur og forrit fyrir tæki Apple,
valdi nýjustu útgáfu hugbúnað-
arins, AirServer 5.0, sem eitt af
tíu bestu snjallforritum síðasta
árs. Bandarísku háskólarnir
MIT, Harvard og Stanford eru að
sögn Pratiks á meðal viðskipta-
vina App Dynamic.
„Við erum enn að þróa vörur
fyrir Apple en AirServer er nú
okkar langvinsælasta vara en
það er forrit sem þarf að greiða
sérstaklega fyrir og er ekki selt
í vefverslun Apple. Vinsældirn-
ar eru slíkar að við þurfum nú
að stækka og nú höfum við pláss
til að bæta við fólki.“
Tólf manns starfa nú á skrif-
stofu fyrirtækisins í Hlíðarsmára
í Kópavogi en stefnt er að flutn-
ingum í Turninn fyrir maílok.
„Við höfum auglýst eftir fólki
í dagblöðum en við erum mjög
kröfuhörð enda er þetta mjög flók-
in tækni. Við þurfum mjög hæfa
forritara en því miður höfum við
verið í vandræðum með að finna
þá hér á landi,“ segir Pratik.
App Dynamic flytur
upp á nítjándu hæð
Hugbúnaðarfyrirtækið App Dynamic mun flytja upp á 19. hæð
Turnsins í Kópavogi. Vinsældir AirServer hafa aukist og fyrirtækið
er því að stækka. Eiga í vandræðum með að finna forritara.
Framkvæmdir við eina stærstu
lækninga- og heilsumiðstöð lands-
ins hefjast í maí í húsnæði skemmti-
staðarins Broadway í Ármúla.
„Það er síðasti séns að skemmta
sér á Broadway á föstudaginn,“
segir Ásdís Halla Bragadóttir,
stjórnarformaður Evu Consorti-
um ehf. Félagið keypti á síðasta
ári fasteignina Ármúla 9, þar sem
Broadway og hótelið Park Inn eru
til húsa, af Arion banka. Húsnæði
skemmtistaðarins verður endur-
skipulagt frá grunni og áætlað er
að heildarkostnaður verkefnisins
verði vel á þriðja milljarð króna.
„Við munum svo eftir helgi
fara að tæma Broadway og fram-
kvæmdir hefjast síðan í maí sem
byrja á niðurrifi og svo hefst
mikil uppbygging síðar í sumar
sem lýkur í apríl 2015.“
Eva consortium er í eigu Ásdís-
ar og Ástu Þórarinsdóttur, fram-
kvæmdastjóra félagsins, og fjár-
festingafélagsins Kjölfestu. Meðal
eigenda Kjölfestu eru fjórtán líf-
eyrissjóðir. - hg
Framkvæmdir Evu consortium ehf. hefjast að loknu síðasta ballinu á Broadway:
Byrja á heilsumiðstöðinni í maí
Nordic eMarketing hlaut á föstudagskvöldið 28.
mars ein af aðalverðlaunum Evrópsku leitarvéla-
verðlaunanna. Verðlaunin voru fyrir herferð sem
fyrirtækið skipulagði fyrir WOW Air og gekk út á að
vekja athygli á hagstæðum fargjöldum flugfélags-
ins til Evrópu.
Verðlaunin voru í flokki keyptra niðurstaðna, en
fyrirtækið var tilnefnt til verðlauna í fjórum öðrum
flokkum.
„Herferðin gekk frábærlega og náðum við til lykil-
markhópa í Evrópu, sem skilaði sér í auknum tekjum
fyrir WOW Air,“ segir Haukur Jarl Kristjánsson, for-
stöðumaður hjá Nordic eMarketing í tilkynningu frá
fyrirtækinu.
„Við höfum þróað aðferðafræði sem byggir á langri
reynslu og ástríðu starfsfólksins okkar.“
Verðlaunahátíðin fór að þessu sinni fram í Reykja-
vík, en þetta er í þriðja sinn sem hún er haldin. Áður
var hún í Barcelona og Amsterdam. „Það er mikill
heiður fyrir okkur að hljóta þessi verðlaun og ekki
skemmir fyrir að hljóta þau á heimavelli,“ segir
Hreggviður St. Magnússon, framkvæmdastjóri
Nordic eMarketing. - skó
Nordic eMarketing hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir skipulag WOW herferðar:
Tilnefnt til fimm verðlauna
ÁFORMIN KYNNT Kristján Þór Júlíus-
son heilbrigðisráðherra og Ásdís Halla
tóku bæði til máls á blaðamannafundi
Evu consortium þegar framkvæmdirnar
voru kynntar í desember.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TÆKNI
Haraldur Guðmundsson | haradur@frettabladid.is
MEÐ AIRSERVER Pratik Kumar stofnaði App Dynamic árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁNÆGÐIR MEÐ VERÐLAUNIN Laurent Boninfante frá EMEA
og þeir Kristján Már Hauksson, Hreggviður St. Magnússon og
Haukur Jarl Kristjánsson frá Nordic eMarketing. MYND/AÐSEND
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Atlantic Airways (DKK) 144,00 -5,9% 0,0%
Bank Nordic (DKK) 110,00 -15,4% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 244,00 -6,9% 3,8%
Fjarskipti (Vodafone) 32,80 20,4% 5,3%
Hagar 42,10 9,6% 0,8%
Icelandair Group 17,90 -1,6% 1,1%
Marel 111,00 -16,5% 6,2%
N1 17,05 -9,8% 3,3%
Nýherji 3,49 -4,4% 0,0%
Reginn 16,60 6,8% 0,6%
Tryggingamiðstöðin 29,60 -7,6% -0,5%
Vátryggingafélag Íslands 9,70 -10,1% 1,0%
Össur 250,00 9,2% -0,8%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1.189,23 -5,6% 2,4%
First North Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Century Aluminum 1150,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 21,40 61,5% 9,7%
HB Grandi 31,00 40,9% 3,3%
Sláturfélag Suðurlands 1,22 0,0% 0,0%
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
FJARSKIPTI
20,4% frá áramótum
FJARSKIPTI
5,3% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
MAREL
-16,5% frá áramótum
ÖSSUR
0,8% í síðustu viku
9
2
3
Miðvikudagur 10. apríl
➜ Efnahagslegar skammtímatölur í
apríl 2014
➜ Aðalfundur Regins hf. 2014
Föstudagur 11. apríl
➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir
➜ Þjóðhagsspá
➜ Bréf í Sjóvá tekin til viðskipta.
Þriðjudagur 15. apríl
➜ Fjármálastöðugleiki 2014
➜ Atvinnuleysistölur fyrir mars
Miðvikudagur 16. apríl
➜ Samræmd vísitala neysluverðs í
mars 2014
➜ Fiskafli í mars 2014
Þriðjudagur 22. apríl
➜ Vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu
Miðvikudagur 23. apríl
➜ Upplýsingar um leiguverð
íbúðarhúsnæðis
➜ Vinnumarkaður í mars 2014
➜ Verðmæti sjávarafla janúar-
desember 2013
➜ Vísitala byggingarkostnaðar fyrir
maí 2014
➜ Mannfjöldinn á 1. ársfjórðungi
2014
Save the Children á Íslandi