Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 24
| 6 9. apríl 2014 | miðvikudagur
Spá AGS um hagvöxt í heiminum árið 2014
Minna en 0%
0%-1%
1%-2%
2%-4%
4%-6%
6% eða hærra
Ekki næg gögn
Heimshagkerfið er að styrkjast
en ógn stafar af mjög lágri verð-
bólgu og útflæði fjármagns frá
vaxandi hagsvæðum samkvæmt
nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins (AGS) sem kynnt var
í gær.
Sjóðurinn býst við því að
heimshagkerfið vaxi um 3,6 pró-
sent á þessu ári og 3,9 prósent
árið 2015, en var þrjú prósent á
síðasta ári. Þessar tölur eru rétt
um 0,1 prósenti undir þeim spám
sem sjóðurinn birti í janúar.
ÞRÓAÐRI RÍKI Í VEXTI
Þessi aukning er aðallega drifin
áfram af miklum vexti í þróaðri
hagkerfum, þar með eru talin
Bandaríkin og Bretland, og hóf-
legum bata hjá þeim átján ríkj-
um er nota evruna.
Hins vegar er gert ráð fyrir að
þróunarlöndin, sér í lagi Rúss-
land, Brasilía og Suður-Afríka,
muni vaxa mun hægar en Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn spáði
fyrir þremur mánuðum. Hag-
kerfi Rússlands muni líklegast
þjást vegna deilna við Banda-
ríkin og Evrópu vegna Úkraínu.
Önnur þróunarríki munu kljást
við háa vexti, sem er ætlað að
berjast við verðbólgu en hægja
á vexti.
Í skýrslu sjóðsins má sjá upp-
færslu á vaxtaspánni fyrir Bret-
land, Þýskaland og Spán. Sjóð-
urinn sér fram á að evrusvæðið
vaxi um 1,2 prósent á árinu 2014
og 1,5 prósent á árinu 2015 eftir
að hafa minnkað um 0,5 prósent
á síðasta ári. Báðar spár eru rétt
um 0,1 prósenti hærri en janú-
arspá sjóðsins var. AGS breytti
ekki spá sinni fyrir Bandaríkin
og spáir enn 2,8 prósenta vexti
á þessu ári og þriggja prósenta
á árinu 2015.
MEIRI OG ÚTBREIDDARI BATI
„Efnahagsbatinn […] er ekki að-
eins að verða meiri heldur einn-
ig útbreiddari,“ sagði Olivier
Blanchard, aðalhagfræðingur
AGS, á blaðamannafundi vegna
skýrslunnar í gær.
Bandarísku og evrópsku hag-
kerfin eru að hagnast á niður-
skurði smærri hagkerfa og
skattahækkana þeirra sagði
Blanchard einnig. Bankar
væru að bæta fjármálin hjá sér
og fjárfestar eru viljugri til að
kaupa evrópsk ríkisskuldabréf.
Spáin fyrir Japan er að það
vaxi um 1,4 prósent á næsta ári,
sem er minna heldur en spáin
í janúar sagði til um, sem var
1,7 prósent og telur sjóðurinn
að talan verði komin niður í eitt
prósent á árinu 2015. Þar vega
þyngst háir söluskattar.
Vöxturinn í Kína, sem er
næststærsta hagkerfi heims-
ins, verður í áframhaldandi
niðursveiflu, en hafði verið á
miklum hraða fyrir nokkrum
árum. Það mun hafa mikil áhrif
á mörg ríki sem flytja út hrá-
vöru í kínverskar verksmiðjur.
Vöxturinn í Kína er áætlaður 7,5
prósent á þessu ári og 7,3 pró-
sent á því næsta.
MINNA AF KRÍSUANDRÚMSLOFTI
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og
systurstofnunin, Alþjóðabank-
inn, munu halda vorfundi sína í
Washington um helgina þar sem
fjármálaráðherrar og seðla-
bankastjórar G-20 ríkjanna
munu hittast. Aðalmálefnin
sem sjóðurinn leggur áherslu á
í skýrslu sinni verða á dagskrá
fundanna, eins og lág verðbólga.
Þrátt fyrir það er talið að fund-
irnir verði án krísuandrúms-
loftsins sem einkennt hefur þá
eftir efnahagshrunið.
„Miðað við undanfarin ár er
heimshagkerfið stöðugra,“ sagði
Jacob Kierkegaard, yfirmaður
hjá Peterson Institute for Int-
ernational Economics í samtali
við fréttastofu AP. „Þetta verð-
ur árlegur fundur sem verð-
ur aðallega um framkvæmd og
langtímaáætlanir“ frekar en
skammtímaaðgerðir.
Sérfræðingar telja þó að emb-
ættismenn frá Evrópu, sér-
staklega frá Seðlabanka Evr-
ópu, muni verða fyrir pressu
við að létta á lágri verðbólgu.
Christ ine L agarde, fram-
kvæmdastjóri AGS, hvatti bank-
ann í síðustu viku til að ráðast
Heimshagkerfið styrkist þrátt fyrir
ýmsar ógnir segir í hagspá AGS
Hagvöxtur á Íslandi fer úr 2,9 prósentum á árinu 2013 í 3,1 prósent á árinu 2015 samkvæmt nýrri hagspá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins. Þá fer atvinnuleysi hérlendis úr 4,4 prósentum í 3,7 prósent á sama tíma. Aðalhag-
fræðingur sjóðsins segir efnahagsbatann ekki aðeins vera að verða meiri heldur einnig útbreiddari.
BLAÐAMANNAFUNDUR AGS Olivier Blanchard er aðalhagfræðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Efnahagsbatinn
[…] er ekki aðeins
að verða meiri heldur
einnig útbreiddari.
Olivier Blanchard, aðalhagfræðingur AGS
VIÐTAL
Fanney Birna Jónsdóttir |
fanney@frettabladid.is