Fréttablaðið - 09.04.2014, Blaðsíða 32
KYNNING − AUGLÝSING
Opinn kynningarfundur
MPM-námsins
í Háskólanum í Reykjavík
Meistaranám í verkefnastjórnun
(Master of Project Management) er nú
að hefja sitt fjórða starfsár innan Há-
skólans í Reykjavík. Námið var þróað
sem svar við þessari eftirspurn og frá
árinu 2007 hafa á þriðja hundrað ein-
staklingar útskrifast með MPM-gráðu.
Þeir eru í dag eftirsóttir starfskraftar
í hvers kyns fyrirtækjum og stofnun-
um á Íslandi og erlendis. MPM-nám-
ið er afrakstur íslensks þróunarstarfs
og þar er blandað saman þáttum sem
lúta að verkefnastjórnun, samskiptum
og eiginleikum einstaklinga og teyma
og síðast en ekki síst að stefnumiðaðri
stjórnun, ferlum og verklagi í rekstri
fyrirtækja. Sú mikla áhersla sem í
MPM-námi er lögð á áætlanagerð,
eftirfylgni, ferlisnálgun, samskipti,
deilustjórnun, styrkleika og veikleika
einstaklinganna og samspil í vinnu-
teymum, er grundvölluð á reyndri og
klassískri þekkingu en einnig á nýj-
ustu rannsóknum á verkefnastjórn-
un, sem fara fram í atvinnulífinu og í
háskólum. Þessari áherslu hefur verið
vel tekið og MPM-námið hefur á stutt-
um tíma áunnið sér fastan sess og
námið er eftirsóttur kostur fyrir alla
þá sem vilja auka möguleika sína á at-
vinnumarkaði og skapa sér forskot í
atvinnuleit eða tryggja stöðu sína og
opna nýjar dyr í starfsþróun. Stærð
nemendahópa er stillt í hóf og trygg-
ir það að samskipti eru persónuleg og
góður tími gefst til samtals í tímum og
þróunar sérhvers nemanda. Kennarar
koma frá Evrópu og Bandaríkjunum,
auk Íslands, og eiga það sammerkt að
vera reyndir fræðimenn og fyrirlesar-
ar og með mikla reynslu. Meðal nýrra
íslenskra kennara í náminu eru dr.
Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi
rektor HR, og dr. Ásbjörg Kristinsdótt-
ir sem starfar hjá Landsvirkjun. Er-
lendir kennarar í náminu koma meðal
annars frá Stanford University, Sloan
School of Management við MIT og
Heriot-Watt í Edinborg. MPM-nám-
ið er ómetanleg reynsla; krefjandi en
afar skemmtilegt nám þar sem saman
koma kraftmiklir og metnaðarfull-
ir einstaklingar úr ýmsum faggrein-
um og njóta handleiðslu frábærra
kennara um fjögurra missera skeið og
mynda fagleg og félagsleg tengsl sem
eru verðmæt í atvinnulífinu. Náminu
er ætlað að vera samhliða vinnu og fer
kennsla fram aðra hverja helgi, föstu-
dag og laugardag, auk þess sem kennt
er nokkur fimmtudagskvöld á önn.
Á fjórða og síðasta misseri þess
vinna nemendur sjálfstætt að loka-
verkefnum undir handleiðslu leið-
beinenda. Nemendur skila niðurstöð-
um sínum í formi ráðstefnugreina
og kynna rannsókn sína á árlegri út-
skriftarráðstefnu, Vor í íslenskri verk-
efnastjórnun, þar sem fjallað er um
nýjar rannsóknir á sviðum verkefna-
stjórnunar. Á síðasta ári voru sex
greinar einnig kynntar á árlegri ráð-
stefnu Alþjóðasamtaka verkefna-
stjórnunarfélaga (IPMA) á Krít, og í ár
voru fimm nemendaverkefni kynnt á
sömu ráðstefnu í Dubrovnic í Króatíu.
Vor í íslenskri verkefnastjórnun verð-
ur næst haldin 23. maí nk.
Meistaranám í verkefnastjórnun (MPM)
Tinna Lind
Gunnars
MPM heldur
fyrirlestur
hjá IPMA í
Króatíu.
Ósk
Sigurðardóttir
MPM heldur
fyrirlestur
hjá IPMA í
Króatíu.
Verkefnastjórnun hefur þróast úr því að
vera tæki sem tæknimenn notuðu til að
halda utan um verklegar framkvæmd-
ir, í að verða alhliða stjórnunaraðferð
sem fyrirtæki og stofnanir kjósa að beita
til að koma hlutum í verk. Þessi þróun
hefur verið mjög hröð og hún er í sam-
ræmi við vaxandi hraða breytinga í sam-
félaginu. Neytendur gera sífellt meiri
kröfur um hraðari viðbragðstíma og
því þurfa fyrirtæki sífellt að innleiða ný
verkfæri og aðferðir. Þau þurfa að þróa
vörur og þjónustu og bæta aðferðir sínar
og verklag með hröðum og hagkvæm-
um hætti; tryggja meiri getu til að skila
vörum og þjónustu af réttum gæðum
til viðskiptavinanna, á réttum tíma og
innan kostnaðaráætlunar. Síðast en ekki
síst þurfa þau að skapa sér framtíðarsýn
í hinu síbreytilega viðskiptaumhverfi
og fylgja henni eftir með markvissum
hætti. Þau fyrirtæki sem búa yfir menn-
ingu og innviðum til að koma hlutum
í verk lifa af. Hin eru dæmd til að drag-
ast aftur úr í samkeppni og lognast út af,
nema þau taki sig á.
Markviss verkefnastjórnun er því lykill
að árangri og nauðsynleg kjarnaþekking í
sérhverju nútímalegu fyrirtæki og stofn-
un. Hún hefur á fáum árum orðið eftir-
sóttur færni- og þekkingarþáttur á feril-
skrá fólks.
Verkefnastjórnun stjórnunaraðferð 21. aldarinnar
Verefnastjórnun er nú nýtt í öllum greinum
atvinnulífs
HVERS VEGNA MPMNÁM VIÐ
HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK?
● MPM-námið veitir yfirgripsmikla þekkingu á verkefna-
stjórnun sem stjórnunaraðferð.
● Verkefnastjórnun er lykilaðferð félaga, fyrirtækja og
stofnana til að ná markvissum árangri.
● Eftirspurn eftir fólki með sérþekkingu á sviði verkefna-
stjórnunar er að stóraukast um allan heim.
● Námið veitir víðtæka þekkingu á þeim þáttum
verkvísinda sem hafa verkefnastjórnun að viðfangi sínu
og þjálfar beitingu þeirrar þekkingar.
● Nemendur í MPM-námi hljóta alþjóðlega vottun í
verkefnastjórnun sem veitt er af Alþjóðasamtökum
verkefnastjórnunarfélaga (International Project
Management Association (IPMA)) fyrir milligöngu
Verkefnastjórnunarfélags Íslands. Nemendur geta hlotið
IPMA- D-, C- eða B-vottun, en vottunin tekur mið bæði
af þekkingu og starfsreynslu.
HVERS VEGNA ER MPMNÁMIÐ
Í HR ALÞJÓÐLEGT NÁM?
● Við skipulag námsins eru notuð viðmið frá International
Project Management Association (IPMA), Project
Management Institute (PMI), Association of Project
Management (APM) og ISO 21500 Project Management
Standard International Standard Organization (ISO).
● Erlendir sérfræðingar á sviði verkefnastjórnunar eru
reglulega fengnir til að þróa námið.
● Stór hluti kennara eru virtir fræði- og fagmenn bæði frá
Evrópu og Bandaríkjunum.
● Nemendur hljóta alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun
(IPMA D-vottun og jafnvel C- og B-vottun).
● Námið er byggt á gagnreyndri alþjóðlegri þekkingu í
verkefnastjórnun.
● Námið tekur mið af nýjustu straumum og stefnum í
verkefnastjórnun.
● Námið býr nemendur undir að leiða og taka þátt í al-
þjóðlegum verkefnum.
● Forsvarsmenn námsins eru alþjóðlega viðurkenndir
fræðimenn á sviði verkefnastjórnunar.
● Lokaverkefni nemenda hafa verið kynnt á alþjóðlegum
ráðstefnum og hafa verið birt í alþjóðlegum vísinda-
tímaritum.
● Í úttekt á MPM-náminu hjá National Centre for Project
Management í Englandi fékk það fyrstu einkunn.
Opinn kynningarfundur MPM-námsins er öllum opinn
Föstudaginn 11. apríl kl. 12.15 í stofu M101 í Háskólanum í Reykjavík.
Á fundinum verður farið yfir skipulag, uppbyggingu og inntak
MPM-námsins. Opið er fyrir umsóknir í meistaranám í Háskólanum í
Reykjavík til 30. apríl nk. Annar kynningarfundur verður haldinn 28. apríl
nk. kl. 17.00 í stofu V101 í Háskólanum í Reykjavík.