Fréttablaðið - 09.04.2014, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Dr. Haukur Ingi Jónasson og dr. Helgi Þór Ingason, sem starfa við Tækni-
og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og eru forstöðumenn Meistara-
náms í verkefnastjórnun (MPM-námsins), sitja ekki auðum höndum. Á
síðustu misserum hafa þeir gefið út fjölda bóka á sviði stjórnunar. Ný-
lega gáfu þeir út bókina Project Ethics, en útgefandi hennar er Gower/
Ashgate sem er með virtari útgáfufyrirtækum á sviði stjórnunarfræða. Í
tengslum við bókina var opnuð heimasíðan projectethics.is
Í samstarfi við JPV útgáfu hafa þeir gefið út fjór-
ar bækur: Leiðtogafærni: Sjálfskilningur, þroski,
þróun, Samskiptafærni: Samskipti, hópar, teymis-
vinna, Stefnumótunarfærni: Markmið, stefna, leið-
ir og Skipulagsfærni: Verkefni, vegvísar, viðmið
um undirbúning, framkvæmd og lúkningu verk-
efna. Unnið er að þýðingu allra þessara bóka yfir
á ensku og hefur tölvuleikjafyrirtækið CCP stutt
veglega við þá þýðingu. Á þessu ári kom einnig út
bókin Markþjálfun: Vilji, vit, vissa en hana skrifar
Haukur Ingi í samstarfi við Matildu Gregersdott-
er og Arnór Má Másson.
DAGSKRÁ
08.00-08.30 Morgunmatur og
skráning.
08.30-08.40 Setning: Ragnhildur
Nielsen, formaður MPM félagsins.
08.45-09.00 Inngangur: Dr. Hilmar
Bragi Janusson, H.Í.
09.00-09.40 Margir boltar á lofti:
Verkefnastjórnun í sprotafyrir-
tækjum. Hekla Arnardóttir fjár-
festingarstjóri hjá Nýsköpunarsjóði
atvinnulífsins.
09.40-10.20 Skiptir verkefna-
stjórnun máli? Verkefnastjórnun
í innleiðingarverkefnum og
lærdómur í gegnum hraðan vöxt
í alþjóðlegu umhverfi. Áslaug S.
Hafsteinsdóttir, Meniga.
10.20-10.40 Kaffihlé
10.40-11.20 Formfesta í sveigjan-
leikanum: Áskoranir í verkefnum
Truenorth og þættir sem hafa
áhrif á velgengni þeirra. Helga
Margrét Reykdal, Truenorth.
11.20-12.00 Augun á áhrifunum:
Flókin viðfangsefni í alþjóð-
legri starfsemi kalla á öfluga
verkefnastjórnun. Guðmundur Örn
Óskarsson, CIO Alvogen
12.00-12.15 Lokahugleiðing:
Allir eru glaðir og allir eru að tala
um … Heiða Kristín, Björt framtíð og
Besti flokkurinn.
12.15-12.20 Ráðstefnulok:
Formaður MPM félagsins.
Ráðstefnustjóri: Tinna Lind
Gunnarsdóttir, leikari og MPM
Verkefnastjórnun í hröðum vexti
MPM félagið í samstarfi við MPM-nám Háskólans í Reykjavík og Verkefnastjórn-
unarfélag Íslands (VSF) heldur ráðstefnuna VERKEFNASTJÓRNUN Í HRÖÐUM VEXTI
fimmtudaginn 10. apríl 2014 á Nauthól í Nauthólsvík.
MPM-nemendur vinna margháttuð
verkefni í tengslum við nám sitt.
Mynd tekin á trúðanámskeiði 2014.
Óskalistinn: Leikur til að auka og efla fjármálalæsi
unglinga
Nýr leikur til að auka áhuga unglinga á eigin fjármál-
um. Leikurinn spannar tveggja mánaða tímabil þar
sem ýmsar freistingar verða á vegi nemenda. Ímynd-
aðar persónur taka fjárhagslegar ákvarðanir og í lokin
sjást áhrif eyðslunnar á óskalista þeirra.
Fræðslumyndband um Barnaspítala Hringsins fyrir
foreldra og börn
Myndbandið fjallar um það hvernig er að koma í
aðgerð á spítalanum. Því er ætlað að vera fyrsta
myndbandið af mörgum sem foreldrar og börn geta
skoðað fyrir innlögn eða á meðan á sjúkrahúsvist
stendur.
Þorir þú að vera fatlaður?
Keppnisviðburður til styrktar Reykjadal, þar sem
sumarbúðir fyrir fötluð börn eru reknar af Styrkt-
arfélagi lamaðra og fatlaðra (SLF). Fyrirtæki keppa í
hjólastólaspretti og hjólastólahandbolta og skemmti-
atriði verða í boði. Keppnin verður í Laugardalshöll
24. apríl, kl. 13-17.
Kynnar verða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Sig-
urbjörn Árni Arngrímsson og Adolf Ingi Erlingsson.
Skráning er á hvati@slf.is.
Stefnumótun fyrir Film in Iceland
Film in Iceland er verkefni á vegum atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins sem Íslandsstofa annast.
Markmiðið er að markaðssetja Ísland sem vænlegt
tökuland, en ríkissjóður endurgreiðir 20% af kostn-
aði við framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis hér.
Film in Iceland er hlutlaus aðili sem útvegar lista yfir
innlenda þjónustuaðila fyrir tökur eða eftirvinnslu.
Auglýsingarátak SAMAN hópsins sumarið 2014
SAMAN hópurinn er grasrótarhreyfing aðila sem
vinna að forvörnum fyrir börn og unglinga. Rann-
sóknir sýna að samvera foreldra og barna er ein besta
forvörnin. Gerðar verða auglýsingar þar sem lögð er
áhersla á samveru fjölskyldunnar og þær birtar á sam-
félagsmiðlum.
Vefsíðan www.icbguru.com
Árlega þreyta tugþúsundir einstaklinga um allan
heim próf til D-vottunar á vegum Alþjóðasamtaka
verkefnastjórnunarfélaga (IPMA). Prófað er úr hug-
takalykli IPMA, ICB3, sem inniheldur 46 lykilhugtök
verkefnastjórnunar. Þrátt fyrir að efnið sé áhugavert
er framsetning þess þurr. Verkefnið snýst um að setja
upp vefsíðuna www.icbguru.com þar sem efnið er út-
skýrt á faglegan og lifandi máta.
Nemendur í MPM-námi við vinnu sína.
VERKEFNI
Í ÞÁGU
SAMFÉLAGS
MPM-námið við Háskólann í Reykjavík
hefur þá stefnu að nemendur vinni verkefni sem
þjóni samfélaginu á einhvern hátt. Markmiðið er að
kenna hönnun, áætlanagerð og eftirfylgni í hvaða
verkefni sem er. Bæði er góðu komið til leiðar og það
er hvetjandi að vinna að viðfangsefnum sem nýtast
vel. Mörg verkefnanna hefðu ekki orðið að veruleika
nema vegna vinnuframlags og sérfræðiþekkingar
MPM-nemenda.
Nemendur í
MPM-námi
skipuleggja sig.
Helgi Þór og
Haukur Ingi,
höfundar
Project Ethics.
Project Ethics gefin út í
Englandi og Bandaríkjum
Ókeypis fyrir félaga
í MPM félaginu og nema í
MPM-námi við HR.
Félagar í Verkefnastjórnunar-
félagi Íslands greiða 3.000 kr.
Aðrir greiða 6.500 kr.
Skráning á ráðstefnuna fer fram á
www.mpmfelag.is
Félagar í VSF skrá sig á vsf.is
Ráðstefnan er öllum opin!