Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 44

Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 44
 | 10 9. apríl 2014 | miðvikudagur Fyrir sirka níu árum urðum við félagarnir í vinahópnum okkur úti um bjórkút og gamla bjórdælu. Úr varð ágætis partí. Þegar húsið var farið að fyllast kom í ljós að dælan virkaði ekki sem skyldi. Við áttum nóg af bjór en komum honum ekki á leiðarenda í glær plastglös gestanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengu þeir nánast ekkert annað en hnausþykka og hvíta froðu. Þetta froðupartí kom upp í hugann um daginn þegar stjórnendur Landsnets undirstrikuðu á kynningarfundi fyrirtækisins hversu mikilvægt það er að flutningskerfi raf- orku hér á landi verði eflt. Það er nefni- lega þannig að kerfið hefur af ýmsum ástæðum ekki tekið nauðsynlegum breyt- ingum á síðustu árum. Landsnet getur því ekki flutt raforku á milli landshluta með viðunandi hætti og fyrirtæki og íbúar víða um land eru farin að finna fyrir því. Í janúar kynnti Landsvirkjun áform um orkuskerðingu til stórnotenda sökum bágs vatnsbúskapar í lónum fyr- irtækisins. Orkuskerðingin hefur nú staðið yfir í rúma tvo og hálfan mánuð og samtals kostað Landsvirkjun, Lands- net, þjóðarbúið og stórnotendur raforku milljarða. Landsvirkjun þurfti að ráðast í skerð- inguna á sama tíma og næg raforka var til á kerfum Landsnets. Á Austurlandi var til orka en það var ekki hægt að koma henni til stórnotenda fyrir sunnan og því þurftu stórkaupendur, hvar sem þeir eru staddir, að þola skerðinguna. Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði mun að öllum líkindum tapa yfir einum millj- arði króna þrátt fyrir að vatnsstaðan í Hálslóni, miðlunarlóni Kárahnjúkavirkj- unar, hafi verið ágæt. Álframleiðandinn þurfti einnig að draga úr framleiðslu í maí í fyrra þegar tilkynnt var um orku- skerðingu sem aldrei varð af. Sama hvar við stöndum í virkjunarmálum hljótum við öll að vera sammála um að sú orka sem þegar hefur verið virkjuð, með tilheyrandi áhrifum, þarf að komast til not- enda svo úr henni sé hægt að skapa verðmæti. Allt annað er vanvirðing við umhverfið og þá íbúa landsins og aðrar lífverur sem orðið hafa fyrir áhrifum af virkjunarfram- kvæmdum síðustu áratuga. Staðreyndin er hins vegar sú að ríkisstjórnin og fyrir- rennarar hennar hafa ekki mótað skýra stefnu í þessum málum. Þegar flutningsgetan er eins takmörkuð og raun ber vitni er allt tal ráðamanna og viljayfirlýsingar um frekari uppbyggingu orkufreks iðnaðar hér á landi ekkert annað en hnausþykk og hvít froða. Það er mikilvægt að sú orka sem búið er að virkja komist til notenda: Ekkert nema froða Sama hvar við stöndum í virkjunar- málum hljótum við öll að vera sammála um að sú orka sem þegar hefur verið virkjuð, með tilheyrandi áhrifum, þarf að komast til notenda svo úr henni sé hægt að skapa verð- mæti. Markaðshornið Haraldur Guðmundsson haraldurg@frettabladid.is Innheimtulausn fyrir framsækin fyrirtæki Vandræðalaus viðskipti Mynta er nútímalegt innheimtukerfi fyrir fyrirtækið þitt. Mynta býður kröfuhöfum upp á fruminnheimtu, milliinnheimtu, lög- innheimtu og kröfuvakt. Öll umsjón með þinni innheimtu er á einum stað og allt ferlið er fyrirtækinu þínu að kostnaðarlausu! Við viljum að þín viðskipti verði vandræðalaus. www.mynta.is Sími 569 2000 Finndu stystu leiðina: Stærsta upplýsingatæknifélag Evrópu á markað í kauphöllinni í Madrid á Spáni BJÖLLUNNI HRINGT Stofnandi upplýsingatæknifélagsins eDream Odigeo, Javier Perez-Tenessa, hringdi bjöllunni í kauphöllinni í Madrid á Spáni í gær þegar fyrir- tækið fór á markað. Perez-Tenezza stofnaði einnig hin farsælu félög Go Voyages og Opodo en eDreams er stærsta skráða upplýsingafélag í Evrópu þegar kemur að hagnaði en félagið var í gær metið á 1,1 milljarð evra eða jafngildi rúmlega 170 milljarða íslenskra króna. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.