Fréttablaðið - 09.04.2014, Page 52
„Sýningin tekur einn og hálfan tíma í flutningi og
það er ekkert hlé. Umfjöllunarefnið er heitt mál en
ótrúlega flókið og okkur fannst upplagt að nota leik-
húsmiðilinn til að opna á það. Fyrir utan það er þetta
gott verk og vel skrifað. Höfundurinn nálgast efnið
þannig,“ segir Tinna Hrafnsdóttir leikstjóri verksins
Útundan eftir Alison Farina McGlynn, sem frumsýnt
verður í Tjarnarbíói annað kvöld klukkan 20. Þar er
tekið á aðstæðum sem hrjá eitt af hverjum sex pörum
hér á landi og í hinum vestræna heimi, að eiga í erfið-
leikum með að eignast barn. Leikritið vakti sterk við-
brögð og hlaut góða dóma þegar það var frumsýnt í
Bretlandi. Tinna segir viðbrögð þeirra sem hafa séð
Útundan á æfingum einnig jákvæð. „Margir þekkja
einhverja sem glíma við barnleysi. En þó svo sé ekki
er auðvelt að tengja sig við persónur verksins því öll
þurfum við að yfirstíga einhverjar hindranir í lífinu.
Svo er heilmikill húmor þarna líka þannig að það leið-
ist örugglega engum,“ segir hún.
Háaloftið stendur að sýningunni og leikarar í því
eru Arnmundur Ernst Backman, Benedikt Karl
Gröndal, Björn Stefánsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir,
Magnús Guðmundsson, María Heba Þorkelsdóttir og
Svandís Dóra Einarsdóttir. gun@frettabladid.is
Heitt mál en ótrúlega fl ókið
Í verkinu Útundan, sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói annað kvöld klukkan 20,
er skyggnst inn í líf þriggja para sem þrá að eignast barn en tekst það ekki.
„Við köllum okkur „hin svokölluðu
skáld“. Þó við vinkum „listaskáld-
unum vondu“ sem fylltu Háskólabíó
árið 1976 þá stelum við ekki nafninu
þeirra, bara notum sama sal og stel-
um kynninum þeirra,“ segir Bjarki
Karlsson, einn þeirra sem standa
fyrir ljóðadagskrá í Háskólabíói á
laugardaginn klukkan 14.
Bjarki segir um háttbundinn
kveðskap verða að ræða. „Við stuðl-
um allt og rímum flest. Erum sem
sagt hvorki atómskáld né póstmód-
ernistar heldur beitum þessum
fornu stílbrögðum á persónulegan
hátt og tölum við samtíma okkar,
ekki fortíðina. Við getum kallað
þetta nýtt vín á gömlum belgjum.“
Þið kallið ykkur „hin svokölluðu
skáld“. Er ekki minnimáttarkennd
í því gagnvart þeim sem nota hið
frjálsa form?
„Nei, þetta er svipað og það er
talað um „hið svokallaða hrun“, við
erum einmitt með nafninu að gefa
í skyn að við séum aðeins meira en
„svokölluð“.“
Salurinn í Háskólabíói tekur um
það bil eitt þúsund manns í sæti.
„Þetta er kannski svolítill glanna-
skapur hjá okkur en okkur bara
datt þetta í hug og höfum enga
styrki fengið, hvorki frá ríki né borg
og við ætlum að selja inn. Ef eng-
inn mætir þá bara töpum við sjálf,“
segir Bjarki. „En fólk borgar inn á
leiksýningar, dans, myndlist og tón-
leika. Við vonumst til að ljóðið geti
notið sömu virðingar og aðrar list-
greinar að því leyti að fólk sé tilbúið
að opna budduna vegna þess,“ segir
Bjarki. gun@frettabladid.is
Hin svokölluðu skáld
Tíu manna hópur ungra skálda fl ytur verk sín í Háskólabíói á laugardaginn
klukkan 14 og fetar þar í fótspor „listaskáldanna vondu“ fyrir 38 árum.
Davíð Þór Jónsson, Sigrún Haraldsdóttir, Valdimar Tómasson, Teresa
Dröfn Njarðvík, Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Snæbjörn Ragnarsson
(Bibbi í Skálmöld), Þórunn Erlu Valdimarsdóttir, Örlygur Benediktsson,
Eva Hauksdóttir og Bjarki Karlsson.
Kynnir er Sigurður Karlsson, leikari og þýðandi.
HIN SVOKÖLLUÐU SKÁLD
SKÁLD „Við vonumst til að ljóðið geti notið sömu virðingar og aðrar listgreinar að
því leyti að fólk sé tilbúið að opna budduna vegna þess,“ segir Bjarki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á ÆFINGU Í Útundan er tekið á aðstæðum sem hrjá eitt af
hverjum sex pörum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KATLA MANAGER SELECTION
Société d'Investissement à Capital Variable
14, boulevard Royal – L-2449 LUXEMBOURG
R.C.S. Luxembourg B 72.942
(the „SICAV“)
ANNUAL GENERAL MEETING OF SHAREHOLDERS
The Board of Directors is pleased to convene the shareholders of KATLA MANAGER SELECTION to attend the
annual general meeting to be held at the registered office of the SICAV on 28 April 2014 at 11.00 a.m. with the
following agenda:
1. Report of the Board of Directors and of the approved statutory auditor
2. Approval of the annual accounts as at 31 December 2013
3. Allocation of the results
4. Discharge to the directors
5. Renewal of the mandate of the approved statutory auditor
6. Statutory elections
7. Miscellaneous
The shareholders are advised that no quorum for the statutory general meeting is required and that decisions
will be taken by simple majority of the votes cast. Proxies are available at the registered office of the SICAV.
Shareholders, who wish to attend the annual general meeting, are requested to inform the Board of Directors
(Fax nr: +352 49 924 2501 – ifs.fds@bdl.lu) at least five calendar days prior to the annual general meeting.
UU.IS/SOL/TENERIFEÚRVAL ÚTSÝN SÓL
TENERIFE
23. apríl – 2. maí
HLÍÐASMÁRA 19, KÓP. | S. 585 4000 | UU.IS
HOVIMA JARDIN CALETA
Íbúð með 1 svefnherbergi með morgunverði.
FRÁ 87.585 KR.
á mann m.v. tvo fullorðna og 2 börn.
Verð 99.900 kr. á mann miðað við 2 fullorðna.
+ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + +
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
+
++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Dala-Brie er kominn i nýjar umbúðir
og er enn jafngóður a agðið. L júfur og mildur
hvítmygluostur sem hentar við öll tækifæri.
Flour úr
Dölunum
MENNING
9. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR