Fréttablaðið - 28.04.2014, Side 2
28. apríl 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SKIPULAGSMÁL „Það er talað um að
sækja fram í alls konar ferðaþjón-
ustu en þegar menn eru með góðar
hugmyndir þá ganga þeir bara á
veggi,“ segir Guðmundur R. Lúð-
víksson, sem skikkaður hefur verið
til að fjarlægja póstkassa jólasvein-
anna úr göngugötunni á Akureyri.
Guðmundur setti póstkassa jóla-
sveinanna upp á göngugötunni
fyrir ári. Sams konar póstkassi er
við Litlu jólabúðina á Laugavegi
og kassi var einnig í stuttan tíma
í Leifsstöð.
Póstkassarnir virka þannig að
keypt eru sérstök kort á um 1.500
krónur sem fyllt eru út með nöfn-
um barna og óskum til jólasveins-
ins og síðan sett í póstkassana.
Guðmundur segir sig og eiginkonu
sína síðan svara hverju bréfi sam-
viskulega og láta litla gjöf frá jóla-
sveininum fylgja.
„Við fengum á þriðja þúsund bréf
í fyrra. Að lesa þau er alveg ótrú-
legt. Fólk hrósar landinu mikið og
er að opna sig algerlega fyrir jóla-
sveininum. Það segir frá ástar-
ævintýrum og skilnuðum. Ein
missti manninn sinn en ákvað
samt að koma til Íslands og bað um
bréf frá jólasveininum. Þetta er
alveg magnað og hugmyndin var
að geyma bréfin fyrir bók seinna
meir,“ segir Guðmundur.
Skipulagsnefnd Akureyrar
hefur nú hafnað ósk Guðmundar
um áframhaldandi leyfi fyrir
póstkassa jólasveinanna í göngu-
götunni. „Skipulagsnefnd telur
frágangi og umsjón póstkass-
ans ábótavant,“ segir í afgreiðslu
nefndarinnar, sem gefur Guðmundi
frest til 1. maí til að fjarlægja kass-
ann.
Guðmundur segir þetta koma
sér spánskt fyrir sjónir. Hann hafi
aldrei fengið athugasemdir um
póstkassann.
„Við reyndum líka að fá leyfi
frá Reykjavíkurborg til að vera
með einn kassa en það var eins
og að tala við karlinn í tunglinu.
Það speglast í þessari afgreiðslu á
Akureyri,“ segir Guðmundur sem
kveður atvinnuveg geta falist í
að svara bréfum til jólasveinsins.
„Það er skemmtilegt að fólk geti
sest niður og skrifað bréf til jóla-
sveinsins og fengið svo kveðju og
litla gjöf fyrir jólin kannski sjö
mánuðum síðar.“
gar@frettabladid.is
Jólasveinarnir missa
póstkassa á Akureyri
Skipulagsnefnd Akureyrar neitar að framlengja stöðuleyfi fyrir póstkassa jólasvein-
anna í göngugötu bæjarins. Eigandinn segir mikla möguleika felast í hugmyndinni
en að samskiptin við stjórnsýsluna séu eins og að tala við karlinn í tunglinu.
JÓLASVEINAPÓSTUR Í miðri göngugötunni á Akureyri er tilvist póstkassa jólasvein-
anna að renna sitt skeið á enda eftir eins árs stöðuleyfi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ein missti manninn sinn en ákvað
samt að koma til Íslands og bað um bréf frá
jólasveininum.
Guðmundur R. Lúðvíksson,
eigandi póstkassa jólasveinanna.
SAMGÖNGUR Brúin yfir Lagarfljót
við Egilsstaði er í hættu að sögn
bæjarráðs Fljótsdalshéraðs.
„Aukið vatnsmagn í Lagarfljóti
og ísmyndun við brúna hefur leitt
af sér raunverulegar áhyggjur
af því að brúin geti við tilteknar
aðstæður verið í hættu með alvar-
legum afleiðingum, ekki síst þar
sem vatnslagnir og rafmagns- og
gagnakaplar liggja um brúna,“ segir
í umsögn bæjarráðsins um þings-
ályktunartillögu um fjögurra ára
samgönguáætlun 2013-2016.
„Sveitarfélagið leggur áherslu á
að gert verði ráð fyrir gerð nýrrar
brúar yfir Lagarfljót á samgöngu-
áætlun,“ segir bæjarráðið. Einnig
er lögð áhersla á önnur samgöngu-
verkefni. Meðal þess er stækkun
flughlaða við Egilsstaðaflugvöll
og gerð Fjarðarheiðaganga, milli
Héraðs og Seyðisfjarðar. „Ljóst er
að bæði Fljótsdalshérað og Seyðis-
fjörður myndu hafa verulegan ábata
af gerð ganganna enda um að ræða
nauðsynlega samgöngubót sem
styðja myndi við atvinnulíf.“ - gar
Veiting Jöklu yfir í Lagarfljót hefur áhrif á samgöngur og fjarskipti á Héraði:
Vatn og ís ógnar Lagarfljótsbrú
Unnur, er gaman að grínast
svona fyrir gigg?
„Stundum, fyrir gigg, er gott að
grínast.“
Tónlistarkonan Unnur Birna Björnsdóttur
hefur að undanförnu birt skemmtileg mynd-
bönd á Facebook-síðu sinni, þar sem hún
gerir létt grín að tónlistarbransanum.
LÖGREGLUMÁL Ríkissaksóknari hefur enn ekki fengið
krufningarskýrslu frá réttarmeinafræðingi vegna rann-
sóknar embættisins á atviki í Hraunbæ í desember þar
sem lögreglumenn skutu mann til bana.
Rannsóknin er þrátt fyrir það langt komin og má
búast við niðurstöðu innan nokkurra vikna, segir Sig-
ríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari í skriflegu svari
við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Hún segir að undanfarin ár hafi verið talsvert löng
bið eftir krufningarskýrslum þar sem réttarmeinafræð-
ingurinn sem hefur sinnt þeim er þýskur og hefur ekki
búið hér á landi, auk þess sem hann hefur haft önnur
verkefni á sinni könnu.
„Þessi bið er og hefur verið bagaleg,“ segir Sigríður.
Hún segir þetta standa til bóta, enda hafi nýr réttar-
meinafræðingur búsettur hér á landi tekið við keflinu.
„Ég vona að gerð krufningarskýrslna taki styttri tíma
í framtíðinni.“
Þýski réttarmeinafræðingurinn var þó enn við störf
þegar maðurinn í Hraunbæ lést, og þarf hann því að
klára sína skýrslu um krufninguna. „Mér skilst að
skýrslan sé við það að líta dagsins ljós,“ segir Sigríður.
Ríkissaksóknari rannsakar hvort aðgerðir lögreglu í
og við Hraunbæ 20 þann 2. desember síðastliðinn hafi
verið í samræmi við lög og verklagsreglur lögreglu um
beitingu skotvopna. Lögreglumenn skutu til bana 59
ára karlmann sem hafði skipst á skotum við lögreglu
og meðal annars hæft hjálm eins lögreglumanns. Mað-
urinn hafði átt við geðræn vandamál að stríða. - bj
Rannsókn ríkissaksóknara á skotárás mun taka nokkrar vikur til viðbótar:
Bið eftir krufningu gæti styst
SKOTBARDAGI Lögreglumenn skiptust á skotum við 59 ára
mann í Hraunbænum í desember. Lögreglumenn skutu mann-
inn að endingu til bana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LAGARFLJÓTSBRÚ Við vissar aðstæður
er brúin í hættu segja Héraðsbúar sem
vilja nýja brú. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNING „Vitið þið hvað? Þetta eru síðustu tónleikarnir okkar áður en
við fljúgum til Danmerkur til að sigra í Eurovision,“ sagði Heiðar Örn
Kristjánsson, gítarleikari og söngvari í Pollapönki, við unga aðdáendur á
tónleikum sem haldnir voru fyrir börn á Fróni á Selfossi á laugardag.
Sveitin, ásamt fylgiliði, þar á meðal Óttari Proppé, tónlistarmanni og
þingmanni, flaug út aðfaranótt sunnudags. Snæbjörn Ragnarsson Skálm-
aldarmaður, sem líka leggur Pollapönkurum lið í bakröddum, var á tón-
leikaferðalagi og hittir félaga sína í Kaupmannahöfn. Keppnin fer fram
6., 8. og 10. maí næstkomandi. - óká
Pollapönkarar glöddu börn áður en landið var kvatt:
Farnir út að sigra í Eurovision
GLÖDDU UNGVIÐIÐ Stjörnurnar í Pollapönki stilltu sér upp með ungum aðdá-
endum á Selfossi eftir lokatónleika sína á laugardag fyrir brottför til Danmerkur að
keppa í Eurovision. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru
staðnir að tilraun til þjófnaðar í
verslun Bónus í Fitjum í Reykja-
nesbæ um hádegisbil í gær. Þeir
höfðu fyllt innkaupakerru af mat-
vælum og voru að hlaða þýfinu í bíl
þegar viðskiptavinir gerðu starfs-
fólki viðvart. Þegar þjófarnir urðu
varir við starfsmenn lögðu þeir
hlaupandi á flótta. Lögregla hand-
samaði annan við Víkingaheima.
Lögreglan á Suðurnesjum vildi
ekki láta annað uppi um málið en að
það væri í rannsókn. - óká
Með kerrufylli af matvælum:
Gripnir við
stuld í Bónus
STJÓRNMÁL „Ég ætla að vera
áfram í Sjálfstæðisflokknum,“
sagði Ragnheiður Ríkharðsdótt-
ir, þingflokksformaður Sjálf-
stæðisflokksins, í þættinum
Sunnudagsmorgunn í gær. Hún
segist ekki ætla að ganga í nýjan
evrópusinnaðan hægriflokk en
gagnrýnir þó harðlega stefnu
flokksins í evrópumálum og
telur hana einstrengingslega.
Ragnheiður sagðist ekki gefa
mikið fyrir skrif Davíðs Odds-
sonar í Morgunblaðið. „Mér
finnst það vera svo mikil fyrir-
litning á skoðunum annarra að
ég get ekki samsamað mig með
slíku fólki.“
- hpa
Áfram í Sjálfstæðisflokknum:
Gagnrýnir
evrópustefnu
STJÓRNSÝSLA Ársfundur Byggða-
stofnunar verður haldinn í dag í
Miðgarði í Skagafirði. Á ársfundin-
um mun Sigurður Ingi Jóhannsson,
ráðherra byggðamála, skipa nýja
stjórn stofnunarinnar.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins verður ekki skipt um formann
stjórnar, sem skipaður var árið
2011 af Katrínu Júlíusdóttur, fyrr-
verandi ráðherra byggðamála.
Á fundinum verður einnig hald-
in málstofa undir yfirskriftinni
„Hvernig má svæðisskipta Íslandi
með tilliti til byggðaaðgerða?“
Hagnaður af rekstri Byggða-
stofnunar var 189 milljónir árið
2013.
- sa
Ársfundur Byggðastofnunar:
Ráðherra skipar
nýja stjórn
SPURNING DAGSINS
Kringlunni
heyrnarstodin.is
HEYRNARSTÖ‹IN