Fréttablaðið - 28.04.2014, Qupperneq 6
28. apríl 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
HÁTÍÐNI-
VIÐSKIPTI Á
VERÐBRÉFA-
MARKAÐI
Jim McTague
heldur fyrirlestur í Öskju, N-132
þriðjudaginn 29. apríl. kl.12-13:30
Hann mun fjalla um forrituð viðskipti á
verðbréfamörkuðum þar sem mannshöndin
kemur hvergi nærri. Hvernig leiknum
verðbréfamiðlurum tókst að gera
verðbréfamarkaði að spilavítum án þess að
eftirlitsaðilar gætu rönd við reist.
Jim Mc Tague hefur starfað við blaðamennsku
frá 1972 og er nú ritstjóri fjármálaritsins BARON.
Hann fjallar einkum um afskipti forsetans og þingsins
í Bandaríkjunum af fjármálamarkaðnum.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!
BYGGÐAMÁL Siglfirðingum hefur
fjölgað eftir opnun Héðinsfjarðar-
ganga og byggðafesta hefur aukist
í Fjallabyggð, Þetta kemur fram í
rannsókn þeirra Þórodds Bjarna-
sonar og Kjartans Ólafssonar,
félagsfræðinga við Háskólann á
Akureyri. Rannsóknin er liður í
stærri rannsókn á samfélagsleg-
um áhrifum Héðinsfjarðarganga
á mannlíf á norðanverðum Trölla-
skaga.
Áður en göngin voru opnuð
vöruðu sömu höfundar við því að
vegna óhagstæðrar samsetningar
mannfjöldans gæti íbúum fækkað
áfram um langan tíma eftir göng,
þótt flutningsjöfnuður yrði stöð-
ugur. Fólksfækkun á sér stað á
Ólafsfirði en fólksfjölgun á Siglu-
firði vegur upp á móti fækkuninni
þar og Fjallabyggð í heild stendur
ágætlega.
„Þessar niður-
stöður eru tals-
vert jákvæðari
en við bjuggumst
við. Innlendar og
erlendar rann-
sóknir hafa sýnt
að samgöngu-
bætur sem bæta
lífskjör íbúanna
umtalsvert leiða
ekki alltaf til fólksfjölgunar. Sam-
setning mannfjöldans í Fjalla-
byggð var orðin afar óhagstæð
eftir áratuga fólksfækkun og óvíst
að ný tækifæri dygðu til að draga
nægilega margt nýtt fólk til byggð-
arlagsins,“ segir Þóroddur.
„Jafnvel þótt jafnvægi næðist
í fólksflutningum hefði hátt hlut-
fall eldri borgara og lágt hlut-
fall fólks á barneignaraldri að
óbreyttu leitt til mikillar fólks-
fækkunar. Það hefur gengið eftir
í Ólafsfirði en á Siglufirði hefur
fækkun skráðra íbúa stöðvast og
talsvert fleiri dvelja þar í raun en
áður. Það skýrist að stórum hluta
af aukinni byggðafestu fólks milli
tvítugs og fertugs, sérstaklega
meðal yngri kvenna,“ bætir Þór-
oddur við.
Ólafsfjörður stendur ekki jafn
vel og Siglufjörður. Kemur fram
í rannsókninni að uppbygging í
ferðaþjónustu hafi verið mikil
á Siglufirði en lítil sem engin í
Ólafsfirði. Einnig velta höfundar
upp þeim möguleika að ávinning-
ur Siglfirðinga að tengjast Eyja-
firði hafi verið meiri en ávinn-
ingur Ólafsfjarðar að tengjast
Siglufirði einum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
benda til þess að Héðinsfjarð-
argöngin hafi skilað árangri til
skemmri tíma. Nauðsynlegt sé
þó að fylgjast með lengur og gera
langtímarannsókn eftir um tvo
áratugi til að meta lýðfræðileg
áhrif ganganna.
sveinn@frettabladid.is
Í HÉÐINSFJARÐARGÖNGUM Vísbendingar eru um að Héðinsfjarðargöng hafi
jákvæð áhrif á byggðaþróun á norðanverðum Tröllaskaga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞÓRODDUR
BJARNASSON
Sjá skýr merki um já-
kvæða byggðaþróun
Út er komin grein fræðimanna við Háskólann á Akureyri byggð á rannsókn um
íbúaþróun í Fjallabyggð eftir opnun Héðinsfjarðarganga. Siglfirðingum fjölgar
aftur, börn fleiri á leikskólaaldri og viðhorf íbúa til áframhaldandi búsetu jákvæð.
1. Hvað kostar róðukrossinn, sem er til sölu
í Safnaramiðstöðinni?
2. Frá hvaða bæjarfélagi koma ungling-
arnir, sem kynntu svokallaða Vinaviku í
höfuðborginni um helgina?
3. Morðmál hvaða manns, rannsakar leik-
hópurinn Kriðpleir um þessar mundir?
SVÖR
VEISTU SVARIÐ?
1. 4,8 milljónir króna. 2. Frá Vopnafi rði. 3.
Mál Jóns Hreggviðssonar.
SKIPULAG „Það er óvissa um hvort að Reykjavíkurborg
sé að fara að skipulagslögum,“ segir Júlíus Vífill Ingv-
arsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Þar á hann við
samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs um skipulags- og
matslýsingar fyrir hverfaskipulag í Reykjavík.
Júlíus Vífill segir að í skipulagslögum frá 2010 sé
opnað á nýja leið varðandi hverfisskipulag, sú leið hafi
ekki verið farin fyrr en nú.
„Það er þó undantekningarregla
og mér sýnist gengið á skjön við það
sem löggjafinn lagði upp með,“ segir
Júlíus Vífill og bætir við að það sé
verið að skapa réttaróvissu með þeim
hugmyndum að uppbyggingu og þétt-
ingu byggðar sem settar eru fram í
gömlum og grónum hverfum borgar-
innar.
„Það má segja að þetta sé forsjár-
hyggja. Það er verið að skipuleggja borgina á allt annan
hátt og í allt aðrar áttir en fólk kærir sig um. Það er
verið að leggja til að byggt verði á reitum sem enginn
hafði áður hugmynd um að ætti að byggja á,“ segir Júl-
íus Vífill. Þá sé víða í borginni gengið mjög langt með
þéttingu byggðar. Til dæmis í vesturbæ Reykjavíkur.
Þar sé lögð til uppbygging á lóðum fjölbýlishúsa án
þess að þeir sem eiga hagsmuna að gæta hafi minnstu
hugmynd um hvað stendur til. „Þetta er ótrúlegur yfir-
gangur,“ segir Júlíus Vífill. - jme
Borgarfulltrúi segir að hugmyndir um þéttingu byggðar ganga of langt:
Þétting á skjön við skipulagslög
FYRIR OG EFTIR ÞÉTTINGU Svona gæti Miklabraut litið út ef
hugmyndir um þéttingu byggðar í borginni ná fram að ganga.
MYND/REYKJAVÍKURBORG
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
ÚKRAÍNA, AP Úkraínskir aðskiln-
aðarsinnar létu sænska majórinn
Thomas Johansson lausan úr haldi
í gær. Sjö evrópskum eftirlitsmönn-
um er enn haldið föngnum í Slov-
yansk. Ráðhús borgarinnar, sem er
í austanverðri Úkraínu, hefur orðið
að miðstöð aðskilnaðarsinna.
Fyrr um daginn höfðu áttmenn-
ingarnir komið fram opinberlega og
fullyrt að komið væri fram við þá á
mannúðlegan hátt.
Þeir voru handteknir á þeim for-
sendum að aðskilnaðarsinnar töldu
þá vera njósnara Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO). Þetta hefur for-
svarsmaður hópsins, Axel Schneider
þvertekið fyrir, og segir þá vera
erindreka Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu (ÖSE).
Eftir blaðamannafund í gær sást
til Johansson þar sem hann steig
upp í bifreið ÖSE og yfirgaf Slov-
yansk. Í frétt BBC um málið segir
að forsvarsmaður aðskilnaðar-
sinna hafi látið í ljós að Johansson
hafi verið sleppt vegna heilsufars-
ástæðna. - kóh
Sjö erindrekum ÖSE enn haldið föngnum í austanverðri Úkraínu:
Aðskilnaðarsinnar sleppa majór
HERBÚNINGUR AÐSKILNAÐARSINNA
Aðskilnaðarsinnar klæðast svörtum
lambhúshettum og úlpum í felulitum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Tæplega 54 þúsund
manns skrifuðu undir áskorun til
Alþingis um að þjóðaratkvæða-
greiðsla fari fram um áframhald
viðræðna við Evrópusambandið.
Söfnuninni lauk í gær. Hún
hafði þá staðið í 63 daga, einn dag
fyrir hvern þingmann á Alþingi.
Aðstandendur söfnunarinnar
segja að afhenda eigi undirskrift-
irnar um mánaðamótin. Áður en
þær verða afhentar þarf að ganga
frá nafnalistum, keyra saman við
þjóðskrá og búa til prentunar. - jme
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu:
54 þúsund
skrifuðu undir