Fréttablaðið - 28.04.2014, Síða 10
28. apríl 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Starfatorg.is
Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna
Starf Stofnun Staður Nr. á vef
Sjúkraflutningamaður Heilbrigðisstofnun Fjallabyggð Fjallabyggð 201404/278
Framhaldsskólakennarar Menntaskólinn á Egilsstöðum Egilsstaðir 201404/277
Framhaldsskólakennarar Fjölbrautaskóli Snæfellinga Grundarfjörður 201404/276
Upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnun Reykjavík 201404/275
Framhaldsskólakennarar Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ Mosfellsbær 201404/274
Sérfræðingur í reikningshaldi Seðlabanki Íslands Reykjavík 201404/273
Forðafræðingur Íslenskar orkurannsóknir Rkv./Akureyri 201404/272
Varðstjóri Lögreglustjórinn á Akureyri Akureyri 201404/271
Sérfræðingur í upplýsingatækni Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Reykjanesbær 201404/270
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður Bráðamóttaka LSH Fossvogi Reykjavík 201404/269
Sumarafl. sjúkraliða við heimahj. Heilsugæslan í Hamraborg Kópavogur 201404/268
Ljósmóðir Heilbrigðisstofnun Austurlands Neskaupst. 201404/267
Kennari á starfsbraut Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranes 201404/266
Kennari í rafvirkjun Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranes 201404/265
Starfsmaður í eldhús Sólvangur, hjúkrunarheimili Hafnarfjörður 201404/264
Sérfræðingur í fjárhagslegu eftirliti Fjármálaeftirlitið Reykjavík 201404/263
Lögfræðingur í neytendaþjónustu Fjármálaeftirlitið Reykjavík 201404/262
Lögreglumaður Lögreglustjórinn á Eskifirði Nesk./Höfn 201404/261
Lögreglumenn/ ranns.lögreglumaður Lögreglustjórinn á Selfossi Selfoss 201404/260
Heilsugæslulæknir Heilsugæslan í Árbæ Reykjavík 201404/259
NÁTTÚRA Þjóðgarðsvörður telur að stíga þurfi frekari skref
til verndar urriðanum í Þingvallavatni, reynist upplýsing-
ar um stórfellt urriðadráp á stöng og í net á rökum reistar.
Formaður Veiðifélags Þingvallavatns telur netaveiði ekki
áhyggjuefni enda séu netabændur fyrst og síðast að eltast
við bleikju.
Enn eitt vorið hafa risið heitar umræður
um veiðimenningu við Þingvallavatn, sér-
staklega á samfélagsmiðlum, eftir fréttir
og myndbirtingar af dauðum stórurriða
með þeim orðum að „bátsfylli“ af urriða
hafi fengist í einni veiðiferð á Þingvalla-
vatni fyrir nokkrum dögum.
Þingvallanefnd samþykkti tillögu
þjóðgarðs varðar um breyttar veiðireglur í
Þingvallavatni innan þjóðgarðsins 6. mars.
Veiðitíminn hófst 20. apríl en til 31. maí er einungis leyft að
veiða með flugu og öllum urriða skal sleppt á þessu tímabili í
landi þjóðgarðsins.
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður segir að tillagan
hafi verið lögð fram til að bæta veiðimenningu við Þingvalla-
vatn og styrkja urriðastofninn. Þegar eru 15 veiðiverðir að
störfum við vatnið, auk þess sem Þingvallanefnd mun verja
allt að einni milljón króna til veiðivörslu, en Ólafur taldi sér-
staka ástæðu til að grafast fyrir um hvort nýsettar reglur
hafi verið brotnar í því tilviki sem fyrr er nefnt.
Spurður sérstaklega um netaveiði á urriða segist Ólafur
Örn hafa heyrt sögur af urriðaveiði í net og að sumar þeirra
valdi áhyggjum. „Ég geri hins vegar mikinn greinarmun á
því hvernig menn standa að slíkri veiði. Það eru bændur við
vatnið sem hafa stundað mjög hóflegar veiðar. En ef sögur
eiga sér stoð í raunveruleikanum þá er allt annað uppi á ten-
ingnum,“ segir Ólafur og telur að hlusta megi á það sjónarmið
að kaupa upp silungsnetin í vatninu af bændum, ef um er að
ræða stórfellda veiði á stofni sem verið er að reyna að vernda
með reglum um að veiða og sleppa fiski. svavar@frettabladid.is
Mögulegt að bregðast við urriða-
drápi með því að kaupa upp net
Verði sannað að urriði í Þingvallavatni sé drepinn í stórum stíl á stöng og í net þarf að taka á því, segir Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðs-
vörður. Jóhannes Sveinbjörnsson, formaður Veiðifélags Þingvallavatns segir netaveiði bænda ábyrga og beinast fyrst og síðast að bleikju.
ÓLAFUR ÖRN
HARALDSSON
Jóhannes Sveinbjörnsson, formaður Veiðifélags Þingvalla-
vatns og bóndi að Heiðarbæ I, dregur sögusagnir af urriða-
veiði í net stórlega í efa, enda hafi bændur lítinn áhuga á að
drepa urriðann, sem á vorin er í slöku ásigkomulagi og ekki
hægt að selja sem mat. Netaveiði sé jafnframt mun minni er
áður var, og aðeins frá þremur til fjórum jörðum.
„Við teljum netaveiði vera jafn merkilega og aðra veiði. Í
okkar tilfelli er um bleikjuveiði að ræða fyrst og síðast, en
auðvitað slæðist einn og einn urriði í netin, eins og gengur.
Auðvitað þola stofnarnir aðeins vissa veiði og það vill enginn
ganga á þá,“ segir Jóhannes. Netaveiddur silungur er seldur
til fastra viðskiptavina en einnig til hótela og veitingahúsa,
að sögn Jóhannesar.
Krafti verður aftur hleypt í Veiðifélag Þingvallavatns í vor.
Jóhannes segir að þar verði veiðimenning við vatnið rædd,
til dæmis nýtingaráætlun sem sé lögbundin og ekki til staðar.
Á það hefur verið bent að án hennar er veiðin í vatninu
ólögleg í harðasta skilningi laganna.
„Það er flott sport að veiða einn og einn urriða, og ég legg
ekkert mat á það hvort menn eigi að sleppa veiddum fiski
eða ekki,“ segir Jóhannes. „Það er búið að draga þá línu fyrir
land þjóðgarðsins og það er þeirra ákvörðun. Sú ákvörðun
gildir hins vegar ekki fyrir allt vatnið því veiðiréttarhafarnir
eru margir og misjafnir. Hugmyndir um samræmdar reglur
fyrir allt vatnið eftir hugmyndafræði Þingvallanefndar á alveg
eftir að ræða, eins og svo margt annað,“ segir Jóhannes.
ÞINGVALLAURRIÐI Tekinn að braggast eftir að hafa verið í útrýmingar-
hættu í langan tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DREGUR Í EFA SÖGUR AF DRÁPI Í NET
STJÓRNMÁL Alþingi kemur saman til
fundar að loknu páskaleyfi í dag.
Þingfundur hefst með óundir-
búnum fyrirspurnum og fyrirspurn-
um.
Að þeim loknum eru þrjú mál
á dagskrá þingsins; breytingar á
viðauka vegna EES-samningsins,
samningar milli Íslands og Fær-
eyja um fiskveiðar og þriðja mál
á dagskrá er staðfesting samninga
um veiðar úr norsk-íslenska síldar-
stofninum.
Nú eru átta þingfundardagar eftir
þangað til hlé verður gert á fundum
Alþingis 16. maí næstkomandi og
mikið ógert enn þá.
Í fastanefndum þingsins eru 107
mál, stór og smá, til umfjöllunar.
Þá á eftir að taka fyrstu umræðu
um frumvarp sjávarútvegsráðherra
um veiðigjöld en að henni lokinni fer
veiðigjaldafrumvarpið til nefndar.
Þingið á líka eftir að ljúka
umfjöllun um nokkur stór mál,
svo sem skuldaleiðréttingar og um
þingsályktunartillögu utanríkisráð-
herra um slit á viðræðum við Evr-
ópusambandið.
- jme
Átta þingfundardagar eftir fyrir sumarfrí þingmanna:
Stóru málin óafgreidd
SUMARFRÍ Verði ekki breytingar á dagskrá Alþingis eru einungis átta þingfundar-
dagar eftir fyrir sumarfrí. Stóru málin bíða afgreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA