Fréttablaðið - 28.04.2014, Síða 46
28. apríl 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26
Love Hangover með Díönu Ross.
Það er svo seiðandi í byrjun en endar á
stuðkafla sem kemur manni í gott skap út
alla vikuna segir Sunna Margrét söngkona.
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Ég er að skoða fótbolta sem félags-
lega athöfn og vettvang til sam-
skipta,“ segir Rakel McMahon
myndlistarkona, en hún heldur
einkasýningu í Stokkhólmi sem
verður opnuð á morgun. „Þetta er
málverkasería þar sem leikurinn,
leikmenn og áhorfendur verða að
myndlíkingu fyrir mun víðara
samhengi: kynímyndir, kynhneigð
og staðalímyndir. Ég nýti ljós-
myndir frá fótboltaleikjum og rýni
í líkamstjáningu og samskipti leik-
manna. Ég fjarlægi svo leikvöllinn,
búningana og boltann. Þessi smá-
vægilega breyting kúvendir upp-
runalegri ímynd leikmannsins sem
breytir samtímis ímynd og hlut-
verki áhorfandans,“ útskýrir Rakel.
Hún hefur haldið fjölda sýninga hér
á landi en þetta er hennar fyrsta
einkasýning í útlöndum. „Ég hef
verið að vinna að þessu í um það bil
ár. Það sem vakti áhuga minn voru
samskipti og hegðun karlmanna
fyrst og fremst í tengslum við fót-
bolta. Fótboltinn og menningin í
kringum leikinn virðist vera vett-
vangur til þess að vekja upp og/eða
leysa úr læðingi allan tilfinninga-
skalann,“ segir Rakel og segir að
verkin beini sjónum að viðkvæmum
hvötum og mannlegum tilfinningum.
Sýningin ber heitið „View of Motiva-
tion“ og mun standa yfir í Nau Gall-
ery í Stokkhólmi til 22. maí. - ósk
Færir fótboltamenn úr búningunum
Rakel McMahon opnar einkasýningu á verkum sínum í Stokkhólmi á morgun.
„Þetta var alveg það skemmtileg-
asta sem ég hef gert á ævinni,“
segir Rannveig Marta Sarc en
hún sótti um í sex tónlistarhá-
skóla í Bandaríkjunum og fékk
inngöngu í þá alla. „Ég ákvað að
fara í Juilliard eftir að þeir buðu
mér fullan skólastyrk,“ segir
Rannveig en skólarnir þurftu að
bjóða sín á milli í unga fiðluleikar-
ann. „Ég fékk tilboð frá Juilliard
og síðan annað betra frá Oberlin
Conservatory þannig að þegar ég
sagði þeim frá því tilboði þá buðu
þeir mér bara hærra,“ segir Rann-
veig en hún þarf þá ekki að borga
nein skólagjöld alla sína skóla-
göngu í Juilliard. „Ég skil ekki
alveg hvernig það gerðist,“ segir
fiðluleikarinn og hlær.
„Það var samt ótrúlega erfið
ákvörðun að velja skóla því þeir
eru allir frábærir og hafa sína
kosti og galla,“ segir Rannveig
en hún vildi velja skóla á réttum
forsendum. „Ég valdi Juilliard en
ekki bara út af nafninu, þar var
kennari sem mér leist á og svo
buðu þeir mér þennan styrk og
þá lá þetta bara fyrir.“ Rannveig
hefur spilað á fiðlu síðan hún var
fjögurra ára en Guðný Guðmunds-
dóttir hefur kennt henni í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík undanfar-
in sex ár. Rannveig segist samt
ekki hafa verið mjög áhugasöm
um tónlist í byrjun. „Báðir for-
eldrar mínir eru tónlistarmenn og
mér fannst stundum eins og það
væri verið að ýta mér út í þetta
og þá streittist ég á móti,“ segir
Rannveig. „Síðan fyrir svona
þremur árum kviknaði áhuginn
fyrir alvöru og þá gat ég ekki
hugsað mér lífið án tónlistar.“
Ferðalag Rannveigar á milli
háskólanna segir hún hafa stund-
um geta tekið á. „Að ferðast einn
allan tímann og hugsa um alla
þessa hluti en samt að þurfa að
halda einbeitingunni getur tekið
á,“ segir Rannveig. „Maður þarf
að spila eins vel og maður getur
við mjög stressandi kringumstæð-
ur.“ Ungi fiðluleikarinn byrjar í
Juill iard í haust og segist Rann-
veig vera mjög spennt fyrir að
flytja út til New York. „Fyrsta
árið bý ég á heimavistinni, síðan
flytur maður kannski í miðbæ-
inn,“ segir Rannveig Marta og
hlær. baldvin@frettabladid.is
Slógust um Rann veigu
Rannveig Marta Sarc er 18 ára fi ðluleikari en hún komst inn í sex mismunandi
tónlistarháskóla í Bandaríkjunum og valdi Juilliard, sem bauð henni fullan styrk.
Maður þarf að spila
eins vel og maður getur
við mjög stressandi
kringumstæður.
LIFIR FYRIR
TÓNLISTINA
Rannveig
Marta Sarc er
hæfileikarík
tónlistarkona.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
„Þetta er gríðarlega hressandi
og það er ekki leiðinlegt að vera
í svona flottum hópi listamanna,“
segir Baldur Ragnarsson, gítar-
leikari Skálmaldar, en hljóm-
sveitin minnti heldur betur á sig
á vefsíðu bandaríska tímaritsins
The Rolling Stone fyrir skömmu,
þegar tímaritið birti myndaalbúm
á vefsíðu sinni undir yfirskriftinni
Flottustu tónleikamyndir ársins
en þar á meðal voru okkar menn
í Skálmöld.
Að vísu er Baldur aðalpersóna
myndarinnar – eru hinir meðlim-
irnir ekkert öfundsjúkir? „Nei, nei,
Þeir hljóta að fagna því að geta
djöflast aðeins í mér,“ segir Bald-
ur léttur í lundu.
Myndin er tekin í Borgarleik-
húsinu í Reykjavík þann 23. apríl
síðastliðinn en þar hefur sveit-
in komið fram að undanförnu í
sýningunni Baldri en sýningin
er byggð á plötunni Baldri sem
Skálmöld sendi frá sér árið 2010.
Í sama myndaalbúmi má finna
marga af þekktustu tónlistar-
mönnum heimsins eins og Damon
Albarn, Boy George, Kings of
Leon, Shakiru, Arcade Fire og
marga fleiri. „Það er gaman að
sjá að sýningin vekur athygli utan
landsteinanna.“
Vissu meðlimir Skálmaldar af
þessu? „Ljósmyndarinn, Matthew
Eisman sem tók myndina sagðist
vera að taka myndir fyrir erlent
tímarit en sagði okkur ekki nafn-
ið. Hann var fínn náungi og mikill
fagmaður en hann hvarf svo bara
og við vissum ekki meira fyrr en
við sáum þetta á netinu,“ bætir
Baldur við. - glp
Flottustu tónleika-
myndir ársins
Hljómsveitin Skálmöld komst í myndaalbúm Rolling
Stone á dögunum en í albúminu er að fi nna fl ott-
ustu tónleikamyndir ársins að mati tímaritsins.
VARPAR NÝJU LJÓSI Á FÓTBOLTA
Rakel McMahon færir fótboltakappa í
annað samhengi sem verður stundum
tvírætt. MYND/ÚR EINKASAFNI
FLOTTIR Hljómsveitin Skálmöld komst í myndaalbúm á hinni virtu síðu Rolling
Stone undir yfirskriftinni, Flottustu tónleikamyndir ársins.
Ég nýti ljósmyndir frá
fótboltaleikjum og rýni í
líkamstjáningu og sam-
skipti leikmanna. Ég
fjarlægi svo leikvöllinn,
búningana og boltann.