Fréttablaðið - 01.05.2014, Page 4
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Sturtusett
Verð frá kr. 66.900
Gæði fara aldrei úr tísku
88,4 prósent Íslendinga ferðuðust eitthvað
innanlands á síðasta ári.
62,1 prósent ferðuðust til útlanda
á síðasta ári, svipaður fjöldi og árið
áður. Heimild: Ferðamálastofa
ALÞINGI Helgi Hjörvar, þing-
flokksformaður Samfylking-
arinnar, og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, forsætisráðherra,
tókust á um þrotabú gömlu bank-
anna og skuldaleiðréttingu, undir
liðnum óundirbúnar fyrirspurnir
á Alþingi í gær.
Þar spurði Helgi um þá 300
milljarða sem Framsóknarflokk-
urinn lofaði í kosningabaráttunni
í fyrra. Þar átti að skapast svig-
rúm í samningum við þrotabú
föllnu bankanna til skuldaleiðrétt-
ingar til handa eigendum íbúðar-
húsnæðis á Íslandi.
Einnig spurði Helgi hvort það
væri raunsætt að þessir 300
milljarðar fengjust út úr þessum
samningaviðræðum. Taldi hann
þörfina vera líklega meiri en
300 milljarðar þegar allt kæmi
til alls, til að leysa landið undan
þeim höftum sem Íslendingar búa
við í dag.
Sigmundur Davíð vildi ekki
meina það að Framsóknarflokk-
urinn hafi lofað þessum 300 millj-
örðum. Vildi Sigmundur meina
að Samfylkingin hafi reynt að
stimpla inn að framsóknarmenn
hafi á þessum tíma lofað þessu
fjármagni í skuldaleiðréttingu
sem væri ekki rétt.
Sigmundur Davíð tók fram að
markmiðið í sjálfu sér væri ekki
þeir 300 milljarðar sem fyrirspurn-
in fjallaði um. Markmiðið væri að
aflétta höftum, að svigrúmið væri
það mikið að það gæti leitt til þess
að aflétting hafta sé möguleg.
Benti Sigmundur Davíð á í því
samhengi að um 30 milljarðar á
ári kæmu í ríkissjóð í gegnum
sérstaka skatt-
lagningu sem
ekki hafi verið
sett í tíð síðustu
ríkisstjórnar.
Taldi hann síð-
ustu ríkisstjórn
ekki hafa haft
áhuga á þeirri
skattlagningu á
sínum tíma.
Helgi Hjörvar var ánægður að
heyra að þeir væru allavega sam-
mála því að 300 milljarðar væri
líklega vanmat ef svigrúmið ætti
að vera nægilegt til að hér væri
hægt að aflétta gjaldeyrishöftum.
Taldi Helgi mikilvægt, til að
svigrúmið gæti orðið stærra, að
pólitísk umræða gæti skapast um
sölu bankanna. „Sporin hræða
hins vegar þegar kemur að því að
selja banka og Framsókn og Sjálf-
stæðisflokkur eru í ríkisstjórn,“
sagði Helgi.
Sigmundur Davíð sagði þarna
vera pólitísk tíðindi á ferð. „Það
eru kannski helstu tíðindin í þess-
um fyrirspurnatíma, að þing-
flokksformaður Samfylkingar-
innar er búinn að viðurkenna að
svigrúmið margumtalaða, sem
við framsóknarmenn töluðum
mikið um í aðdraganda síðustu
kosninga, verði að vera til. […]
Hann segir að 300 milljarðar séu
ekki nóg, það þurfi að vera meira,
þetta eru gleðitíðindi að þing-
flokksformaður Samfylkingarinn-
ar telji þurfa að vera til hundraða
milljarða svigrúm við uppgjör á
slitabúum bankanna,“ sagði Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra. sveinn@frettabladid.is
Sammála um svigrúm
til skuldaleiðréttinga
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar lýsti eftir þeim 300 milljörðum sem framsóknarmenn lofuðu í kosn-
ingabaráttunni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson taldi það mikil pólitísk tíðindi að samfylkingarþingmaður
hafi viðurkennt að svigrúm til skuldaleiðréttingar með samningum við föllnu bankana sé til í raun og veru.
HELGI HJÖRVAR
PÓLITÍSK TÍÐINDI Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra benti á að um 30 milljarðar á ári kæmu í ríkissjóð í gegn-
um sérstaka skattlagningu sem hafi ekki verið sett í tíð síðustu ríkisstjórnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SJÁVARÚTVEGSMÁL Framkvæmda-
stjóra Vísis hf. og formanni Fram-
sýnar, stéttarfélags á Húsavík,
ber ekki saman um það hvernig
málum starfsmanna Vísis hf. á
Húsavík verður háttað við lokun
starfsstöðvar útgerðarinnar.
Aðalsteinn Baldursson, formað-
ur Framsýnar, segir að forsvars-
menn Vísis hf. hafi lagt það til að
starfsmenn skráðu sig atvinnu-
lausa strax við vinnslustöðvun
fyrirtækisins nú um mánaðamót-
in. „Við munum ekki líða það að
fyrirtækið ætli að láta ríkissjóð
greiða uppsagnarfrest starfs-
manna,“ segir Aðalsteinn. „Það er
ömurlegt að árið 2014 skuli vera
framkvæmdir svona hreppaflutn-
ingar af kvótagreifum.“
Pétur Hafsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis hf., vísar
þessu alfarið á bug. „Það hefur
engum verið sagt upp. Málið snýr
að því þegar hráefnaskorti lýkur
hvort menn koma til Grindavíkur
eða Húsavíkur.“ Þeir sem kjósi að
hætta að starfa hjá Vísi hf. geti
skráð sig á atvinnuleysisbætur
þegar árlegu tímabili hráefnis-
skorts lýkur í september. - ssb
Framsýn segir Vísi hf. ætla að svíkjast um greiðslu uppsagnarfrests til starfsfólks:
Vísir hf. vísar ásökunum á bug
PÉTUR HAF-
STEINN PÁLSSON
AÐALSTEINN
BALDURSSON
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
ÁGÆTIR VORDAGAR eru framundan, bjart víða í dag og á morgun en úrkoma
sunnan- og vestanlands á laugardag. Líklega verður væta sunnan til einnig á sunnudag
en milt í veðri.
4°
3
m/s
5°
3
m/s
8°
5
m/s
6°
10
m/s
Strekkingur
allra syðst
en annars
fremur
hægur
vindur.
Vaxandi
vindur
sunnan-
og vestan-
lands.
Gildistími korta er um hádegi
22°
31°
12°
16°
22°
7°
17°
12°
12°
23°
15°
23°
25°
22°
22°
19°
10°
XX°
6°
3
m/s
5°
3
m/s
6°
2
m/s
5°
5
m/s
5°
3
m/s
5°
3
m/s
2°
3
m/s
10°
8°
6°
5°
9°
6°
10°
3°
9°
6°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
BANDARÍKIN, AP Mikið óveður
hefur geisað í suður- og miðvest-
urríkjum Bandaríkjanna síðustu
dagana. Skýstrókar hafa kostað
tugi manna lífið í Arkansas og
Mississippi.
Í gær bættust svo ofan á þetta
flóð á Flórídaskaga og við strend-
ur Alabama. Víða flæddi yfir
vegi svo fólk sat fast á heimilum
sínum eða í bifreiðum og beið
þess að björgunarmenn kæmust
til þess.
Að minnsta kosti ein kona
hefur látið lífið í þessum flóðum.
Bifreið hennar lenti ofan í djúpu
flóðavatni. - gb
Óveður í Bandaríkjunum:
Fárviðri og flóð
kosta tugi lífið
EYÐILEGGING Bandarískur hermaður
setti upp fána á rústum húss í bænum
Vilonia í Arkansas. NORDICPHOTOS/AFP
Sporin hræða hins
vegar þegar kemur að því
að selja banka og Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkur
eru í ríkisstjórn.
Helgi Hjörvar, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar.
STJÓRNMÁL Nefnd varðandi hags-
muni hinsegin fólks hefur verið
skipuð.
Hún á að vinna áætlun um sam-
þættar aðgerðir til að bæta stöðu
hinsegin fólks á Íslandi. Áætlunina
á Eygló Harðardóttir velferðarráð-
herra að fá í hendurnar í október.
Formaður nefndarinnar er Aðal-
björn Jónsson, en meðal annarra
sitja í henni Anna Pála Sverris-
dóttir, fyrrverandi formaður Sam-
takanna ’78, og Jón Þór Ólafsson,
þingmaður Pírata. - kóh
Ályktun skilað í október:
Nefnd fyrir
hinsegin fólk
KJARADEILUR Í yfirlýsingu lands-
samtaka foreldra, Heimilis og
skóla, segir að samtökin séu ugg-
andi yfir gangi kjaraviðræðna
grunnskólakennara og sveitar-
félaga.
Í yfirlýsingunni segir að kæmi
til verkfalls myndi það bitna á
nemendum og gera foreldrum
þeirra erfitt fyrir þá daga sem
það stæði. Þá er minnst á það
ástand sem ríkti á heimilum
fatlaðra framhaldsskólanema
og nema með sérþarfir meðan á
verkfalli framhaldsskólakennara
stóð. - kóh
Samtök foreldra kvíðin:
Bitnar bara á
nemendum