Fréttablaðið - 01.05.2014, Page 6
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
ORKUMÁL „Landsnet hefur með
umsögninni að nýju skapað óvissu
um hvenær háspennulínurnar
verða teknar niður,“ segir Guðrún
Ágústa Guðmundsdóttir, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, um umsögn
Landsnets um tillögu að nýju aðal-
skipulagi bæjarins.
Í umsögninni ítrekar fyrirtæk-
ið að háspennulínur sem liggja
að Hamranesi við Vallahverfið í
Hafnarfirði verði ekki fjarlægð-
ar nema að fyrirvarar um aukna
orkuflutninga um svæðið verði
uppfylltir. Fyrirvarana má finna í
samkomulagi Landsnets og bæjar-
yfirvalda frá 2009.
„Þetta er mjög undarleg yfir-
lýsing því við gerðum viðauka við
samkomulagið árið 2012 sem við
töldum tryggja færslu allra þess-
ara háspennulína. Samkvæmt
viðaukanum átti að byrja niðurrif
vorið 2016 og línurnar áttu að vera
farnar 2020,“ segir Guðrún. Hún
segir að bæjaryfirvöld muni óska
eftir fundi með fyrirtækinu vegna
málsins.
Guðmundur Ingi Ásmunds-
son, aðstoðarforstjóri Landsnets,
segir enn stefnt að niðurrifi fyrir
lok árs 2020.
„Samkomulagið frá 2009 er
óbreytt og í fullu gildi. Við erum
bara að benda á þessa fyrirvara
um að ef það verða meiriháttar
forsendubreytingar, á þann veg
að það þurfi ekki að flytja jafn
mikla orku um svæðið og fara í
framkvæmdir við fyrirhugaða
Suðvesturlínu, þá megi endur-
skoða þessar framkvæmdir,“
segir Guðmundur.
Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði,
segir málið í hnút og að bæjaryfir-
völd og Landsnet hafi túlkað við-
auka samningsins á ólíkan hátt.
„Það er ljóst samkvæmt þess-
um athugasemdum Landsnets að
viðaukinn sem gerður var við upp-
runalega samninginn hefur alls
ekki styrkt stöðu bæjarins. Upp-
runalegi samningurinn var með
þeim fyrirvara að forsenda nið-
urrifs væri að uppbygging orku-
freks iðnaðar á Suðurnesjum yrði
að veruleika. Landsnet er nú að
ítreka þá fyrirvara,“ segir Rósa.
Landsnet segir einnig í umsögn-
inni að Hafnarfjarðarbær þurfi
að bera kostnað sem fylgir því að
leggja í jörðu háspennulínur sem
fara í gegnum land bæjarins að
tengivirki fyrirtækisins í Hamra-
nesi. Kostnaður við framkvæmd-
irnar hlypi á hundruðum milljóna
króna.
„Það breytir því ekki að Lands-
net ber ábyrgð á að byggja upp raf-
línur fyrir íbúa þessa lands. Sveit-
arfélagið vill þessa strengi í jörðu
og við vekjum athygli á því að það
er sveitarfélagið sem gefur fram-
kvæmdaleyfi fyrir framkvæmd-
um og Landsnet er á sama tíma að
reyna að koma hér upp raflínum
til Suðurnesja í gegnum sveitarfé-
lagið,“ segir Guðrún.
haraldur@frettabladid.is
Bæjarstjóri gagnrýnir óvissu
um niðurrif háspennulína
Landsnet hefur skapað óvissu um niðurrif háspennulína við Vallahverfið í Hafnarfirði, segir bæjarstjórinn.
Fyrirtækið stefnir að niðurrifi fyrir 2020 en það veltur á uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Suðurnesjum.
Á VÖLLUNUM Háspennulínur Landsnets gnæfa yfir Vallahverfið í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1. Hver skipar fyrsta sæti á lista Fram-
sóknar og fl ugvallarvina í Reykjavík?
2. Hvað heitir sænska liðið sem Ragn-
ar Nathanaelsson hefur samið við?
3. Í hvernig búningum verður hljómsveit-
in Pollapönk í Eurovision-keppninni?
SVÖR:
Pétur Pétursson, íbúi í Vallahverfinu, gagnrýndi samning Hafnarfjarðar-
bæjar og Landsnets, sem gefur fyrirtækinu frest til 2016 til að hefja niður-
rifið, á íbúafundi í bænum í júní á síðasta ári.
„Ég benti á að línurnar skerða lífsgæði íbúa og þá erum við ekki að
tala eingöngu um sjónmengun. Það er stanslaus niður frá tengivirkinu og
þegar það er raki eða rigning magnast suð frá línunum,“ segir Pétur.
„Það eru fleiri byrjaðir að setja sig inn í málið og ég heyrði um daginn
að það ætti að ganga undirskriftalisti um hverfið þar sem þessum línum
yrði mótmælt.“
Háspennulínurnar trufla Vallabúa
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
SVEITARSTJÓRNIR Nýtt aðalskipu-
lag Hafnarfjarðarbæjar var sam-
þykkt samhljóða á fundi bæjar-
stjórnar í gær. Sigríður Björk
Jónsdóttir, formaður skipulags-
og byggingaráðs, segir helstu
áhersluþætti í skipulaginu vera
umhverfismál, samgöngur og
húsverndun.
Í aðalskipulaginu eru áherslur
á að þétta byggð og hægja á
þenslu á ósnortin hraunasvæði í
jaðri hennar meira en áður. Þá er
gefinn kostur á að byggja íbúðir
í hluta eins af eldri iðnaðarsvæð-
unum. Að auki er kveðið á um
verndun yfirbragðs heillegra
húsaraða og hverfa sem bera stíl-
brigði ákveðinna tímabila í bygg-
ingarsögu bæjarins. - fbj
Nýtt aðalskipulag samþykkt:
Húsverndun
hluti skipulags
HÝRI HAFNARFJÖRÐUR Áhersla er á
þéttingu byggðar í aðalskipulagi Hafnar-
fjarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Bandaríkjamenn voru
þeir sem greiddu mest með
greiðslukortum sínum hér á landi
í fyrra eða tæpa 14 milljarða
króna, sem svarar til um 120 þús-
und króna að meðaltali á hvern
Bandaríkjamann. Þetta kemur
fram í nýjum tölum frá Rann-
sóknarsetri verslunarinnar.
Bretar eru í næsta sæti með
um 11 milljarða og þar á eftir
Norðmenn með tæpa 9 milljarða.
- fbj
Bandaríkjamenn eyða mest:
Eyðslu deilt nið-
ur á þjóðerni
LANDBÚNAÐUR Kálfurinn Hvíti
Gauti verður seldur hæstbjóðanda
á uppboði á sunnlenska sveitadeg-
inum sem verður haldinn á Sel-
fossi um helgina.
Að ósk Guðbjargar Jónsdóttur,
bónda á Læk, og barna hennar, en
þau eru eigendur kálfsins, verð-
ur ágóðinn af uppboðinu notaður
til fegrunar og umbóta á aðstöðu
fyrir sjúklinga og aðstandendur
þeirra á nýstofnaðri göngudeild á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi, sem verður meðal ann-
ars fyrir krabbameinssjúklinga.
Nafn kálfsins er til heiðurs eigin-
manni Guðbjargar, Gauta Gunn-
arssyni bónda á Læk, sem lést
fyrir stuttu úr krabbameini,
aðeins 43 ára gamall.
Það er von Guðbjargar að vel
verði tekið í uppboðið og mynd-
arlegur sjóður muni líta dagsins
ljós.
Kálfurinn Hvíti Gauti mun að
uppboði loknu fara í Húsdýra-
garðinn og dvelja þar um ókomna
tíð. - mhh, jme
Hvítasti kálfur landsins boðinn upp á sunnlenska sveitadeginum á Selfossi:
Gauti flytur í Húsdýragarðinn
GÍSLI GAUTASON Á LÆK Heldur á
Hvíta Gauta, sem er reyndar kvíga.
FRÉTTABLAÐIÐ/MHH
1. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
2. Sundsvall Dragons.
3. Matrósafötum.
SAMFÉLAGSMÁL Öryrkjabandalag
Íslands (ÖBÍ) mun setja baráttuna
um fordómalaust samfélag á odd-
inn í 1. maí göngunni í dag.
Gönguhópur ÖBÍ verður sam-
kvæmt tilkynningu bandalagsins
litríkur þar sem göngufólki verð-
ur gefið buff með áletrununum
„Burt með fordóma“ og „Betra
samfélag“ og marglitum tákn-
myndum.
„Myndirnar vísa til fjölbreyti-
leika samfélagsins,“ segir í til-
kynningunni. - hg
Litrík 1. maí ganga ÖBÍ:
Ganga gegn
fordómum
VEISTU SVARIÐ?