Fréttablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 16
Við leggjum
áherslu á hrein-
skiptin samskipti í
borginni, það er ekkert
tjull heldur snýr það að
öllum samskiptaþáttum
borgarinnar. Við höfum
reynt að ástunda ábyrga
fjármálastjórnun. Síðasti
ársreikningur sýnir góðan
árangur og við erum stolt
af því. Við erum að tala
fyrir umhverfinu og
bættum samgöngumálum
sem eru okkur hugleikin.
Þau eru hagsmunamál,
bæði fjárhagslega og
lýðheilsulega. Við viljum
að hér geti fólk ferðast
um með fjölbreyttum
hætti.
Húsnæðismál eru
efst á baugi að
mínu mati, þar leggjum
við ákveðnar tillögur
fram um félagsbústaði.
Boðum uppbyggingu á
félagslegu húsnæði. Við
viljum byggja upp
leigumarkað þar sem
félagsbústaðir eru stór
aðili á markaði. Við
viljum að fjárhagsaðstoð
verði jafn há atvinnu-
leysisbótum. Leikskóli
verði gjaldfrjáls og
gjaldskrá borginnar
verði tekjutengd.
Flugvöllurinn á að vera
áfram við í Vatnsmýri.
Stóru máín fyrir
okkur pírata eru
umbætur á stjórnsýslu
og aukið lýðræði, það er
kall tímans á öllum
stjórnsýslustigum og
þess vegna setjum við
það í forgang. Við
munum halda áfram á
þeim nótum. Flug-
völlurinn verður ekki í
sjálfu sér kosningamál.
Ég held hins vegar að
það sé bráðnauðsynlegt
að lyfta umræðunni á
hærra plan. Það er ekki
heilbrigt ástand að stór
meirihluti borgarbúa sé
ósamstíga borgarstjórn í
þessu máli, á því þarf að
finna einhvern flöt.
Fjölgun leiguíbúða
og heilbrigðari
húsnæðismarkaður
verður í brennidepli. Við
erum með yfirgripsmikla
aðgerðaráætlun um
fjölgun leigu- og
búseturéttaríbúða um
2.500-3.000 á næstu 3-5
árum. Við viljum að
áfram verði friður og
stöðugleiki við stjórn
borgarinnar sem hefur
gengið vel. Við leggjum
mikla áherslu á skóla- og
velferðarmál og viljum
hækka frístundakortið
og koma til móts við
barnafjölskyldur á
ýmsan hátt til að öll
börn fái jöfn tækifæri.
Við viljum setja
nemandann í
fyrsta sæti og breyta
skólakerfinu. Við ætlum
að leysa biðlistavanda-
mál barnafjölskyldna
eftir plássi á leikskóla
með þjónustutryggingu.
Einnig viljum við leggja
okkar af mörkum til að
lækka kaupverð íbúða
og þar með leigu með
auknu lóðaframboði og
með breytingu á
gjaldskrám um lóða-
gjöld.
Næsta kjörtímabil
snýst um að
tryggja jöfnuð og
sporna gegn fátækt og
sívaxandi misskiptingu í
samfélaginu. Við
leggjum áherslu á
gjaldfrjálsa leikskóla,
skólamáltíðir og
frístundaheimili fyrir
börn. Með þessu
tryggjum við jafnt
aðgengi barna að
menntun og frístundum
óháð efnahag foreldra
og gerum þessa
þjónustu að því
jöfnunartæki sem henni
er ætlað að vera í
samfélaginu.
Við viljum tryggja
húsnæðisöryggi fyrir
alla, þar sem Reykvíking-
um verður boðinn
raunhæfur valmöguleiki í
vali á húsnæðisfyrirkomu-
lagi, félagslegt húsnæði,
leiguhúsnæði, búsetukerfi
og séreignir. Varðandi
menntamál viljum við
ráðstafa peningum
borgarinnar í þágu ungra
Reykvíkinga. Flugvallar-
málið er okkar hjartans
mál þar sem við viljum
standa vörð um áfram-
haldandi veru flugvallarins
í Vatnsmýrinni í núverandi
mynd. Þannig verður
Reykjavík höfuðborg
fyrir alla.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR REYKJAVÍK
KÖNNUN Meira en helmingur
borgarbúa, 56,5 prósent, vilja
að Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í Reykjavík,
verði borgarstjóri eftir kosning-
ar, samkvæmt niðurstöðum nýrr-
ar skoðanakönnunar Fréttablaðs-
ins sem gerð var á þriðjudag.
Hylli Dags hefur aukist frá síð-
ustu könnun, sem gerð var um
miðjan mars. Þá vildu 52,6 pró-
sent borgarbúa að Dagur tæki
við borgarstjórastólnum af Jóni
Gnarr, sem gefur ekki kost á sér
í komandi kosningum.
Stuðningur við Dag nær langt
út fyrir þann hóp sem hyggst
kjósa Samfylkinguna. Flokk-
urinn mælist samkvæmt könn-
uninni með 26,6 prósenta fylgi.
Rúmlega tvöfalt fleiri vilja því
Dag sem borgarstjóra en ætla að
kjósa Samfylkinguna í kosning-
unum.
Dagur ber höfuð og herðar
yfir oddvita annarra framboða
í borginni. Um 16 prósent borg-
arbúa vilja að Halldór Halldórs-
son, oddviti Sjálfstæðisflokksins
í borginni, verði næsti borgar-
stjóri Reykjavíkur. Það er vel
innan við þriðjungur af þeim
stuðningi sem Dagur nýtur sam-
kvæmt könnuninni. Alls vilja
62,5 prósent kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins Halldór sem borgar-
stjóra, en 20,8 prósent vilja held-
ur Dag.
Björn Blöndal, oddviti Bjartr-
ar framtíðar, nýtur stuðnings
um 8,8 prósenta borgarbúa til
að setjast í stól borgarstjóra.
Björt framtíð tekur við keflinu
af Besta flokknum, sem vann
afgerandi kosningasigur í síð-
ustu kosningum undir forystu
Jóns Gnarr. Aðeins 37,7 prósent
þeirra sem ætla að kjósa Bjarta
framtíð vilja Björn sem borgar-
stjóra, en 55,1 prósent vilja Dag
heldur í embættið.
Aðrir njóta enn minni stuðn-
ings sem arftakar Jóns Gnarr.
Um 3,5 vilja Sóleyju Tómasdótt-
ur, oddvita Vinstri grænna, sem
næsta borgarstjóra, og 3 prósent
Halldór Auðar Svansson, oddvita
Pírata. Þá nefndu 0,5 prósent Þor-
leif Gunnarson, oddvita Dögunar.
brjann@frettabladid.is
Meirihlutinn vill Dag B. Eggertsson
í borgarstjórastólinn í Reykjavík
Hylli Dags B. Eggertssonar, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík, hefur aukist á síðustu vikum samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Nærri 57 prósent vilja að Dagur taki við embætti borgarstjóra af Jóni Gnarr eftir næstu kosningar.
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTASKÝRING | 16
ÁRIÐ 2010
118.326
bjuggu í
Reykjavík
ÁRIÐ 2014
121.230
bjuggu í
Reykjavík
Í DAG
90.614
á kjörskrá
ÁRIÐ 2013
8,4
milljarðar
rekstrarafgangur
ÁRIÐ 2013
62,2
milljarðar
skuldir
Reykjavíkur
AÐFERÐAFRÆÐIN Hringt var í 1.089 manns þar til náðist í 802 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki
þriðjudaginn 29. apríl. Svarhlutfallið var 73,6 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóð-
skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa
ef gengið yrði til borgarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að
þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða
einhvern annan flokk? Það er gert í samræmi við aðferðafræði sem þróuð var hjá Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands. Alls tóku 63,5 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Einnig var spurt:
Hver vilt þú að verði borgarstjóri eftir kosningarnar? Alls tóku 49,9 prósent afstöðu til þeirrar spurningar.
vi
km
ör
k
3,
4%
2,
5%
2,
0%
1,
3%
1,
2%
0,
5%
Dagur B.
Eggertsson
Halldór
Halldórsson
Björn Blöndal Sóley
Tómasdóttir
Halldór Auðar
Svansson
Þorleifur
Gunnarsson
52
,6
% 56
,5
%
57
,9
%
55
,4
%
19
,6
%
16
,0
%
19
,1
%
13
,5
%
7,
6% 8,
8%
6,
7%
10
,4
%
4,
6%
3,
5% 5
,6
%
1,
8%
3,
2%
3,
0%
1,
7% 4
,1
%
0,
7%
0,
5%
0,
6%
0,
5%
Könnun 12.3.2014 Könnun 29. apríl 2014
Konur
Karlar
HVER VILT ÞÚ AÐ VERÐI BORGARSTJÓRI EFTIR KOSNINGARNAR?
FRAMBOÐSLISTAR Í REYKJAVÍK
Kópavogur
Reykjavík
Seltjarnarnes
Björt Framtíð Dögun Píratar Samfylkingin
Sjálfstæðis-
flokkurinn Vinstri Grænir Framsókn
1. sæti Björn Blöndal, að-
stoðarmaður borgarstjóra
og tónlistarmaður
1. sæti Þorleifur
Gunnlaugsson, varaborg-
arfulltrúi
1. sæti Halldór
Auðar Svansson
1. sæti Dagur B.
Eggertsson, borgarfulltrúi
og læknir
1. sæti Halldór
Halldórsson, formaður
SÍS
1. sæti Sóley
Tómasdóttir,
borgarfulltrúi
1. sæti sæti Sveinbjörg
Birna Sveinbjörnsdóttir,
hdl
2. sæti Elsa Yeoman,
forseti borgarstjórnar og
húsgagnasmiður
3. sæti Ilmur Kristjáns-
dóttir, leikkona
4. sæti Eva Einarsdóttir,
borgarfulltrúi
2. sæti Ása Lind Finn-
bogadóttir, framhalds-
skólakennari
3. sæti Salmann Tamimi,
tölvunarfræðingur
4. sæti Ragnheiður Lára
Guðrúnardóttir, félags-
ráðgjafi
2. sæti Þórgnýr Thor-
oddsen
3.sæti Þórlaug Ágústs-
dóttir
4.sæti Arnaldur
Sigurðarson
2. sæti Björk Vilhelms-
dóttir, borgarfulltrúi
3. sæti Hjálmar Sveins-
son, varaborgarfulltrúi
4. sæti Kristín Soffía
Jónsdóttir, varaborgar-
fulltrúi
2. sæti Júlíus Vífill
Ingvarsson, borgarfulltrúi
3. sæti Kjartan Magnús-
son, borgarfulltrúi
4. sæti Áslaug María
Friðriksdóttir, borgar-
fulltrúi
2. sæti Líf Magneudóttir,
grunnskólakennari
3. sæti Elín Oddný
Sigurðardóttir, félags-
fræðingur
4. sæti Hermann Valsson,
íþróttakennari
2. sæti sæti Guðfinna
Jóh. Guðmundsdóttir, hdl.
3. sæti Gréta Björg Egils-
dóttir, íþróttafræðingur
4. sæti Jóna Björg
Sætran, menntunar-
fræðingur
Æ T Þ S D V F