Fréttablaðið - 01.05.2014, Page 18

Fréttablaðið - 01.05.2014, Page 18
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 18 Grillmeistarar hafa gjarnan bjór við hönd við grillun kjöts. Nú er ástæða til að opna flöskuna tals- vert áður en grillunin hefst því að rannsókn vísindamanna við Háskólann í Porto í Portúgal hefur leitt í ljós að sé kjöt marínerað í bjór áður en það er grillað mynd- ast minna af skaðlegum efnum við grillunina sem geta aukið hættuna á krabbameini í ristli. Krabbameinsvaldandi efnin eru kölluð sindurefni. Efni sem geta komið í veg fyrir skaðleg áhrif þeirra eru andoxunarefni og bjór er ríkur af þeim. Þess vegna ákváðu vísindamennirnir að kanna hvaða áhrif það hefði ef kjöt væri marínerað í bjór fyrir grillun. Kjötið sem var grillað var ýmist marínerað með ljósum bjór eða dökkum. Kenningin var sú að færri skaðleg efni myndu myndast þegar kjöt var marínerað í ljósum bjór en þegar kjöt var ekki marínerað. Vís- indamennirnir gerðu jafnframt ráð fyrir að þar sem meira er af andox- unarefnum í dökkum bjór myndu myndast enn færri skaðleg efni við grillun kjöts með slíkri maríner- ingu en við grillun kjöts sem mar- ínerað var í ljósum bjór. Niðurstað- an var eins og þeir bjuggust við. Greint er frá rannsókninni í grein sem birtist í Journal of Agricultural and Food Chemistry í mars síðastliðnum. Hollara að marínera kjöt í bjór áður en það er grillað Andoxunarefni í bjór draga úr skaðlegum efnum sem geta myndast við grillun kjöts. Hollara að marínera kjöt í dökkum bjór en ljósum. Mikilvægt er að þrífa alltaf sýnilega fitu af grillinu þegar grillun er lokið. Á vef umboðsmanns barna segir að einelti sé ofbeldi sem hafi ýmsar birtingarmyndir. Hér á eftir fara dæmi um nokkrar þeirra: Munnlegt ofbeldi er uppnefni, stríðni eða niðurlægjandi athuga- semdir. Félagslegt ofbeldi er þögn eða algert afskiptaleysi, þegar barnið er skilið út undan í leik og því er til dæmis ekki boðið í afmælis- veislur. Efnislegt ofbeldi er þegar eigum fórnarlambsins er til dæmis stolið eða þær eyðilagðar. Andlegt ofbeldi er þegar barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algerlega gegn rétt- lætiskennd þess og sjálfsvirðingu, það fær endurtekið neikvæðar athugasemdir og hótanir. Líkamlegt ofbeldi er þegar gengið er í skrokk á barninu. Bent er á að það sem skilur á milli eineltis og þess að börn gantist í góðu sé samband gerand- ans og fórnarlambsins og tilgang- urinn með samskiptunum. - ibs Umboðsmaður barna: Hvað er einelti? Næstum tveir þriðjuhlutar 16 til 18 ára unglinga í Svíþjóð, sem segjast drekka áfengi, myndu ekki reyna að útvega sér það hjá sprúttsala ef þeir fengju það ekki hjá einhverjum sem þeir þekkja. Þetta er niðurstaða könnunar sænskra samtaka um upplýsing- ar um áfengi og tóbak, Central- förbundet för alkohol och nar- kotikaupplysning. Þátttakendur í rannsókninni voru eitt þúsund. Á fréttavefnum Metro er haft eftir stjórnanda samtakanna, Håkan Leifman, að niðurstaðan sýni að það skipti máli þegar for- eldrar, félagar og eldri systkini ákveða að kaupa hvorki áfengi fyrir unglingana né bjóða þeim áfengi. Um helmingur unglinganna sem þátt tóku í könnuninni sagð- ist drekka áfengi. Fimmtungur kvaðst mundu snúa sér til ein- hvers annars fullorðins ef eng- inn náinn þeim myndi aðstoða við útvegun áfengis. Í árlegri könnun samtakanna um vímuefnavenjur kváðust 13 prósent nemenda í níunda bekk hafa stundað kynmök án getnað- arvarna undir áhrifum áfengis, 17 prósent sögðust hafa lent í rifrildi við einhvern og 12 prósent sögð- ust hafa verið í bíl með drukknum ökumanni. - ibs Könnun var nýlega gerð meðal sænskra unglinga: Fara ekki til sprútt- sala aðstoði nánir ekki við áfengiskaup VÍNBÚÐ Um helmingur sænskra unglinga á aldrinum 16 til 18 ára, sem þátt tóku í nýlegri könnun, kvaðst drekka áfengi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Góð regla er að taka grillið í gegn á vorin og þrífa í hvert skipti sýnilega fitu að lokinni grillun. Fita sem situr á grindum og lekur ofan í grillið brennur næst þegar grillað er og þá geta skaðleg efni sest á matvælin. Gæta þarf þess að kjöt eða safi úr kjöti komist ekki í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu, svo sem grænmeti og kaldar sósur. Hægt er að koma í veg fyrir kross- mengun með því að nota sérstaka töng fyrir hrátt kjöt og aðra fyrir kjötið þegar búið er að grilla það. Jafnframt er hægt að koma í veg fyrir krossmengun með því að nota eitt fat fyrir hrátt kjöt og annað fyrir grillað kjöt. Mikilvægt er að gegnsteikja kjúk- linga, svínakjöt og unnar kjötvörur svo sem hamborgara þar sem meiri líkur eru á örverum inni í hökkuðum vörum en í hreinum vöðvum. Heimild: Matvælastofnun GRILLARÐU MATINN ÞINN Á RÉTTAN HÁTT? GRILLAÐ KJÖT Kjöt brennur síður þótt það sé marínerað aðeins rétt áður en grillað er, að því er segir á vef Matvælastofnunar. NORDICPHOTOS/GETTY SKILIN ÚT UNDAN Einelti er þegar barn er skilið út undan í leik. NORDICPHOTOS/GETTY Á vef Matvælastofnunar segir að sé kjöt grillað við háan hita og það nær að kolast myndist efna- sambönd sem geta verið stökk- breytandi. Það fari eftir því hversu lengi kjötið er á grillinu og hversu hár hitinn er hversu mikið magn af efnunum myndast. Bent er á að svo virðist sem mun minna myndist af þessum efnum þegar sjávarfang eða grænmeti brennur á grillinu en þegar kjöt kolast. Skera á kolaða eða brennda hlutann ávallt í burtu. Svartir bitar innihalda langmest skað- legu efnanna, að því er segir á vef Matvælastofnunar. Þar segir jafn- framt að kjöt brenni síður þótt marínerað sé einungis rétt áður en grillað er. ibs@frettabladid.is V M - F É L A G V É L S T J Ó R A O G M Á L M T Æ K N I M A N N A Félagsmenn fjölmennum og tökum þátt í kröfugöngu og útifundi 1. maí. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13:00 og hefst gangan hálftíma síðar. Kl. 14:10 hefst útifundur á Ingólfstorgi. Boðið verður upp á kaffi að útifundi loknum í Gullhömrum Grafarholti, frá kl. 15:00 - 17:00.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.