Fréttablaðið - 01.05.2014, Síða 19
FIMMTUDAGUR 1. maí 2014 | FRÉTTIR | 19
Hvað býr í Heimunum og Vogunum er heitið
á bókmenntagöngu fyrir börn og fjölskyldur
þeirra frá Sólheimasafni núna á laugardag-
inn 3. maí og er hún hluti af Barnamenning-
arhátíð í Reykjavík.
Sigrún Jóna Kristjánsdóttir, deildarbóka-
vörður í Sólheimasafni, leiðir gönguna og
mun hún skyggnast í bókmenntir tengdar
hverfinu.
„Við förum rúnt um hverfið þar sem eitt-
hvað sögulegt hefur gerst. Við munum til
dæmis stoppa þar sem Bubbi bjó hér í hverf-
inu og þá verður lesin lýsing hans á því
hvernig var að vera barn í þessu hverfi á
þeim tíma sem hann var að alast upp.“
Einnig verður lesið upp úr barnabókum
og nefnir Sigrún bókina Hundakexið eftir
Einar Má Guðmundsson. „Hún gerist þegar
verið er að byggja upp hverfið hér. Hann
lýsir því til dæmis þegar strákar eru að
leika sér í nýbyggingum.“
Ljóð verða lesin í göngunni og svo verður
efnt til getraunar.
Gengið verður kl. 12 frá safninu. - ibs
Bókmenntaganga fyrir börn og fjölskyldur þeirra frá Sólheimasafni næstkomandi laugardag:
Lesið á göngu um Heimana og Vogana
Guðstrú skiptir fermingarbörn
meira máli heldur en foreldr-
arnir halda. Niðurstöður nýrrar
danskrar rannsóknar sýna að 41
prósent foreldra telur að börn
þeirra láti ferma sig af trúar-
legum ástæðum. Hins vegar
segja 56 prósent fermingarbarna
að guðstrú þeirra sé mikilvæg
ástæða fermingarinnar.
Foreldrarnir telja jafnframt
að veislan og gjafirnar skipti
fermingarbörnin meira máli en
ráða má af svörum fermingar-
barnanna sjálfra.
Tvö af hverjum þremur ferm-
ingarbörnum tala sjaldan eða
aldrei um trúmál við foreldra
sína.
Alls tóku 600 fermingarbörn og
400 foreldrar þátt í rannsókninni
sem greint er frá á vef Kristilega
dagblaðsins. - ibs
Fermingarbörn í Danmörku:
Trú mikilvæg-
ari en talið er
Þegar foreldrar hafa komist að
þeirri niðurstöðu að óhætt sé að
skilja barn eftir heima er gott að
undirbúa það vel, að því er bent
er á á vef Miðstöðvar slysavarna
barna. Hér á eftir fara nokkrar
ráðleggingar miðstöðvarinnar:
Neyðarlínan: Kenndu barninu
að hringja í Neyðarlínuna.
Kenndu barninu einn einn tveir
en ekki hundrað og tólf. Vertu líka
viss um að barnið kunni heimilis-
fang sitt og símanúmer.
Æfing: Æfðu með barninu hvað
skal gera í neyð, til dæmis ef það
slasar sig, það kviknar eldur í hús-
inu eða það verður vart við inn-
brotsþjóf.
Prufutími: Þegar barn er skil-
ið eftir í fyrsta sinn skaltu fara
frá í skamman tíma og halda þig
nálægt heimilinu. Slík prufa er
góð leið til að kanna hvort barn-
ið sé tilbúið að vera eitt heima,
ræður við aðstæðurnar og líður
vel.
Upplýsingar: Segðu barninu
hvenær þú kemur heim. Skildu
eftir símanúmer þar sem barnið
nær í þig, ættingja eða vini. Þetta
eykur öryggistilfinningu barns-
ins. Hringdu og láttu vita af þér ef
þú getur eða fáðu einhvern til að
koma við.
Reglur: Hafðu skýrar reglur um
hvað barnið má og má ekki gera á
meðan það er eitt heima.
Matur: Kauptu inn mat og
drykk sem barnið getur auðveld-
lega haft til sjálft.
Lyklar: Mundu að láta barnið
hafa lykil. Vertu líka viss um að
það geti opnað útidyrnar hjálpar-
laust. - ibs
Slysavarnir barna:
Þegar barnið er
eitt heima við
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | FAX 510 1717 | WWW.VR.IS
Í dag þýðir ekkert að biðja Helgu um afgreiðslu. Hún er í fríi því 1. maí er rauður dagur.
Í staðinn fyrir að vinna getur Helga farið í kröfugöngu og varið réttindi sín. Við hvetjum
félagsmenn til að sýna samstöðu á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins og mæta á
Hlemm kl. 13.00 í gönguna.
Eftir útifund bjóðum við félagsmönnum í verkalýðskaffi í anddyri Laugardalshallar. Sjáumst í göngunni!
Í BÓKMENNTAGÖNGU Gengið er um staði þar sem
eitthvað sögulegt hefur gerst.
MYND/AÐSEND
FERMING Á ÍSLANDI Danskir foreldrar
telja að gjafirnar skipti börnin meira
máli en þær gera. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EINN HEIMA Nauðsynlegt er að meta
líkamlegan, andlegan og tilfinninga-
legan þroska barnsins þegar tekin er
ákvörðun um hvort skilja eigi það eftir
eitt heima. NORDICPHOTOS/GETTY