Fréttablaðið - 01.05.2014, Síða 25
FIMMTUDAGUR 1. maí 2014 | SKOÐUN | 25
Afleiðingar eineltis eru
flestum kunnar. Að lenda
í einelti er áfall bæði
fyrir börn og fullorðna og
getur haft verulega alvar-
legar sálrænar afleiðing-
ar fyrir þann sem fyrir
því verður. Kvíðinn sem
barnið finnur fyrir þegar
það þarf að mæta geranda
sínum í skólanum er mik-
ill, eins og þess fullorðna
sem þarf að líða einelti
af hálfu samstarfsaðila.
Fullorðið fólk ber ábyrgð
á börnunum sem hafa hvorki
þroska né úrræði til að verja sig
og bjarga sér. Þetta á við um ein-
eltismál eins og önnur mál, enda
er einelti samfélagsvandamál
sem fullorðið fólk þarf að leysa.
Einelti er ein tegund ofbeldis
og eins og í öðrum ofbeldismál-
um á aldrei að semja við gerand-
ann. Það ríkir einfaldlega ekki
jafningjagrundvöllur þar sem
annar aðilinn beitir hinn ofbeldi.
Þolandi og gerandi eiga aldrei að
vera í þeirri stöðu að þurfa að
takast í hendur til að leita sátta.
Það gengur einfaldlega ekki upp
þegar ofbeldi á í hlut. Ímyndið
ykkur að fórnarlamb nauðgunar
sé sett í þá stöðu að sættast við
nauðgara sinn með handabandi.
Alveg eins og einelti getur þrif-
ist á vinnustöðum getur eineltis-
menning verið ríkjandi í sam-
félögum. Það geta verið nokkrir
fullorðnir aðilar í litlum sam-
félögum sem halda samfélaginu
í skefjum með ofbeldi og einelt-
istilburðum sem verða til þess
að aðrir í samfélaginu þora ekki
að standa uppi í hárinu á þess-
um aðilum. Þeir vita hvað bíður
þeirra geri þeir það. Þegar svo er
komið verður til einelt-
ismenning þar sem fáir
ríkja og aðrir verða ann-
aðhvort ómeðvitað eða
meðvitað þátttakendur í
eineltinu eða þögul vitni.
Til er íslenskt sam-
félag sem er með virka
Facebook-síðu fólks sem
hefur þann tilgang að
hæða og gera lítið úr öðru
fólki í samfélaginu. Eng-
inn þorir að rugga bátn-
um og ástandið er óheil-
brigt. Það er hægt að
líkja þessu við áfengissjúka fjöl-
skyldu þar sem meðvirkni ríkir.
Hins vegar er ofbeldið sem hlýst
af eineltinu „hvati“ þeirra sem
þegja. Þetta eru mannleg og eðli-
leg viðbrögð fólks við óeðlilegum
aðstæðum sem eru óheilbrigðar
og mannskemmandi. Þetta er
ofbeldi. Spáið í hvaða skilaboð við
erum að senda börnunum okkar.
Brotist út úr vítahringnum
Í litlum samfélögum verða stjórn-
endur sveitarfélaganna að bregð-
ast við ástandi sem þessu. Þeir
bera ábyrgð á sínu samfélagi eins
og forstjórar bera ábyrgð á sínum
fyrirtækjum. Sama lögmál á við
hér. Það verður að ræða málið
opinskátt og hætta að fela það eða
tala í hálfum hljóðum þar sem
enginn heyrir. Íbúaþing þar sem
vandinn væri ræddur á opinská-
an hátt væri þjóðráð. Þar kemur
fram vilji flestra til að koma mál-
unum í lag. Miklar líkur eru samt
á að gerendurnir eða ofbeldis-
mennirnir sem vilja stjórna sam-
félaginu með ofbeldi mæti ekki
á fundinn en það er í raun alveg
sama þar sem á fundinum verður
gert ljóst að slík hegðun í samfé-
laginu sé ekki liðin og það þjapp-
ar góða hópnum saman og styrkir
hann og stjórnendur í baráttunni
gegn þessum illu öflum. Öllum
verður ljóst að einelti sé ekki liðið
og að þöggunin sé besti vinur
ofbeldismannsins. Þetta er leið til
að flæma þá í burtu sem eiga það
skilið en ekki þá sem verða fyrir
ofbeldi eins og virðist því miður
oftar vera raunin.
Í heimilisofbeldismálum er
nú farið að fjarlægja gerandann
af heimilinu í stað fórnarlambs-
ins og það sama á að eiga við um
gerendur í eineltismálum. Einelti
þarf að stöðva því það lagast ekki
af sjálfu sér. Svo er enn meiri
skaði skeður fyrir samfélög sem
eru komin á síður fjölmiðla sem
samfélag sem lætur ofbeldis-
menn vaða uppi. Samstaða og
upplýst umræða eru lykilorð í
baráttunni gegn einelti því það
splundrar samfélögum og eitrar
og afleiðingar þess geta haft víð-
tæk áhrif. Ég skora á stjórnend-
ur samfélaga sem glíma við slík-
an vanda að sýna ábyrgð og þor
og taka á meininu strax áður en
skaðinn verður of mikill.
Eineltismenning í samfélögum
Í Reykjavík búa tæplega
25 þúsund börn sem eru
sextán ára og yngri og á
hverju ári er sérstök hátíð
haldin þeim til heiðurs.
Barnamenningarhátíð í
Reykjavík er nú haldin í
fjórða skipti og stendur
fram til sunnudagsins 4.
maí.
Búist er við að um 40
þúsund manns muni njóta
þeirra 125 glæsilegu við-
burða sem eru á Barna-
menningarhátíð í ár. Fjöl-
breytni og úrval einkenna
dagskrána eins og sjá má á heima-
síðu hátíðarinnar www.barna-
menningarhatid.is og í bæklingi
sem öll leikskóla- og grunnskóla-
börn í Reykjavík fengu heim með
sér. Í Iðnó verður sköpun og leik-
gleði gert hátt undir höfði í sér-
stöku barnamenningarhúsi undir
nafninu Ævintýrahöllin. ASSITEJ
Ísland – samtök um leikhús fyrir
unga áhorfendur, efna til leiklist-
arhátíðar með vönduðum leik- og
danssýningum, vinnusmiðjum og
fleiri spennandi viðburðum. Víða
um borgina verða alls kyns við-
burðir fyrir alla aldurshópa.
Þema hátíðarinnar í ár er
öryggi og taka Barnamenning-
arhátíð í Reykjavík og Neyðarlín-
an höndum saman um að kenna
börnum mikilvægi þess að nýta
sér neyðarnúmerið 112. Skila-
boðin eru þau að barn eigi ekki
einungis að nota númerið þegar
eldsvoða og slys ber að höndum
heldur líka ef því líður illa eða
einhverjum sem það þekkir líður
illa. Einn einn tveir lagið
var samið í þeim tilgangi
af Dr. Gunna og Þórarinn
Eldjárn gerði textann. Hér er eitt
erindi úr laginu:
Neyðarnúmerið
Sem notast allir við
- ekki einungis
Við eldsvoða og slys –
Er líka vernd og vörn
Sem virkar fyrir börn
Ástæða þess að Barnamenning-
arhátíð í Reykjavík er jafnglæsileg
og stór hátíð og raun ber vitni er
vinna og sköpunarkraftur um 600
kvenna og manna sem standa á
bak við viðburði hátíðarinnar. Allt
þetta fólk á heiður skilinn fyrir að
vinna að einu göfugasta markmiði
sem til er, að gleðja börn.
Ömmur, afar og foreldrar eru
hvött til að kynna sér dagskrá
hátíðarinnar þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi, og
skemmta sér svo konunglega með
börnunum næstu daga. Gleðilega
Barnamenningarhátíð í Reykja-
vík 2014!
Einn einn tveir
og barnamenning
➜ Þema hátíðar-
innar í ár er öryggi og
taka Barnamenning-
arhátíð í Reykjavík og
Neyðarlínan höndum
saman um að kenna
börnum mikilvægi
þess að nýta sér
neyðarnúmerið 112.
EINELTI
Hildur Jakobína
Gísladóttir
ráðgjafi hjá Heil-
brigðum
stjórnarháttum
➜ Einelti er ein tegund
ofbeldis og eins og í öðrum
ofbeldismálum á aldrei að
semja við gerandann. Það
ríkir einfaldlega ekki jafn-
ingjagrundvöllur þar sem
annar aðilinn beitir hinn
ofbeldi. Þolandi og gerandi
eiga aldrei að vera í þeirri
stöðu að þurfa að takast í
hendur til að leita sátta.
MENNING
Sigríður Dögg
Guðmundsdóttir
kynningarstjóri
Barnamenn-
ingarhátíðar í
Reykjavík
Veit á vandaða lausn
MIKIÐ ÚRVAL AUKAHLUTA •
Grill og aukahlutir fást einnig í Búsáhöld, Kringlunni og Líf & list, Smáralind.
NÚ HITNAR Í KOLUNUM
án reyks með Lotus kolagrilli
Fastus kynnir byltingarkennt borðgrill
F
A
S
TU
S
_F
_1
4.
04
.1
4
• Innbyggð vifta sem tryggir kolum súrefni
• Tilbúið til matreiðslu eftir 3-4 mínútur
• Tvöfaldur veggur - kemur í veg fyrir að ytra byrði hitni
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Hægt að færa grillið til eftir þörfum þegar það er í notkun
• Fitan lekur ekki á kolin
• Auðvelt að þrífa - hægt að taka alveg í sundur
• Má fara í uppþvottavél
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Grillpönnur Tangir Penslar