Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.05.2014, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 01.05.2014, Qupperneq 62
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54 „Ég fæ mér yfirleitt grænt te og AB- mjólk í morgunmat þessa dagana. Það er samt bara vegna þess að ástkær kaffivélin mín er í viðgerð og af því að ég borðaði of mikið súkkulaði um páskana og grænt te er svo afskaplega afeitrandi.“ Steinunn Jónsdóttir Reykjavíkurdóttir og söngkona Amaba Dama MORGUNMATURINN „Ég leik hjákonu aðalglæpamanns- ins Sergej, sem leikinn er af Zlatko Krickic. Týpan sem ég leik er töff- ari sem er alltaf að hanga með glæponum. Ég hugsaði vel og lengi hvort ég ætti að taka að mér þetta hlutverk. Ég er frekar fáklædd en sýni nú ekki mikið hold,“ segir söngkonan Þórunn Antonía Magn- úsdóttir. Hún leikur í kvikmyndinni Borgríki II – Blóð hraustra manna sem frumsýnd verður í október. Í myndinni leikur Þórunn meðal annars í ástarsenu með fyrrver- andi glamúrmódelinu Ernu Gunn- þórsdóttur og fyrrnefndum Zlatko. „Þetta er sem sagt eldheit ást- arsena. Við erum ekki tvö í henni heldur þrjú. Ég hef ekki leikið í slíkri senu áður nema í einhverju gríni með Steinda jr. í Steindanum okkar. Það var auðvitað allt, allt öðruvísi nálgun,“ segir Þórunn. „Þetta er vandmeðfarin sena og ég hugsaði vel um hvort ég ætti að gera þetta eða ekki. Ég komst að þeirri niðurstöðu að þetta þjónaði tilgangi í sögunni í flottri bíómynd þannig að ég ákvað að slá til. Ég hitti leikstjórann, Ólaf DeFleur, og treysti honum strax fyrir þessu,“ bætir Þórunn við en játar að það hafi verið örlítið sérstakt að taka senuna upp. „Það var mjög undarlegt að mæta í vinnuna og þurfa að vera uppi í rúmi heilan dag með tveim- ur einstaklingum. En um leið og maður hættir að flækja þetta, því þetta er bara atriði í bíómynd, þá var þetta mjög skemmtilegt og ekkert mál. Það er alltaf gaman að víkka sjóndeildarhringinn. Lífið er stutt og það er um að gera að slá til og gera eitthvað af þessu tagi ef mann langar og líður vel með það. Þarna var líka fagfólk í hverju einasta horni.“ Þórunn hefur ekki séð senuna en hlakkar vissulega til að sjá kvik- myndina í haust. „Ég treysti klippurunum og fag- fólkinu algjörlega hundrað pró- sent. Maður verður að leggja sig í hendurnar á þeim ef maður ætlar að gera þetta. Ég leik konu sem er óhrædd og allt öðruvísi týpa en ég. Það er skemmtilegast. Að fá að skella sér í einhvern búning. Ég myndi ekki sjá sjálfa mig fyrir mér í svipaðri senu. Ég er ekki mikið í „threesome“ með útlensk- um glæpamönnum,“ segir Þórunn og skellihlær. Þórunn gengur nú með sitt fyrsta barn og er hálfnuð með meðgönguna. „Þegar myndin kemur út í haust verð ég nýbökuð móðir. Þá verð ég örugglega fegin að sjá gamla, góða líkamann minn í flottu formi á hvíta tjaldinu,“ segir Þórunn á léttu nótunum. Hún slær ekki slöku við og er með mörg járn í eldinum. „Ég er að leggja lokahönd á nýja plötu sem ég vinn með Bjarna í Mínus og Halli Ingólfssyni. Ég er ekki komin með útgáfudag en hún er alveg að verða tilbúin. Síðan er ég með Íslenska listann sem er vikulegur sjónvarps- og útvarps- þáttur. Ég er alltaf með einhver járn í eldinum og er vakandi fyrir tækifærum. Ef einhvern vantar ólétta konu í hlutverk er ég geim.“ liljakatrin@frettabladid.is Fáklædd og hangir með glæponum Söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir leikur hjákonu glæpamanns í kvikmyndinni Borgríki II– Blóð hraustra manna. Í myndinni leikur hún meðal ann ars í sjóðheitri kynlífssenu með Ernu Gunnþórsdóttur og Zlatko Krickic. FAGMENN Á SETTI Þórunni leið afar vel á setti Borgríkis II. MYND/HÖRÐUR ÁSBJÖRSSON Ég myndi ekki sjá sjálfa mig fyrir mér í svipaðri senu. Ég er ekki mikið í „threesome“ með útlenskum glæpamönnum. Þórunn Antonía Magnúsdóttir. „Ég er búinn að vera með Óttarr Proppé á bakinu síðustu daga. Ég þarf að æfa og spegla allar hreyf- ingarnar hans og það er búið að vera aldeilis erfitt,“ segir Val- geir Magnússon hjá auglýsinga- stofunni Pipar/TBWA. Hann er með íslenska Eurovision-hópnum í Kaupmannahöfn og verður stað- gengill alþingismannsins og Polla- pönkarans Óttars Proppé á stórri æfingu á Eurovision-sviðinu í B&W-höllinni á föstudag. „Hann flýgur heim á föstudag- inn til að keppa í Útsvari og kemur aftur á laugardag,“ segir Valgeir. Hann segir það hafa verið meira mál en hann hélt að æfa dansinn og sönginn í Eurovision-laginu Enga fordóma. „Fyrst fannst mér þetta ekkert mál að hoppa inn í eina æfingu. Síðan komst ég að því að þetta er heilmikið mál. Ég hef alltaf verið mikill dansari en ég verð að syngja þetta líka. Ég ætla rétt að vona að ég púlli það.“ Valgeir segir að Íslendingar þurfi ekki að óttast þó Óttarr skjótist til Reykjavíkur í einn dag. „Hann er mikið í því að fara á milli Kaupmannahafnar og Íslands. Hann var í Kaupmanna- höfn áður en við fórum út í Euro- vision, flaug heim til að fara á æfingu með Útsvarsfólkinu og daginn eftir flaug hann út til Kaupmannahafnar með okkur. Íslenska þjóðin þarf ekki að hafa áhyggjur. Hann er í mikilli flug- æfingu.“ - lkg Flýgur heim til að keppa í Útsvari Óttarr Proppé getur ekki æft með Pollapönki á stórri æfi ngu á föstudag. ÓHRÆDDUR Valgeir sést hér í hvítum pollagalla. MYND/EINKASAFN „Við sérhæfum okkur í útgáfu hús- tónlistar á vínyl,“ segir Áskell Harð- arson, betur þekktur sem House- kell og einn plötusnúðanna að baki íslenska útgáfufyrirtækinu BORG LTD. Ásamt Áskeli standa að BORG þeir Ómar Egill Ragnarsson og Jón Reginbald Ívarsson. „Við deilum allir drífandi áhuga á hústónlist. Fyrsta útgáfan kom út um miðj- an mars – en þá gáfum við út Alex Agore, þekkt nafn innan hústónlist- arheimsins.“ En er ekki furðulegt að gefa út á vínyl árið 2014? „Nei, alls ekki. Vínyllinn átti undir högg að sækja á tímabili, en eins og með alla góða hluti þá kom hann til baka og það margefldur! Þetta er miðill sem hentar plötusnúðum mjög vel, sem og söfnurum og öðrum tónlistar- aðdáendum“ segir Áskell. Nú er önnur EP-plata fyrirtækis- ins komin út. „Það er Hollending- urinn Frits Wentink og platan heit- ir Marienleben. Hún hefur þegar fengið mikla spilun hjá alþjóðlegum plötusnúðum og lög af henni hljóm- að á nokkrum stærstu skemmti- stöðum heims. Nú þegar platan er komin til landsins bjóðum við til sumarveislu í Lucky Records við Rauðarárstíg í dag á milli þrjú og sex,“ segir Áskell og býður alla velkomna. „Meðal annars mun vonarstjarna íslensku hústónlist- arsenunnar, Viktor Birgiss, flytja frumsamda tónlist.“ - ósk Vínyllinn kominn aft ur margefl dur Áskell, Jón Reginbald og Ómar Egill halda hústónlistarveislu í Lucky Records. BORG-PLÖTUSNÚÐARNIR Jón Regin- bald, Ómar Egill og Áskell. MYND/HÖRÐUR ELLERT ÓLAFSSON – fyrir lifandi heimili – R e y k j a v í k o g A k u r e y r i E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0 w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM OPIÐ Í DAG 1. MAÍ FRÁ KL. 1000 TIL 2200 Aðeins í dag
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.