Fréttablaðið - 10.05.2014, Síða 8
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Vorferð Félags Íslenskra rafvirkja er fyrirhuguð
laugardaginn 17. maí 2014.
Dagskrá:
Farið verður í rútu frá Stórhöfða 31,
stundvíslega kl: 10:00
Haldið verður norður Hvalfjarðargöng og á
Grundartanga svæðið.
Þar verður nýtt tengivirki Landsvirkjunar að
Klafastöðum skoðað.
Eftir leiðsögn um tengivirkið förum við og skoðum
Hernámssafnið að Hlöðum.
Heimleiðin verður um hinn gullfallega Hvalfjörð.
Skráning fyrir 13. maí í síma 580-5253
eða á netfangið: jens@rafnam.is
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.is
HONDA S2000 Hardtop, blæjubíll
Nýskráður 6/2006, ekinn 51 þús.km, 6 gíra, afturdrif,
241 hestafl, Type-R soundsystem, sannkallaður dekur bíll.
Verð kr. 3.890.000
EFNAHAGSMÁL Rúmlega 200 fjöl-
skyldur sem eiga hreina eign upp
á meira en 120 milljónir eiga von á
um milljarði í skuldaniðurfellingu
samkvæmt upplýsingum frá ríkis-
skattstjóra.
Það er þó háð
því að frumvarp
ríkisstjórnar-
innar um niður-
færslu höfuðstóls
verðtryggðra
lána verði sam-
þykkt á Alþingi.
Samkvæmt því
á að setja 80
milljarða í niður-
færsluna.
Ríkisskattstjóri tók saman yfirlit
fyrir efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis um skuldir og eignir
þeirra sem eru með fasteignalán.
Í samantektinni kemur fram að
um 18.500 fasteignaeigendur áttu
ekkert um síðustu áramót en skuld-
uðu rúmlega 434 milljarða króna.
Í hópnum sem á eignir frá nokk-
ur þúsund krónum og upp í tíu
milljónir eru jafn margir og þeir
sem ekkert eiga, eða um 18.500.
Fasteignaskuldir þessa hóps nema
314 milljörðum.
229 eru í hópnum sem á hreina
eign upp á 120 milljónir. Þessi
hópur skuldar 2,2 milljarða í fast-
eignalán.
Í hópnum sem á næstmest eða
hreina eign á bilinu 110 til 120
milljónir eru 87 fjölskyldur. Sam-
tals skulda þessar fjölskyldur
innan við milljarð eða um 800 millj-
ónir króna.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður og fyrrverandi fjármála-
ráðherra, gagnrýnir harðlega
að efnamiklir fái niðurfellingu
skulda.
Hann segir að það megi leiða að
því líkur að nærri fimm hundruð
manns, sem eiga eignir umfram
100 milljónir króna, fái ein hverjar
niðurfellingar á húsnæðis-
skuldum sínum. Sumir í hópnum
fái væntan lega fulla niðurfell-
ingu eða fjórar milljónir króna.
Hann segir að þessu til viðbótar
sé verið að fella niður auðlegðar-
skatt á þetta fólk.
„Maður eiginlega trúir þessu
ekki,“ segir Steingrímur.
Steingrímur segir að á meðan
hinir efnamestu fái skuldaniður-
fellingar fái þeir sem standa verst
lítið sem ekkert. Ástæður þess séu
meðal annars þær að þessir hópar
séu búnir að nýta þau úrræði sem
voru í boði fyrir skuldara.
johanna@frettabladid.is
Ríkir fá milljarð í
skuldaniðurfellingu
Ríkisskattstjóri hefur tekið saman yfirlit yfir eigna- og skuldastöðu fasteignaeig-
enda sem eru með verðtryggð lán. Rúmlega 18 þúsund fjölskyldur skulda umfram
eignir. Á fimmta hundrað eiga hreina eign upp á hærri upphæð en 100 milljónir.
Svar ríkisskattstjóra til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis miðast
eingöngu við fjölskyldur sem eru með fasteignalán. Þeir sem eru skuld-
lausir eru því ekki taldir með í upptalningunni. Ríkisskattstjóri greinir
skuldastöðu efnamesta hópsins. Í svari hans segir að 229 fjölskyldur,
einstaklingar eða hjón, skuldi lán vegna kaupa á eigin íbúðarhúsnæði en
hver og ein þessara fjölskyldna eigi meira en 120 milljónir í eignir umfram
skuldir. Þessar fjölskyldur skulda rúma 2,2 milljarða vegna íbúðarkaupa,
eða að jafnaði 9,7 milljónir hver. Á móti skuldum eiga þessar fjölskyldur
44,4 milljarða í eignir. Eignir umfram skuldir eru 40,4 milljarðar, eða tæpar
177 milljónir að jafnaði á hverja fjölskyldu.
EIGA 177 MILLJÓNIR AÐ JAFNAÐI
MILLJARÐUR Embætti ríkisskattstjóra segir að þeir efnamestu fái milljarð af þeim 80 milljörðum sem ríkisstjórnin ætlar að
verja til lækkunar höfuðstóls verðtryggðra lána. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Fjöldi fjölskyldna Eignir Skuldir vegna
íbúðakaupa
18520 0 434 milljarðar
18530 0-10 milljónir 314 milljarðar
10900 10-20 milljónir 152 milljarðar
130 100-110 milljónir 1,4 milljarðar
87 110-120 milljónir 805 milljónir
229 120 milljónir
eða meira
2,2 milljarðar