Fréttablaðið - 10.05.2014, Síða 22
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
Á leiðinni í fyrstu pruf-una mína, fyrir Kardi-mommu bæinn, segi ég við mömmu: Æi, eigum við ekki bara að fara heim og gera eitthvað
annað? En hún hvetur mig til að
fara því við erum komnar hálfa leið
upp í leikhús. Ég hef oft hugsað hvað
hefði gerst ef við hefðum snúið við
þennan dag því það var svona upp-
hafið að mínu leikhúslífi. Ég lék
púðluhund í þeirri sýningu, 11 ára,“
segir hin 16 ára gamla Melkorka
Davíðsdóttir Pitt.
Melkorka leikur Sollu stirðu
í uppfærslu Þjóðleikhússins á
Latabæ sem fer á fjalirnar næsta
haust. Rúnar Freyr Gíslason leik-
stýrir og Magnús Scheving er höf-
undur verksins en hann er sá sem
hefur leikið Íþróttaálfinn frá upp-
hafi en er sestur í helgan stein, hvað
íþróttaálfinn varðar. Áætluð frum-
sýning er í september.
Melkorka var valin úr hópi hátt í
tvö hundruð hæfileikaríkra stúlkna
sem sóttust eftir að fá hlutverk
bleikhærðu, glaðbeittu stelpunnar í
Latabæ. Karakterinn er eitt þekkt-
asta íslenska barnahlutverk seinni
tíma og því ákveðin pressa að setja
upp hárkolluna.
„Ég er að stíga inn í fyrir fram
mótað hlutverk sem allir þekkja
mjög vel og ég ætla að gera mitt
besta til að skila hlutverkinu vel af
mér. Solla er hress og skemmtileg
stelpa sem byrjaði á því að vera stirð
en dansar nú og syngur í Latabæ.
Ég horfði sjálf mikið á Latabæ sem
barn og nú er systir mín, sem er níu
ára, aðdáandi. Ég er einmitt ekki
búin að segja henni fréttirnar. Held
hún verði ansi ánægð með að systir
hennar verði Solla.“
Bjóst ekki við að fá hlutverkið
Melkorka mælti sér mót við blaða-
mann á kaffihúsi niðri í bæ. Skóla-
bækurnar og yfirstrikunarpenninn
eru ekki langt undan þar sem hún er
á leiðinni í íslenskupróf. Melkorka
stundar nám á fyrsta ári í Mennta-
skólanum í Reykjavík þar sem hún
er að fóta sig í framhaldsskólalífinu.
„Ég var einmitt að lesa undir
sögupróf þegar Rúnar Freyr
hringdi í mig og sagði að ég hefði
verið valin. Það gerði prófalestur-
inn miklu skemmtilegri en ég bjóst
aldrei við því að fá hlutverkið. Það
voru svo margar flottar stelpur að
sækja um.“
Melkorka býr í Skerjafirðinum
ásamt foreldrum sínum, Guðrúnu
Eddu Þórhannesdóttur kvikmynda-
framleiðanda og Davíð Pitt arki-
tekt. Hún er elst í systkinahópnum,
á systurina Ísold sem er níu ára og
bróðurinn Höskuld Þór sem er eins
og hálfs árs. Melkorka hefur meðal
annars verið búsett um tíma í Bret-
landi þar sem hún gekk í breskan
skóla með miklum aga. Hún er
Vestur bæingur núna.
„Ég kom úr litlum bekk í Landa-
kotsskóla, við vorum bara níu í
bekk, svo það er ákveðin breyting
að koma inn í MR. Mikið að gerast
og mér finnst það æðislega gaman.
Er komin inn í Herranótt [leikfélag
MR] og verð þar í stjórn á næsta
ári,“ segir Melkorka sem hefur æft
ballett í mörg ár í Listdansskóla
Íslands og var það þaðan sem hún
var fengin í sína fyrstu prufu.
Heillandi leikhúsilmur
Leikhúsið hefur lengi heillað Mel-
korku sem er ekki ókunn leiksvið-
inu og hefur brugðið sér í fleiri hlut-
verk en púðluhunds. Hún lék í Oliver
Twist, Galdrakarlinum í Oz og nú
síðast í Fyrirheitna landinu í Þjóð-
leikhúsinu í fyrra. Hún er þó ekki
viss um að leiklistin verði fyrir val-
inu í framtíðinni en draumurinn er
að geta farið út fyrir landsteinana
í nám.
„Það er eitthvað við sviðið og leik-
húsið sjálft. Það er sérstakur leik-
húsilmur í loftinu sem ég elska,
stemmingin er spennandi og maður
kynnist skemmtilegu fólki.“
Melkorka gerir sér grein fyrir
að nú verði hún ungum krökkum
á öllum aldri fyrirmynd og er vel
undir það búin að axla þá ábyrgð.
„Rúnar Freyr spurði mig ein-
mitt hvort ég væri nokkuð með ein-
hverjar óviðeigandi myndir af mér á
Facebook en hann þarf ekki að hafa
áhyggjur af því. Ég tékkaði samt um
daginn til öryggis,“ segir Melkorka
hlæjandi, full tilhlökkunar fyrir
komandi tímum.
Hún hefur ekki áhyggjur af því
að geta ekki sameinað skóla og
leikinn í Latabæ næsta vetur.
„Þegar það er mikið að gera
er maður bara betri í að skipu-
leggja sig og ég þrífst vel
þannig. Sumarið fer mestan
part í undirbúning fyrir leik-
ritið og ég get eiginlega ekki
beðið. Þetta verður skemmti-
legt ævintýri.“
Ég er að stíga inn í
fyrir fram mótað hlutverk
sem allir þekkja mjög vel
og ég ætla að gera mitt
besta til að skila hlutverk-
inu vel af mér. Solla er
hress og skemmtileg stelpa
sem byrjaði á því að vera
stirð en dansar nú og
syngur í Latabæ.
Melkorka Davíðsdóttir Pitt, 16 ára
menntaskólanemi og leikkona.
Álfrún
Pálsdóttir
alfrun@frettabladid.is
Frá púðluhundi að Sollu stirðu
Melkorka Davíðsdóttir Pitt var valin úr fjöldanum öllum af hæfileikaríkum stúlkum til að leika Sollu stirðu í Latabæ næsta
vetur í Þjóðleikhúsinu. Hún hlakkar til að setja upp bleiku hárkolluna en þessi 16 ára gamla leikkona og dansari gæti varla verið
ungu kynslóðinni betri fyrirmynd. Melkorka bjóst aldrei við að fá hlutverkið sem léttir henni lundina á prófatímum í MR.
Selma Björnsdóttir– 1995.
Leikfélagið Loftur setur upp
leikritið Áfram Latibær. Selma
hefur marga fjöruna sopið síðan
hún lék Sollu á sviði og er marg-
reynd söng- og leikkona sem og
leikstjóri við góðan orðstír.
Solla stirða í gegnum tíðina
SPENNANDI VERKEFNI Melkorka Davíðsdóttir Pitt setur hvergi bangin upp bleiku hárkolluna og verður Solla Stirða
næsta vetur í Þjóðleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Linda Ásgeirsdóttir– til
ársins 2010. Frá því að hún lék
Sollu er hún best þekkt fyrir að
vera annar helmingur tvíeykisins
Skoppu og Skrítlu sem hafa gert
garðinn frægan hjá ungu kyn-
slóðinni í gegnum tíðina.
Unnur Eggerts-
dóttir– frá 2010
og mun halda
áfram að vera
í hlutverkinu á
skemmtunum.
Söngkona og
dagskrárgerðar-
kona sem tók
þátt í Eurovision
í fyrra og lenti í
öðru sæti.
Julianna Rose
Mauriello–
2004-2008.
Lék Sollu
í fyrstu
tveimur
þáttaröð-
unum. 23
ára í dag og
einbeitir sér
að háskólanámi
og hefur því
tekið því rólega
í leiklistinni síðan
hún lék bleik-
hærðu stelpuna í
Latabæ.
Chloe Lang– 2013.
Solla í þáttaröðum
þrjú og fjögur.