Fréttablaðið - 10.05.2014, Síða 28

Fréttablaðið - 10.05.2014, Síða 28
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 Atvinnu- og velferðarmál eru þau mál sem tekist er á um í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í Reykja- nesbæ. Þar hefur Sjálfstæðisflokk- urinn haldið um stjórnartaumana í þrjú kjörtímabil, en nú eru blikur á lofti með þremur nýjum framboðum í bænum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið með hreinan meirihluta í bæjar- stjórn frá kosningunum 2002. Flokk- urinn átti sjö af ellefu bæjarfulltrú- um þar til Gunnar Þórarinsson ákvað að segja skilið við félaga sína og stofna nýtt framboð, Frjálst afl. Samkvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar Félagsvísindastofnunar, sem gerð var fyrir Morgunblaðið og birt á fimmtudag, myndi meiri- hlutinn falla yrði gengið til kosn- inga nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi fjóra bæjarfulltrúa, Samfylkingin tvo, og Framsóknarflokkurinn einn samkvæmt könnuninni. Ný framboð fengju samtals fjóra bæjarfulltrúa: Píratar tvo og Frjálst afl og Bein leið einn hvort framboð. Atvinnuleysi hefur verið mikið í Reykjanesbæ og atvinnumálin í for- grunni í kosningabaráttunni. Sjálf- stæðismenn hafa bundið miklar væntingar við stóriðju í Helguvík, og bærinn hefur lagt í gríðarlegar fjárfestingar vegna þeirra verkefna. Hörð glíma við fjármálin Árni Sigfússon, bæjarstjóri Sjálf- stæðisflokksins og oddviti hans í Reykjanesbæ, berst nú fyrir því að halda embættinu. Eins og hjá öðrum oddvitum eru fjármál bæjarins og atvinnumálin honum ofarlega í huga. „Glíman við fjármálin hefur verið hörð, Reykjanesbær hefur horft upp á stærsta atvinnuveitandann hverfa burtu og glímt við mikið atvinnu- leysi í kjölfarið,“ segir Árni. „Það hafa orðið veruleg umskipti í rekstri bæjarins síðustu fjögur ár,“ segir Árni. Hann nefnir sem dæmi að veltufé sé jákvætt og niðurstaðan á síðasta ári hafi verið jákvæð fyrir fjármagnsliði og afskriftir. Árni segir umræðu um eigna- sölu hafa verið villandi. „Við erum í hópi þeirra sveitarfélaga á land- inu sem eiga mestar eignir, en um leið í hópi þeirra sveitarfélaga sem skulda mest. Við eigum höfn og hita- veitu, stórar eignir sem aðrir hafa losað sig frá. Við eigum meirihluta í HS Veitum og við ætlum að halda honum. Þetta gengur ekki út á að selja eignir, heldur styrkja stöðuna á rekstri sveitarfélagsins.“ Árni segir að þessar tölur verði að styrkjast enn frekar. Leið Sjálf- stæðisflokksins til að ná því mark- miði sé að vinna að því að fá fjöl- breytt og vel launuð störf í bænum. „Við erum á láglaunasvæði og það er mikil áhersla á það hjá okkur að breyta því,“ segir Árni. Hann segir mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokk- inn að fá áframhaldandi umboð til að klára verkin. Árni segir að tekist hafi að styrkja skólana í Reykjanesbæ verulega á þessu kjörtímabili, bæði leikskóla og grunnskóla. „Þeir eru að verða meðal þeirra bestu, en voru í slæmri stöðu,“ segir Árni. Hann segir ekki sjálfgefið að sá árangur haldist, það þurfi að halda honum við. „Við höfum unnið að umbyltingu í umhverfismálum, unnið í inn- viðunum og breytt samfélaginu á undan förnum árum,“ segir Árni. Hann segir það markmið flokksins að vinna að heilsueflandi samfélagi með lagningu göngustíga. Það sé liður í því að skapa aðstæður til að fólk geti stundað útivist óháð efna- hag. Það verði tekið lengra í fram- tíðinni, og fyrirtæki og stofnanir fengin til að taka þátt í að byggja upp heilsueflandi samfélag. Vilja heildarendurskipulagningu Við viljum nýja sýn fyrir Reykja- nesbæ. Samfélagið hefur verið upp- fullt af erfiðleikum og óróa, við þurfum að skapa samstöðu meðal íbúa,“ segir Friðjón Einarsson, odd- viti Samfylkingarinnar í Reykja- nesbæ. Hann segir að fjármál sveitarfélagsins hafi verið í ólestri árum saman, og á því verði að taka til þess að hægt sé að gera eitthvað fyrir íbúana. „Reykjanesbær hefur verið að fjárfesta gríðarlega mikið í hús- næði, til dæmis söfnum og Hljóma- höllinni, sem hefur kostað skatt- greiðendur gríðarlega peninga. Við viljum hætta þessu til að ná tökum á fjármálunum. Við höfum lagt fram tíu ára áætlun til að ná fjármálunum á rétt ról. Það mun taka næstu átta til níu ár að gera það, og á meðan verða fjárfestingar að vera í lág- marki,“ segir Friðjón. Eins og oddvitar annarra fram- boða segir Friðjón atvinnumálin mikilvæg. „Við viljum efla minni og meðalstór fyrirtæki sem þegar eru í bænum. Það er oft horft á stóru fyrir tækin sem eiga að vera að koma með starfsemi í bæinn. Við höfum beðið eftir þeim í tólf ár. Við viljum frekar einbeita okkur að skapandi greinum, ferðaþjónustu og þeirri þjónustu sem fyrir er.“ Hann segir ljóst að sveitar- stjórnar menn muni aldrei skapa atvinnu, það geri litlu fyrir- tækin. „Við viljum aðstoða þau við markaðs setningu og skapa að- stæður hjá okkur til að þeim líði vel og þau vaxi og dafni.“ Áherslur Samfylkingarinnar snúa einnig að því að fjölskyldur geti búið við mannsæmandi aðstæður í Reykjanesbæ. Friðjón segir Sam- fylkinguna vilja auka greiðslur til foreldra vegna íþrótta- og tóm- stundastarfs barna úr 10 þúsund krónum á ári í 30 þúsund á næsta kjörtímabili. „Við viljum einnig auka umönnunargreiðslur til dag- mæðra til að skapa meiri fjölbreyti- leika í dagvistun.“ Þá vill Samfylkingin beita sér fyrir endurskipulagningu á stjórn- sýslu og rekstri Reykjanesbæjar. „Nú hafa allir flokkar samþykkt okkar tillögu um að taka rekstur Reykjanesbæjar út til að byrja upp á nýtt næsta haust.“ Stórátak í að bæta þjónustuna „Það þurfa að verða stórar breyt- ingar í Reykjanesbæ, hvernig sem að verður farið, það er algerlega á hreinu,“ segir Trausti Björgvinsson, oddviti Pírata, eins þriggja nýrra framboða í Reykjanesbæ. „Ég held að þetta sé þannig að þeir sem stýra séu búnir að sitja of lengi á stólunum og séu staðnaðir,“ segir Trausti. Hann vill gera stór- átak í að bæta þjónustu við bæjar- búa. Til dæmis taki þrjár vikur að fá tíma til að sækja um fjárhagsað- stoð, en í heildina líði yfirleitt átta til tíu vikur þar til fólk fái þá aðstoð sem það þarf. Mikið af því fólki sem þurfi þessa aðstoð eigi við vandamál að stríða og hafi ekki orku til að tak- ast á við kerfið til að fá aðstoð. Velferðarmálin eru helsta baráttu- mál Pírata. „Það þarf að stokka vel- ferðarmálin algerlega upp,“ segir Trausti. Hann bendir á að um 900 ein- staklingar leiti sér hjálpar hjá Fjöl- skylduhjálp Íslands í hverjum mánuði. Fjárhagsstaða bæjarins er mjög alvarleg, og bærinn gæti neyðst til þess að selja meira af hlut sínum í HS Orku, segir Trausti. Hann tekur fram að það sé alls ekki stefna Pírata að selja stærri hlut í fyrir- tækinu, en varla sé hægt að sjá að hægt sé að sleppa við það, bærinn verði að borga skuldirnar. Vilja ópólitískan bæjarstjóra Eitt þriggja nýrra framboða í Reykjanesbæ í komandi kosn ingum er Frjálst afl, sem er klofnings- framboð úr Sjálfstæðisflokknum. „Ég átti ekki samleið með full- trúum Sjálfstæðisflokksins,“ segir Gunnar Þórarinsson, oddviti Frjáls afls. Hann bauð sig fram gegn Árna Sigfússyni bæjarstjóra í prófkjöri flokksins en tapaði. Honum var boðið sjöunda sætið á listanum en ákvað að þiggja það ekki. „Mér var því nauðugur einn kostur að fara í sérframboð ásamt mörgu góðu og áhugasömu fólki víðs vegar að úr atvinnulífinu ef ég ætl- aði að halda áfram að berjast fyrir þeim málefnum sem eru mér hug- leikin,“ segir Gunnar. Hann segir að nýtt framboð Frjáls afls muni beita sér fyrir því að ráð- inn verði ópólitískur bæjarstjóri með reynslu af rekstri til að endurskipu- leggja fjármál bæjarins. „Við telj- um að það muni leiða til þess að við getum hagrætt verulega.“ Gunnar segir stöðuna í fjár- málum bæjarins mjög alvarlega. „Við viljum hagræða í rekstrinum og það er hægt að gera með ýmsu móti, við erum með ýmsar hug- myndir sem munu safnast saman.“ Hann segir að efla þurfi atvinnu- stigið í bænum, tækifæri liggi bæði í ferðaþjónustu og Helguvík. „Við bindum enn vonir við að álverið komi, þótt við séum reyndar búin að bíða lengi eftir því. Við sjáum líka fyrir okkur að ferðaþjónustan muni eflast verulega, þar vantar ákveðnar grunnstoðir sem þarf að byggja upp.“ Frjálst afl mun einnig beita sér fyrir velferð íbúanna og styðja við bakið á barnafjölskyldum. „Við viljum efla íþrótta- og tómstunda- starf og gera fjölskyldunum kleift að nýta sér það,“ segir Gunnar. Þá þurfi að bæta grunnþjónustu á borð við menntun, sérstaklega með það fyrir augum að öllum líði vel í skólanum. „Það virðist vera ákveðin spenna í samfélaginu, það er kvíði í krökkunum sem getur fylgt því ástandi sem hefur verið í atvinnu- málunum hér á síðustu árum.“ Forgangsraða fyrir íbúana Bein leið er eitt þriggja nýrra fram- boða sem bjóða fram í Reykjanesbæ í kosningunum. „Framboðið varð til upp úr spjalli, einhverri undir- öldu sem við fundum fyrir í samfé- laginu,“ segir Guðbrandur Einars- son, oddviti framboðsins. Hann segir bæjarbúa vilja breytingar og nú standi þeim til boða óflokks- bundið framboð. „Við viljum standa fyrir opnari stjórnsýslu og auknu samráði við fólkið í bænum,“ segir Guð brandur. Hann segir að gera þurfi úttekt á fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar í ljósi mikilla skulda bæjarfélagsins og eignasölu undanfarinna ára. Þá vill framboðið að ráðinn verði fag- legur bæjarstjóri eftir kosningar. „Við viljum forgangsraða í þágu íbúa í sveitarfélaginu. Við búum við það að félagsleg útgjöld, allt sem tengist fjölskyldum, leikskólum og fjárhagslegri aðstoð, er minna hér en í öðrum sveitarfélögum. Reykja- nesbær er að dragast aftur úr í þjón- ustu við íbúana,“ segir Guðbrandur. Hann segir sveitarfélagið hafa offjárfest í verkefnum sem ekki hafi farið af stað, í þágu stórfyrir- tækja sem ekki hafi látið sjá sig. Það sé áþján fyrir bæjarfélagið. Hann segir hægt að draga verulega úr framkvæmdum og eyða frekar fé í þágu íbúa. „Við verðum að einbeita okkur að grunnhlutverki sveitarfélaga. Við getum ekki eytt þeim peningum sem við eigum að nýta í þjónustu við íbúa eins og okkur dettur í hug,“ segir Guðbrandur. Þarf að efla atvinnuna „Við þurfum að fá meiri atvinnu í bæjarfélagið, og til þess þarf meira fólk. Við þurfum að nýta þau atvinnutækifæri sem við erum komin með í Helguvík og leggja áherslu á nýsköpun, ferðaþjón- ustu, fiskiþorp og listamannaþorp hefur komið til tals,“ segir Kristinn Jakobs son, oddviti Framsóknar- flokksins. Hann segir flokkinn ætla að berj- ast fyrir auknum lífsgæðum, til dæmis með auknum gæðastundum fyrir fjölskylduna. „Við þurfum að samhæfa skóla- og frístundastarf og samhæfa það almennings- sam göngum þannig að við getum minnkað skutlið.“ Kristinn segir flokkinn vilja betri skóla, með aðstöðu til að ljúka heimanámi í skólanum. „Við viljum að leikskólar verði með sveigjan- legri opnunartíma,“ segir Kristinn. Hann segir fólk ljúka vinnu á mis- munandi tímum og að finna verði lausnir svo hægt sé að rýmka til í opnunartíma leikskóla. „Það kostar peninga, en það verður þá bara að hagræða til að það takist.“ Taka verður á fjárhagsstöðu bæjarins, en með aukinni atvinnu aukast tekjur bæjarins, segir Krist- inn. „Ef eitthvað af þeim verkefnum sem koma til greina í Helguvík fer í gang aukast tekjur bæjarins. Ég held að það sé eina lausnin, að auka atvinnustigið og fá þessi verkefni sem hafa verið í undirbúningi í tólf til fjórtán ár.“ Framsóknarflokkurinn vill leggja meiri áherslu á lítil og meðal stór fyrirtæki. „Þau hafa verið í svolítilli biðstöðu. Þegar menn bíða alltaf eftir ein- hverju stóru vilja litlu lausnirnar gleymast. Áherslan hefur öll verið á stóru verkefnin.“ Mest áhersla á fjármál og atvinnu Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar og mikið atvinnuleysi er oddvitum efst í huga í kosningabaráttunni. Könnun sýnir að Sjálfstæðis- flokkurinn gæti misst meirihlutann sem hann hefur haft í tólf ár. Þrjú ný framboð keppa um hylli kjósenda í Reykjanesbæ. ÁRIÐ 2010 14.030 bjuggu í Reykjanesbæ. ÁRIÐ 2014 14.610 búa í Reykjanesbæ. Frjálsir með Framsókn Sjálfstæðisflokkurinn Vinstri grænir Samfylkingin Fjöldi bæjarfulltrúa 14,0% 4,9% 52,8% 28,4% FYLGI FLOKKANNA Kosningar 2010 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR REYKJANESBÆR ÁRIÐ 2014 10.670 eru á kjörskrá. ÁRIÐ 2010 9.355 voru á kjörskrá. Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.