Fréttablaðið - 10.05.2014, Qupperneq 28
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Atvinnu- og velferðarmál eru þau
mál sem tekist er á um í aðdraganda
sveitarstjórnarkosninga í Reykja-
nesbæ. Þar hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn haldið um stjórnartaumana í
þrjú kjörtímabil, en nú eru blikur á
lofti með þremur nýjum framboðum
í bænum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
með hreinan meirihluta í bæjar-
stjórn frá kosningunum 2002. Flokk-
urinn átti sjö af ellefu bæjarfulltrú-
um þar til Gunnar Þórarinsson
ákvað að segja skilið við félaga sína
og stofna nýtt framboð, Frjálst afl.
Samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar Félagsvísindastofnunar,
sem gerð var fyrir Morgunblaðið
og birt á fimmtudag, myndi meiri-
hlutinn falla yrði gengið til kosn-
inga nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi
fjóra bæjarfulltrúa, Samfylkingin
tvo, og Framsóknarflokkurinn einn
samkvæmt könnuninni. Ný framboð
fengju samtals fjóra bæjarfulltrúa:
Píratar tvo og Frjálst afl og Bein
leið einn hvort framboð.
Atvinnuleysi hefur verið mikið í
Reykjanesbæ og atvinnumálin í for-
grunni í kosningabaráttunni. Sjálf-
stæðismenn hafa bundið miklar
væntingar við stóriðju í Helguvík,
og bærinn hefur lagt í gríðarlegar
fjárfestingar vegna þeirra verkefna.
Hörð glíma við fjármálin
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Sjálf-
stæðisflokksins og oddviti hans í
Reykjanesbæ, berst nú fyrir því að
halda embættinu. Eins og hjá öðrum
oddvitum eru fjármál bæjarins og
atvinnumálin honum ofarlega í huga.
„Glíman við fjármálin hefur verið
hörð, Reykjanesbær hefur horft upp
á stærsta atvinnuveitandann hverfa
burtu og glímt við mikið atvinnu-
leysi í kjölfarið,“ segir Árni.
„Það hafa orðið veruleg umskipti
í rekstri bæjarins síðustu fjögur ár,“
segir Árni. Hann nefnir sem dæmi
að veltufé sé jákvætt og niðurstaðan
á síðasta ári hafi verið jákvæð fyrir
fjármagnsliði og afskriftir.
Árni segir umræðu um eigna-
sölu hafa verið villandi. „Við erum
í hópi þeirra sveitarfélaga á land-
inu sem eiga mestar eignir, en um
leið í hópi þeirra sveitarfélaga sem
skulda mest. Við eigum höfn og hita-
veitu, stórar eignir sem aðrir hafa
losað sig frá. Við eigum meirihluta
í HS Veitum og við ætlum að halda
honum. Þetta gengur ekki út á að
selja eignir, heldur styrkja stöðuna
á rekstri sveitarfélagsins.“
Árni segir að þessar tölur verði
að styrkjast enn frekar. Leið Sjálf-
stæðisflokksins til að ná því mark-
miði sé að vinna að því að fá fjöl-
breytt og vel launuð störf í bænum.
„Við erum á láglaunasvæði og það
er mikil áhersla á það hjá okkur að
breyta því,“ segir Árni. Hann segir
mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn að fá áframhaldandi umboð til
að klára verkin.
Árni segir að tekist hafi að
styrkja skólana í Reykjanesbæ
verulega á þessu kjörtímabili, bæði
leikskóla og grunnskóla. „Þeir eru
að verða meðal þeirra bestu, en
voru í slæmri stöðu,“ segir Árni.
Hann segir ekki sjálfgefið að sá
árangur haldist, það þurfi að halda
honum við.
„Við höfum unnið að umbyltingu
í umhverfismálum, unnið í inn-
viðunum og breytt samfélaginu á
undan förnum árum,“ segir Árni.
Hann segir það markmið flokksins
að vinna að heilsueflandi samfélagi
með lagningu göngustíga. Það sé
liður í því að skapa aðstæður til að
fólk geti stundað útivist óháð efna-
hag. Það verði tekið lengra í fram-
tíðinni, og fyrirtæki og stofnanir
fengin til að taka þátt í að byggja
upp heilsueflandi samfélag.
Vilja heildarendurskipulagningu
Við viljum nýja sýn fyrir Reykja-
nesbæ. Samfélagið hefur verið upp-
fullt af erfiðleikum og óróa, við
þurfum að skapa samstöðu meðal
íbúa,“ segir Friðjón Einarsson, odd-
viti Samfylkingarinnar í Reykja-
nesbæ. Hann segir að fjármál
sveitarfélagsins hafi verið í ólestri
árum saman, og á því verði að taka
til þess að hægt sé að gera eitthvað
fyrir íbúana.
„Reykjanesbær hefur verið að
fjárfesta gríðarlega mikið í hús-
næði, til dæmis söfnum og Hljóma-
höllinni, sem hefur kostað skatt-
greiðendur gríðarlega peninga. Við
viljum hætta þessu til að ná tökum á
fjármálunum. Við höfum lagt fram
tíu ára áætlun til að ná fjármálunum
á rétt ról. Það mun taka næstu átta
til níu ár að gera það, og á meðan
verða fjárfestingar að vera í lág-
marki,“ segir Friðjón.
Eins og oddvitar annarra fram-
boða segir Friðjón atvinnumálin
mikilvæg. „Við viljum efla minni
og meðalstór fyrirtæki sem þegar
eru í bænum. Það er oft horft á
stóru fyrir tækin sem eiga að vera
að koma með starfsemi í bæinn.
Við höfum beðið eftir þeim í tólf ár.
Við viljum frekar einbeita okkur að
skapandi greinum, ferðaþjónustu og
þeirri þjónustu sem fyrir er.“
Hann segir ljóst að sveitar-
stjórnar menn muni aldrei skapa
atvinnu, það geri litlu fyrir-
tækin. „Við viljum aðstoða þau
við markaðs setningu og skapa að-
stæður hjá okkur til að þeim líði vel
og þau vaxi og dafni.“
Áherslur Samfylkingarinnar snúa
einnig að því að fjölskyldur geti
búið við mannsæmandi aðstæður í
Reykjanesbæ. Friðjón segir Sam-
fylkinguna vilja auka greiðslur
til foreldra vegna íþrótta- og tóm-
stundastarfs barna úr 10 þúsund
krónum á ári í 30 þúsund á næsta
kjörtímabili. „Við viljum einnig
auka umönnunargreiðslur til dag-
mæðra til að skapa meiri fjölbreyti-
leika í dagvistun.“
Þá vill Samfylkingin beita sér
fyrir endurskipulagningu á stjórn-
sýslu og rekstri Reykjanesbæjar.
„Nú hafa allir flokkar samþykkt
okkar tillögu um að taka rekstur
Reykjanesbæjar út til að byrja upp
á nýtt næsta haust.“
Stórátak í að bæta þjónustuna
„Það þurfa að verða stórar breyt-
ingar í Reykjanesbæ, hvernig sem
að verður farið, það er algerlega á
hreinu,“ segir Trausti Björgvinsson,
oddviti Pírata, eins þriggja nýrra
framboða í Reykjanesbæ.
„Ég held að þetta sé þannig að
þeir sem stýra séu búnir að sitja of
lengi á stólunum og séu staðnaðir,“
segir Trausti. Hann vill gera stór-
átak í að bæta þjónustu við bæjar-
búa. Til dæmis taki þrjár vikur að
fá tíma til að sækja um fjárhagsað-
stoð, en í heildina líði yfirleitt átta
til tíu vikur þar til fólk fái þá aðstoð
sem það þarf. Mikið af því fólki sem
þurfi þessa aðstoð eigi við vandamál
að stríða og hafi ekki orku til að tak-
ast á við kerfið til að fá aðstoð.
Velferðarmálin eru helsta baráttu-
mál Pírata. „Það þarf að stokka vel-
ferðarmálin algerlega upp,“ segir
Trausti. Hann bendir á að um 900 ein-
staklingar leiti sér hjálpar hjá Fjöl-
skylduhjálp Íslands í hverjum mánuði.
Fjárhagsstaða bæjarins er mjög
alvarleg, og bærinn gæti neyðst til
þess að selja meira af hlut sínum í
HS Orku, segir Trausti. Hann tekur
fram að það sé alls ekki stefna
Pírata að selja stærri hlut í fyrir-
tækinu, en varla sé hægt að sjá að
hægt sé að sleppa við það, bærinn
verði að borga skuldirnar.
Vilja ópólitískan bæjarstjóra
Eitt þriggja nýrra framboða í
Reykjanesbæ í komandi kosn ingum
er Frjálst afl, sem er klofnings-
framboð úr Sjálfstæðisflokknum.
„Ég átti ekki samleið með full-
trúum Sjálfstæðisflokksins,“ segir
Gunnar Þórarinsson, oddviti Frjáls
afls. Hann bauð sig fram gegn Árna
Sigfússyni bæjarstjóra í prófkjöri
flokksins en tapaði. Honum var
boðið sjöunda sætið á listanum en
ákvað að þiggja það ekki.
„Mér var því nauðugur einn
kostur að fara í sérframboð ásamt
mörgu góðu og áhugasömu fólki víðs
vegar að úr atvinnulífinu ef ég ætl-
aði að halda áfram að berjast fyrir
þeim málefnum sem eru mér hug-
leikin,“ segir Gunnar.
Hann segir að nýtt framboð Frjáls
afls muni beita sér fyrir því að ráð-
inn verði ópólitískur bæjarstjóri með
reynslu af rekstri til að endurskipu-
leggja fjármál bæjarins. „Við telj-
um að það muni leiða til þess að við
getum hagrætt verulega.“
Gunnar segir stöðuna í fjár-
málum bæjarins mjög alvarlega.
„Við viljum hagræða í rekstrinum
og það er hægt að gera með ýmsu
móti, við erum með ýmsar hug-
myndir sem munu safnast saman.“
Hann segir að efla þurfi atvinnu-
stigið í bænum, tækifæri liggi bæði
í ferðaþjónustu og Helguvík. „Við
bindum enn vonir við að álverið
komi, þótt við séum reyndar búin
að bíða lengi eftir því. Við sjáum
líka fyrir okkur að ferðaþjónustan
muni eflast verulega, þar vantar
ákveðnar grunnstoðir sem þarf að
byggja upp.“
Frjálst afl mun einnig beita sér
fyrir velferð íbúanna og styðja
við bakið á barnafjölskyldum. „Við
viljum efla íþrótta- og tómstunda-
starf og gera fjölskyldunum kleift
að nýta sér það,“ segir Gunnar.
Þá þurfi að bæta grunnþjónustu á
borð við menntun, sérstaklega með
það fyrir augum að öllum líði vel í
skólanum. „Það virðist vera ákveðin
spenna í samfélaginu, það er kvíði
í krökkunum sem getur fylgt því
ástandi sem hefur verið í atvinnu-
málunum hér á síðustu árum.“
Forgangsraða fyrir íbúana
Bein leið er eitt þriggja nýrra fram-
boða sem bjóða fram í Reykjanesbæ
í kosningunum. „Framboðið varð
til upp úr spjalli, einhverri undir-
öldu sem við fundum fyrir í samfé-
laginu,“ segir Guðbrandur Einars-
son, oddviti framboðsins. Hann
segir bæjarbúa vilja breytingar
og nú standi þeim til boða óflokks-
bundið framboð.
„Við viljum standa fyrir opnari
stjórnsýslu og auknu samráði við
fólkið í bænum,“ segir Guð brandur.
Hann segir að gera þurfi úttekt á
fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar í
ljósi mikilla skulda bæjarfélagsins
og eignasölu undanfarinna ára. Þá
vill framboðið að ráðinn verði fag-
legur bæjarstjóri eftir kosningar.
„Við viljum forgangsraða í þágu
íbúa í sveitarfélaginu. Við búum við
það að félagsleg útgjöld, allt sem
tengist fjölskyldum, leikskólum og
fjárhagslegri aðstoð, er minna hér
en í öðrum sveitarfélögum. Reykja-
nesbær er að dragast aftur úr í þjón-
ustu við íbúana,“ segir Guðbrandur.
Hann segir sveitarfélagið hafa
offjárfest í verkefnum sem ekki
hafi farið af stað, í þágu stórfyrir-
tækja sem ekki hafi látið sjá sig. Það
sé áþján fyrir bæjarfélagið. Hann
segir hægt að draga verulega úr
framkvæmdum og eyða frekar fé í
þágu íbúa.
„Við verðum að einbeita okkur að
grunnhlutverki sveitarfélaga. Við
getum ekki eytt þeim peningum
sem við eigum að nýta í þjónustu
við íbúa eins og okkur dettur í hug,“
segir Guðbrandur.
Þarf að efla atvinnuna
„Við þurfum að fá meiri atvinnu
í bæjarfélagið, og til þess þarf
meira fólk. Við þurfum að nýta
þau atvinnutækifæri sem við erum
komin með í Helguvík og leggja
áherslu á nýsköpun, ferðaþjón-
ustu, fiskiþorp og listamannaþorp
hefur komið til tals,“ segir Kristinn
Jakobs son, oddviti Framsóknar-
flokksins.
Hann segir flokkinn ætla að berj-
ast fyrir auknum lífsgæðum, til
dæmis með auknum gæðastundum
fyrir fjölskylduna. „Við þurfum að
samhæfa skóla- og frístundastarf
og samhæfa það almennings-
sam göngum þannig að við getum
minnkað skutlið.“
Kristinn segir flokkinn vilja
betri skóla, með aðstöðu til að ljúka
heimanámi í skólanum. „Við viljum
að leikskólar verði með sveigjan-
legri opnunartíma,“ segir Kristinn.
Hann segir fólk ljúka vinnu á mis-
munandi tímum og að finna verði
lausnir svo hægt sé að rýmka til í
opnunartíma leikskóla. „Það kostar
peninga, en það verður þá bara að
hagræða til að það takist.“
Taka verður á fjárhagsstöðu
bæjarins, en með aukinni atvinnu
aukast tekjur bæjarins, segir Krist-
inn. „Ef eitthvað af þeim verkefnum
sem koma til greina í Helguvík fer
í gang aukast tekjur bæjarins. Ég
held að það sé eina lausnin, að auka
atvinnustigið og fá þessi verkefni
sem hafa verið í undirbúningi í tólf
til fjórtán ár.“
Framsóknarflokkurinn vill
leggja meiri áherslu á lítil og
meðal stór fyrirtæki. „Þau
hafa verið í svolítilli biðstöðu.
Þegar menn bíða alltaf eftir ein-
hverju stóru vilja litlu lausnirnar
gleymast. Áherslan hefur öll verið
á stóru verkefnin.“
Mest áhersla á fjármál og atvinnu
Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar og mikið atvinnuleysi er oddvitum efst í huga í kosningabaráttunni. Könnun sýnir að Sjálfstæðis-
flokkurinn gæti misst meirihlutann sem hann hefur haft í tólf ár. Þrjú ný framboð keppa um hylli kjósenda í Reykjanesbæ.
ÁRIÐ 2010
14.030
bjuggu í Reykjanesbæ.
ÁRIÐ 2014
14.610
búa í Reykjanesbæ.
Frjálsir með Framsókn
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri grænir
Samfylkingin
Fjöldi bæjarfulltrúa
14,0%
4,9%
52,8%
28,4%
FYLGI FLOKKANNA
Kosningar
2010
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR REYKJANESBÆR
ÁRIÐ 2014
10.670
eru á kjörskrá.
ÁRIÐ 2010
9.355
voru á kjörskrá.
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is