Fréttablaðið - 10.05.2014, Side 30
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Samkynhneigð er ólög-leg í mörgum Afríku-ríkjum en í febrúar síðastliðnum undir-ritaði Yoweri Muse-veni, forseti Úganda, ný lög gegn samkyn-hneigðum sem eru
mun víðtækari og viðurlögin
þyngri. Það eitt að segjast vera
samkynhneigður í Úganda varðar
sjö ára fangelsi og endurtekið brot
á lögunum getur varðað lífstíðar-
fangelsi. Einnig eru hörð viður-
lög við því að einstaklingar, fyrir-
tæki, samtök og fjölmiðlar styðji
réttindabaráttu samkynhneigðra
og einnig einfaldlega því að vita
af samkynhneigðum án þess að til-
kynna yfirvöldum um þá. Geoffrey
Ogwaro starfar fyrir samtök sam-
kynhneigðra í Úganda, reyndar
undir hatti mannréttindasamtak-
anna Refugee law project, enda
ólöglegt að starfrækja slík samtök.
Lögbundnir fordómar
„Í stað þess að lög landsins verndi
mannréttindi okkar gefa þau
almenningi leyfi til að áreita okkur
og mismuna. Fordómarnir eru
verndaðir með lögum. Vissulega
var mikil fáfræði í garð hinsegin
fólks fyrir þessa lagasetningu en
við vorum látin í friði svo lengi
sem við vorum til friðs. En núna
er áróður gegn okkur, lög og sam-
tök á móti okkur, það er hreinlega
sérstök barátta í gangi gegn okkur.
Okkur er til að mynda oft neitað
um þjónustu, sem er ótrúlega
niður lægjandi og eiginlega ekki
hægt að lýsa tilfinningunni fyrr en
maður reynir það á eigin skinni.
Einnig hefur áreitið og ofbeldið
á götum úti aukist til muna eftir
lagasetninguna enda hefur fólkið
á götunni lögin sín megin.“
Sífellt hræddur við handtöku
Geoffrey segir lögin hafa valdið
mikilli tortryggni í samfélaginu
sem bitni á öllum, ekki eingöngu
samkynhneigðum.
„Ef tveir menn eða tvær konur
búa saman er það tilkynnt til yfir-
valda vegna gruns um samkyn-
hneigð, en í mörgum til fellum
er um að ræða systur, bræður
eða einfaldlega sambýlinga sem
deila íbúð með tveimur svefnher-
bergjum. Nágrannar mínir sáu
mig í sjónvarpinu fjalla um rétt-
indabaráttu samkynhneigðra og
kvörtuðu til leigusalans míns.
Leigusalinn talaði við mig en ég
komst hjá því að játa eða neita
samkynhneigðinni og sagðist ein-
faldlega berjast fyrir mannrétt-
indum allra. Þannig að ég er enn
í íbúðinni en ég þori varla að fá
manninn minn í heimsókn til mín,
hvað þá að búa með honum, enda
þorir því enginn í dag. Ég er allt-
af hræddur um að löggan banki
upp á og handtaki mig og óttast
að sýnileiki minn komi manninum
mínum í vandræði.“
Láta lítið fyrir sér fara
Það hefur lengi tíðkast að sam-
kynhneigðir flýi til Evrópu eða
Bandaríkjanna frá Úganda til að
eiga kost á eðlilegu lífi. En með
nýju lögunum liggur straumurinn
einnig til nágrannalanda eins og
Kenía og Rúanda. Á síðustu vikum
hafa fleiri samkyn hneigðir flúið
landið en samtals síðustu fjögur
árin. Eðlilega greip mikil skelf-
ing um sig í kjölfar lagasetningar-
innar, flestir drógu sig inn í skel
sína og hættu að hittast á opin-
berum svæðum enda ólöglegt að
hýsa samkomu samkynhneigðra
og þannig einangruðust þeir enn
frekar frá samfélaginu. Aðrir
fengu aftur á móti loksins kjark-
inn til að koma út úr skápnum.
„Sumir fundu sig knúna til að
benda ástvinum sínum á að þess-
um lögum væri beint gegn þeim og
því ættu þeir ekki að styðja þau.
En þeir stóðu ekki úti á götu og
hrópuðu það yfir fjöldann, það er
náttúrulega stórhættulegt.“
Var giftur konu
Það hefur alltaf verið erfitt fyrir
samkynhneigða að segja fólkinu
sínu frá kynhneigð sinni vegna
fordóma í landinu. Flestir segja
eingöngu nánustu vinum og fjöl-
skyldu frá því en fela sig fyrir
samfélaginu. En vegna menn-
ingarinnar er ansi erfitt að vera
ógiftur maður eða kona fram eftir
öllum aldri. Þá fer samfélagið að
spyrja spurninga.
„Ég var giftur enda var mikil
pressa á mér þegar ég var kominn
vel á þrítugsaldurinn. En ég skildi
við konuna mína, sagði fjölskyld-
unni frá því að ég væri hommi
og gæti því ekki lifað í þessari
lygi. Konan mín var skilningsrík
en fjölskyldan hefur gefist upp á
mér. Ég fer mínar eigin leiðir og
þau hafa aldrei haft almennilega
stjórn á mér. Nú hafa þau bara
sleppt takinu en það þýðir að ég
er ekki í neinum samskiptum við
þau. Flestir samkynhneigðir í
Úganda búa í mjög þröngu samfé-
lagi hinsegin fólks og eiga ekki í
miklum samskiptum við gagnkyn-
hneigða. Ég hef aftur á móti átt
marga gagnkynhneigða vini. Þeir
sem hafa tekið mér eins og ég er
eru enn vinir mínir – hinir þóttust
ekki lengur þekkja mig á götu og
vildu ekki láta sjá sig með mér og
þeir löbbuðu þannig sjálfir út úr
lífi mínu.“
Beita fyrir sig syndinni
Árið 2009 var þetta lagafrum-
varp fyrst kynnt á þinginu.
Geoffrey segir aðallega tvennt
hafa komið af stað auknum áróðri
gegn hinsegin fólki í Úganda sem
veitti þessum lögum brautar-
gengi, trúarofsa og aukna þátt-
töku samkynhneigðra í pólitískri
réttindabaráttu.
„Fyrr á árinu sem frumvarpið
var kynnt á þinginu kom prestur-
inn Scott Riley ásamt fríðu föru-
neyti til landsins frá Bandaríkj-
unum. Hann safnaði prestum og
biskupum saman og sagði þeim
að samkynhneigð væri vandi sem
berjast þyrfti skipulega gegn. Að
samkynhneigð væri lærð hegð-
un og hættuleg börnunum okkar
enda mikil synd. Svo birtist hann
með hóp af „læknuðum samkyn-
hneigðum“ og sagði að það væri
búið að bjarga þeim. Kirkjan gjör-
samlega gleypti við þessu. Á svip-
uðum tíma fóru fleiri samkyn-
hneigðir að taka þátt í pólitískri
umræðu og samkynhneigðum
aktívistum fjölgaði umtalsvert.
Samfélagið fékk smá áfall yfir
fjöldanum sem varð allt í einu
sýnilegur og við brögðin voru:
„Hvernig dirfast þau að biðja um
einhver réttindi – hvaða réttindi
eiginlega? Geta þau ekki bara
skriðið aftur ofan í holuna sína?“
Þannig að syndin og sýnileikinn
urðu til þess að þingheimi fannst
hann þurfa að sporna við þessu
með hertum lögum.“
Er í baráttuham
Ég hitti Geoffrey í ráðstefnu-
sal í Kampala þar sem hann er
að funda með helstu mannrétt-
indafrömuðum landsins. Það er
verið að undirbúa lögsókn gegn
úgandska ríkinu vegna brota á
mannréttindum.
„Lögmenn okkar undirbúa mál
fyrir mannréttindadómstóli og
stjórnlagarétti þar sem þess er
krafist að lögin verði ógilt. Það
stendur í stjórnarskrá okkar að
virða skuli mannréttindi allra
Úgandamanna. Lögin gegn sam-
kynhneigðum stangast á við það.
Einnig erum við með lögmenn í
sjálfboðavinnu sem aðstoða sam-
kynhneigða sem eru handteknir,
veita ráðgjöf og flytja mál þeirra
fyrir dómi. Við munum ekki gef-
ast upp – það er alveg nóg af bar-
áttuanda eftir í okkur.“
En er ekki hættulegt að hittast
hér á opinberum vettvangi?
„Á meðan við flöggum ekki
kynhneigð okkar þá erum við
látin í friði. Við reynum að skrúfa
niður hommalætin og trukka-
lessuútlitið,“ segir Geoffrey og
grettir sig. „Ég fæ náttúrulega
óbragð í munninn við að segja
þetta. Ég er reyndar ekki viss
um að starfsmenn hótelsins geri
sér grein fyrir efni fundarins.
En þeir eru vissulega að fremja
lögbrot með því að hýsa okkur
án þess að tilkynna yfirvöldum
um það. Þessi lög setja svo miklu
fleiri en hinsegin fólk í erfiðar og
ómannúðlegar aðstæður.“
Þorir varla að hitta manninn sinn
Eftir að lög gegn samkynhneigð voru hert í Úganda hafa fjölmargir samkynhneigðra flúið landið. Geoffrey Ogwaro hefur
séð á eftir mörgum vinum sínum en í stað þess að flýja sjálfur heyr hann mannréttindabaráttu sem gæti kostað hann lífs-
tíðarfangelsi. Hann segir blaðamanni frá baráttunni og hvernig lífið gengur fyrir sig í skugga laganna og stanslausum ótta.
Ólöglegt var að eiga kynferðislegt samneyti við manneskju af sama kyni
fyrir undirritun laganna en nýju lögin eru þó víðtækari og viðurlögin
þyngri. Brot á lögunum varða sjö ára fangelsi, endurtekin brot geta varðað
lífstíðarfangelsi. Í upphaflegum drögum var þyngsta refsingin dauðarefsing
og því fengu lögin viðurnefnið „drepum samkynhneigða“ eða „kill the
gays bill“.
Lögin ná nú einnig yfir samkynhneigðar konur en áður áttu þau eingöngu
við um menn. Bannað er að vera samkynhneigður, bannað er að segjast
vera samkynhneigður og bannað er að eiga samneyti við samkynhneigða.
Einnig er einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum sem vita af sam-
kynhneigðu fólki gert skylt að tilkynna um það og hvers kyns jákvæð
umfjöllun eða stuðningur við samkynhneigða er ólöglegt athæfi.
Fyrstu mennirnir sem réttað er yfir samkvæmt nýju lögunum fóru fyrir
dóm í vikunni. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa stundað saman kynlíf. Til
þessa hafa öll mál af þessum toga verið felld niður vegna skorts á sönn-
unargögnum en nú segjast saksóknarar hafa vitni.
Eftir lagasetninguna hafa dagblöð í Úganda í auknum mæli birt nafnalista
og myndir af samkynhneigðum í landinu. Þegar dagblað birti nafn og
mynd af einum helsta baráttumanni hinsegin fólks í Úganda, David Kato,
árið 2011 var hann barinn til bana á heimili sínu. Margir telja að norna-
veiðarnar séu rétt að byrja.
Mörg ríki hafa fordæmt lagasetninguna og einhver dregið úr styrkjum til
stjórnvalda og þróunarsamvinnu. Þróunarsamvinnustofnun Íslands brást
við lagasetningunni með því að veita Samtökunum ’78 á Íslandi sérstakan
styrk til að styðja við baráttu hinsegin fólks í Úganda.
Samkynhneigð er ólögleg í 38 af 54 löndum Afríku samkvæmt samantekt
Amnesty International. Í Súdan, Sómalíu og Máritaníu er hægt að dæma
fólk til dauða fyrir samkynhneigð.
LÖG GEGN SAMKYNHNEIGÐUM
VAR EITT SINN GIFTUR KONU Geoffrey Ogwaro fann að hann gat ekki lifað í lygi og ákvað að tilkynna fjölskyldu sinni og eiginkonu að hann væri samkynhneigður. Í kjöl-
farið sneru fjölskyldan og margir vinir hans bakinu við honum en Geoffrey einbeitti sér að baráttu fyrir réttindum samkynhneigðra. MYND/GUNNAR SALVARSSON
Mannréttindi í Úganda
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is