Fréttablaðið - 10.05.2014, Síða 40
10. MAÍ 2014 LAUGARDAGUR2
Jólin eru í maí hjá Laufeyju
Helgu Guðmundsdóttur, lög-
fræðingi í velferðarráðuneyt-
inu, en fyrir henni er Eurovision-
keppnin aðfangadagur, jóla-
dagur, pakkarnir og jólafötin allt
saman lagt í tíunda veldi. Hún er
úti í Kaupmannahöfn núna og er
þetta fjórða skiptið sem hún fer
á Eurovision-keppnina. „Þetta
er einhvers konar Eurovision-
sápukúla sem maður dettur inn í
hérna. Það þarf hvorki að hafa vit
á Eurovision eða gaman af henni
almennt til að hrífast með. Allir
þeir sem koma hingað fá bakt-
eríuna og hún er mjög smitandi.
Þetta er svo dásamleg upplifun.
Hér koma allir saman í mesta
bróðerni til að syngja lag í þrjár
mínútur, þvert á öll landamæri og
án allra pólitískra hindrana. Hér
ríkir ást og kærleikur, og mikið
af honum.“
ÓVÆNT HJÁ POLLAPÖNKI Í KVÖLD
Laufey segist ekki hafa átt von
á því að Pollapönkarar kæmust
áfram í undankeppninni á þriðju-
dag en alltaf vonað það innst inni.
„Þetta var svo gaman og skemmti-
legt að sjá hvað þeir sjálfir voru
glaðir og skemmtu sér vel. Ef ég á
að vera hreinskilin þá spái ég Ís-
landi sextánda til átjánda sætinu
í kvöld en í Eurovision getur allt
gerst. Keppnin í ár er ekki eins
sterk og undanfarin ár. Það er eng-
inn augljós sigurvegari í ár eins
og svo oft áður, til dæmis þegar
Alexander Rybak vann 2009 og
Loreen 2012. Ég fór á blaðamanna-
fund eftir keppnina á þriðjudag og
þá sögðust þeir Heiðar og Halli
luma á trompi upp í erminni fyrir
keppnina í kvöld, einhverju tengdu
búningum og glimmeri, þannig að
það gæti eitthvað óvænt gerst,“
segir Laufey og hlær.
ÞÖRF Á AÐDÁENDAKLÚBBI
Laufey er félagi í FÁSES, Félagi
áhugafólks um Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva, og er
meðlimur númer 007. „Hjá okkur
eru meðlimir númeraðir, þetta er
allt mjög nördalegt. Klúbburinn
var stofnaður fyrir þremur árum
og eru meðlimir strax orðnir eitt-
hvað um 370 og hann orðinn einn
af stóru klúbbunum í alþjóða-
samtökunum, OGAE, þannig að
augljóslega var mikil þörf fyrir
svona klúbb. Við opnuðum nýlega
heimasíðu, fases.is, þar sem við
setjum inn umfjöllun um keppn-
ina héðan.“
EFTIREUROVISIONÞUNGLYNDI
Eins og áður sagði hefur Laufey
farið fjórum sinnum á Eurovision-
keppnina. „Ég tók skandinavískan
rúnt og fór til Helsinki 2007, Osló
2010, Malmö 2013 og til Köben í
ár. Nú er stefnan að fara árlega
enda er þetta svo gaman. Ég er
líka svo heppin að eiga skilnings-
ríka yfirmenn og samstarfsfólk.
Þau þurfa að þola stöðugt tal um
Eurovision fyrir keppni og eftir
keppni er ég haldin svokölluðu
PED, Post-Eurovision Depression
(Eftir-Eurovision-þunglyndi). Við
í FÁSES erum einmitt að bíða eftir
að það verði skilgreint sem sjúk-
dómur af Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni,“ segir Laufey á léttu
nótunum og brosir.
GAMAN AÐ ÍSLAND SÉ MEÐ
Laufey hlakkar mikið til laugar-
dagsins og ætlar að njóta keppn-
innar og þess sem hún hefur upp
á að bjóða. „Ég ætla líka að njóta
þess að Ísland sé með, það er allt-
af skemmtilegra. Það eru ekki allir
sem myndu horfa á úrslitin í kvöld
ef við hefðum ekki komist áfram
en Eurovision er alltaf jafn gott
fyrir mér.“
Allir eru sólgnir í kjúklingaleggi
sem velt hefur verið upp úr bar-
becue-sósu. Hér er einföld uppskrift
en ótrúlega girnileg. Kjúklingurinn
bragðast örugglega frábærlega með
Eurovision-lögunum í kvöld. Vel má
hafa létta jógúrtsósu með en það er
óþarfi. Í þessari uppskrift eru not-
aðir 12 kjúklingaleggir en auðvitað
má nota leggi og læri.
12 kjúklingaleggir
1 bolli tilbúin barbecue-sósa
1 msk. púðursykur
1 msk. cider-edik
1 tsk. salt
Nýmalaður svartur pipar
1 tsk. chili-sósa
Setjið allt sem upp er talið fyrir utan
kjúklinginn í skál en notið aðeins helm-
inginn af barbecue-sósunni. Setjið kjúk-
lingaleggina í plastpoka með renni-
lás ásamt sósunni. Veltið vel þannig
að kjúklingurinn verði þakinn sósunni.
Geymið í ísskáp í minnst fjórar klukku-
stundir.
Stillið hitann á ofninum á 200°C. Þá
eru bitarnir lagðir á álpappír sem hefur
verið penslaður með olíu. Penslið bitana
með afganginum af barbecue-sósunni.
Bakið í 15 mínútur og penslið þá aftur.
Snúið bitunum við og penslið. Snúið og
penslið að minnsta kosti þrisvar sinnum
á eldunartímanum sem er 50-60 mín-
útur.
Ljúffengir kjúklingaleggir
Það eru margir skrautlegir karakterar
á Eurovision-keppninni. Hér er Laufey
með Dramaqueen, eða DQ, á Euroclub
sem er skemmtistaður Eurovision-
aðdáendanna. DQ stjórnar Eurovision-
karaókíinu þar.
Laufey ásamt Færeyingum sem voru í miklu stuði þegar þeir mættu í FÁSES-Íslend-
ingahittinginn fyrir undankeppnina. AÐSENDAR MYNDIR
Eurovision er miklu betra en jólin
Laufey Helga Guðmundsdóttir er stödd í Kaupmannahöfn á sinni
fjórðu Eurovision-keppni. Hún segir Pollapönkara hafa upplýst
á blaðamannafundi að þeir lumi á trompi uppi í erminni sem
mögulega verði lagt á borðið í kvöld. Laufeyju finnst dásamlegt
að vera hluti af ævintýrinu sem keppnin er.
Kjúklingaleggir eru ljúffengir og góðir.
Smellugas
Vinur við veginn
11 kg
2 kg
5 kg
10 kg
Grillum í allt sumar
með gasi frá Olís
Smellugas fyrir grillið, útileguna og heimilið!
Lífstíls og decor vefverslun
www.facebook.is/kolkaiceland