Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 48

Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 48
FÓLK|HELGIN FORSETAR Ingunn Ásdís, fráfarandi forseti, Mjöll Flosadóttir, núverandi forseti, og Þóra Guðnadóttir, verðandi forseti. Landssamband Soroptimista fagnar 40 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni fjölmenna konur í Hafnarfjörð í dag þar sem lands- sambandsfundur verður hald- inn í Flensborgarskóla. Nokkrir erlendir Soroptimistar fagna með íslenskum systrum sínum en á meðal þeirra er Ulla Madsen, for- seti Evrópusambands Soroptim- ista, sem kemur frá Danmörku. SKAPA TÆKIFÆRI Soroptimistar eru alþjóðasamtök fyrir konur. Markmið þeirra er stuðla að betri heimsmynd fyrir konur og skapa sterk og friðsöm samfélög um allan heim. Soroptim- istar hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti. Í klúbbunum er leitast við að hafa fulltrúa sem flestra starfs- stétta til að fá sem breiðastan hóp kvenna. 500 Á ÍSLANDI Hér á landi eru 18 klúbbar starf- andi víðs vegar um landið. Um 500 íslenskar konur eru Sor- optimistar. Í tilefni afmælisins ætla klúbbarnir að sameinast um að styrkja veglega Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Sérstakur fyrirlesari á fund- inum í dag verður Margrét Pála Ólafsdóttir, upphafsmaður Hjallastefnunnar. Núverandi forseti Soroptim- istasambands Íslands er Mjöll Flosadóttir. SOROPTIMISTAR FAGNA 40 ÁRA AFMÆLI Zumba hefur slegið rækilega í gegn á Íslandi og mörg hundruð manns stunda það reglulega. Zumba hefur verið útfært á alls konar máta og með því nýjasta er Aqua Zumba, eða Zumba í vatni. Aqua Zumba er sambland af hefðbundnu Zumba og venjulegri vatns- leikfimi. Það er nánast engin hætta á meiðslum í Aqua Zumba þar sem vatnið veitir mót- stöðu og hreyfing- arnar verða hægari og mýkri. Álag á liði og vöðva verður minna en mótstaða vatnsins gerir hreyfingarnar að sama skapi meira krefjandi. DULBÚIN LÍKAMSRÆKT Þórður Guðmundsson Zumba-kenn- ari hefur stundað bæði hefðbundið Zumba og Aqua Zumba frá því að byrjað var á því hér á landi. „Það eru rúm þrjú ár síðan ég byrjaði í Zumba og ég hef verið í rúmt ár í Aqua Zumba. Aqua Zumba er skemmtileg líkamsrækt sem hentar breiðum hópi fólks. Það er dulbúin áreynsla, bæði er það skemmtilegt og svo eru hreyfingarnar mjúkar þannig að maður finnur varla fyrir áreynslunni. Það getur verið auðvelt og líka mjög erfitt en það er fyrst og fremst mjög skemmtilegt. Það er bara eins og að vera í sund- laugarpartíi. Tónlistin er stillt hátt og er það smit- andi að það fari allir ósjálfrátt að dansa,“ segir Þórður og hlær. DANSAÐ MEST- ALLA ÆVI Þórður segist sjálfur vera algjört dansfífl en hann var í tuttugu ár í afród- ansi í Kramhúsinu. „Mér finnst mjög gaman að öllum dansi. Núna langar mig að koma á svokölluðu „flash mob“ hér á landi og setja nýtt heims- met. Þá kemur fjöldi manns saman skyndilega á einhverju almennings- svæði og dansar í stutta stund. Það er hægt að fá Íslendinga til að gera allt þannig að mig langar að láta á það reyna hvort það sé hægt að slá metið, það væri mjög skemmtilegt.“ AQUA ZUMBA Á KÓPAVOGSDÖGUM Á sunnudag verður Þórður með opinn Aqua Zumba-tíma í Sundlaug Kópa- vogs í tilefni Kópavogsdaga. „Klukkan þrjú á morgun verður mikið stuð hérna í Kópavogslauginni. Tónlistin verður stillt þannig að fólk finnur fyrir henni. Við verðum með tvo gesta- kennara, þær Kristbjörgu Ágústs- dóttur og Tönyu Dimitrova sem eru reyndir Zumba-kennarar. Það geta allir komið og prófað og börnin mega líka vera með.“ ZUMBA-SKEMMTUN Í SUNDI KÓPAVOGSDAGAR Aqua Zumba er skemmtileg líkamsrækt í sundlaugarpartíi. Tónlistin er stillt í botn og stuðið er mikið. Á Kópavogsdögum verður boðið upp á Aqua Zumba í Sundlaug Kópavogs á morgun. HRESS Í SUND Þórður er Zumba-kenn- ari og finnst honum sér- staklega gaman í Aqua Zumba. MYND/STEFÁN ALLT Í GANGI Aqua Zumba er vinsælt og hafa verið allt upp í hundrað manns í kynn- ingartímum sem Þórður hefur stjórnað. 100 Mb/s 3.490 kr. 10 GB GAGNAMAGN Greiða þarf 2.610 kr. aðgangsgjald. Internet á ljóshraða Við bjóðum upp á internet á ljóshraða til 80 þúsund heimila. Það er einfalt að athuga hvort þitt heimili er tengt, á 365.is geturðu séð hvort þú kemst á ljóshraða. Hægt er að nálgast allar nánari upp- lýsingar og panta tengingu á 365.is. 0 KR. LJÓSHRAÐI FYLGI R MEÐ VÖLDUM SJÓNVARPS- ÁSKRIFTUM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.