Fréttablaðið - 10.05.2014, Qupperneq 57
| ATVINNA |
www.innnes.is
Innnes ehf. er ein stærsta og öflugasta matvöruheildsala
landsins og eru vörumerki fyrirtækisins neytendum vel
kunnug. Innnes á m.a. velgengni vörumerkja sinna að
þakka góðu og samhentu starfsfólki. Markmið Innnes er
að vera ávallt í fararbroddi á sínu sviði hvað varðar vörur,
þjónustu til viðskiptavina sinna og markaðssetningu
vörumerkjanna.
Höfuðstöðvar Innnes eru að Fossaleyni í Grafarvogi og
þar starfar samhent liðsheild 120 starfsmanna, þar af
starfa 3 starfsmenn í upplýsingatækni.
KERFISSTJÓRI
Innnes óskar eftir því að ráða öflugan starfsmann til að hafa umsjón með kerfismálum
í fyrirtækinu. Kerfisstjórinn mun heyra undir Rekstrarstjóra upplýsingatækni og taka
þátt í ýmsum krefjandi verkefnum í deildinni.
Starfssvið:
• Rekstur tæknikerfa – uppsetningar, viðhald, þróun og rekstur
• Uppsetningar og viðhald á vinnustöðvum og öðrum vélbúnaði
• Uppsetningar og viðhald á símstöð og farsímum
• Umsjón upplýsingaöryggis
• Kemur að högun og skipulagi tæknikerfa
Hæfniskröfur:
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
• Góð reynsla við rekstur tæknikerfa
• Nákvæm og öguð vinnubrögð
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is og
Sverrir Briem sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2014
og umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Í samræmi jafnréttisstefnu fyrirtækisins eru einstaklingar
af báðum kynjum hvattir til að sækja um starfið.
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík,
sími 520 4700
Upplýsingar veitir:
Kristín Guðmundsdóttir
kristin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 18. maí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
ÍSAM óskar að ráða sölufulltrúa
með góða reynslu
ÍSAM er í hópi öflugustu fyrirtækja á neytendavörumarkaði í dag. Innan sérvörusviðs fyrirtækisins eru mörg
af þekktari vörumerkjum í heimi t.d. Pampers, Always, Ariel, Head&Shoulders, Wella, Oral-B, Gillette og
Duracell svo dæmi séu nefnd. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu fyrirtækisins. www.isam.is
Starfssvið
• Sala á vörum fyrirtækisins
• Öflun og viðhald viðskiptasambanda
• Tilboðsgerð
• Samskipti við innkaupaaðila
• Uppröðun í verslunum
Hæfnskröfur
• Reynsla af sölustörfum er skilyrði
• Reynsla af matvörumarkaði er kostur
• Góðir sölu- og samskiptahæfileikar
• Metnaður, stundvísi og skipulagshæfileikar
• Nákvæmni og tölugleggni
• Jákvæðni og kraftur
Upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 19. maí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Skólastjóri
Í Strandabyggð búa rúmlega 500 íbúar og er Hólmavík þéttbýlisstaðurinn. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og skólastarf
öflugt. Í Strandabyggð er blómlegt tómstunda-, íþrótta- og menningarlíf. Félagsstarf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og þar er
hugað að því að sem flestir aldurshópar fái notið sín til fullnustu. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar og menningarlíf er kraftmikið
og fjörugt allt árið um kring. Nánari upplýsingar um Strandabyggð er að finna á vefsíðunni www.strandabyggd.is.
Markmið og verkefni
• Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi,
fjárhagsáætlunum og rekstri skólans
• Fagleg forysta
• Stuðla að framþróun skólastarfsins
• Ráðningar og mannauðsstjórnun
• Leiða samstarf starfsmanna, nemenda,
heimila og skólasamfélagsins í heild
Staða skólastjóra við Grunn- og tónskóla Hólmavíkur er laus til umsóknar.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Menntun, færni og eiginleikar
• Grunnskólakennaramenntun og önnur
reynsla skv. lögum nr. 87/2008, 12. gr.
• Skipulags- og stjórnunarfærni
• Samskiptafærni og geta til að tjá
sig í ræðu og riti
• Frumkvæði og styrkur í ákvarðanatöku
• Hvetjandi og góð fyrirmynd
Leitað er eftir sterkum einstaklingi sem er tilbúinn í að leggja sitt af mörkum til að viðhalda
og byggja áfram upp öflugt skólasamfélag þar sem hver einstaklingur fær notið sín.
LAUGARDAGUR 10. maí 2014 7