Fréttablaðið - 10.05.2014, Side 80
10. MAÍ 2014 LAUGARDAGUR10
● Yfir 1.000 lög hafa tekið þátt í
keppninni frá upphafi. Þúsundasta
lagið var flutt árið 2006 af Brian Ken-
nedy fyrir Írland.
● Yfir 125 milljónir áhorfenda horfa
árlega á Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva.
● Johnny Logan hefur unnið
söngvakeppnina þrisvar. Hann söng
fyrir Írland 1980 og 1987 og samdi
vinningslagið Why Me árið 1992.
● Noregur hefur tíu sinnum lent í
neðsta sæti en Norðmenn hafa líka
unnið í þrígang.
● Írar eru sigursælastir þjóða
í Eurovision og hafa sjö sinn-
um átt sigurlagið.
● Langflest sigurlaganna
hafa verið flutt á ensku, eða
24 talsins. Franska er líka vin-
sælt söngmál og hefur átt
fjórtán sigurlög.
● Abba er
happasælasti sig-
urvegari söngva-
keppninnar frá
upphafi. Sænska
ofurgrúppan
sigraði í keppn-
inni árið 1974
og varð í kjöl-
farið ein af
frægustu
hljómsveitum
sögunnar.
● Fyrsta
sjónvarps-
útsending
söngvakeppn-
innar í lit var
frá Royal Albert Hall í Lundúnum
árið 1968.
● Keppendur á sviði söngvakeppn-
innar mega ekki vera fleiri en sex.
● Yngsti sigurvegari Eurovision var
hin belgíska Sandra Kim, þá aðeins
þrettán ára. Árin á eftir sendu Frakkar
11 ára barn og Ísraelar 12 ára barn til
keppninnar.
● Ísrael var fyrsta þjóðin sem halda
átti söngvakeppnina tvö ár í röð (1979
og 1980). Vegna blankheita óskuðu
Ísraelar eftir að annað land tæki við
keppninni og réttu Hollendingar fram
sína hjálparhönd. Keppnin var
óvart dagsett 19. apríl í Haag,
sem er heilagur dagur í Ísra-
el, og tóku Ísraelar því ekki þátt
árið eftir sinn eigin sigur.
● Írland hélt söngvakeppn-
ina fjögur ár í röð en
baðst undan því
að halda hana
aftur ef þeir
ynnu í fimmta
skiptið.
● Serbía tók
þátt í Eurovisi-
on sem sjálf-
stæð þjóð í
fyrsta sinn
árið 2007 og
átti sigurlagið
sama ár.
Vissirðu þetta um
Eurovision?
Hjartaknúsarinn
Johnny Logan
er eini keppand-
inn sem hefur
staðið uppi sem
sigurvegari
þrisvar.
Matarbloggarinn og
fegurðardrottningin
Anna Björk Eðvarðsdóttir
gerir sér alltaf dagamun á
Eurovision-kvöldi.
„Ég hef trúlega aldrei misst af
söngvakeppninni og fer sitt á hvað
í Eurovision-partí eða held partí
sjálf,“ segir Anna Björk sem hefur
í hálft annað ár haldið úti matar-
blogginu annabjork.is.
„Mataráhuginn hefur fylgt mér
síðan ég flutti úr foreldrahúsum
og þurfti að bjarga mér sjálf. Þá
kunni ég ekkert að elda en neyðin
kennir nakinni konu að spinna,“
segir Anna Björk sem nýtur þess
að prófa sig áfram með nýtt og
spennandi hráefni.
„Mín uppáhaldsmáltíð að elda
er morgunmatur á sunnudög-
um því fyrir mér eru sunnudags-
morgnar dekurmorgnar. Ég vakna
alltaf mjög snemma og finnst
notalegt að vera ein í eldhúsinu
að matbúa eitthvað gómsætt á
meðan aðrir sofa. Síðan skríð ég
upp í rúm til mannsins míns með
eitthvað huggulegt handa okkur
og það er yndislega kósí,“ segir
Anna Björk sem bakar croiss-
ant, fyllt rúnstykki, eggjakökur,
bökur og annað ilmandi ljúfmeti
með morgun kaffinu.
FEGURST ÍSLENSKRA KVENNA 1977
Anna Björk var valin Ungfrú Ísland
árið 1977.
„Það litaði líf mitt talsvert fyrsta
kastið því þá var í fyrsta sinn sjón-
varpað frá fegurðarsamkeppninni.
Það hafði mikil áhrif en eftir því
sem árin líða fer maður að endur-
skilgreina sjálfan sig og finna sér
nýtt hlutverk í lífinu. Fólk mundi
þó lengi eftir mér og enn spyr
fólk hvort það þekki mig, sem er
bara gaman. Ég hefði síst viljað
fara á mis við þessa lífsreynslu
því keppnin veitti mér skemmtileg
tækifæri á sínum tíma. Ég fór til
Japans sem Ungfrú unga kynslóðin
1976 og til Mexíkó í Ungfrú alheim
árið 1978 og dvaldi þar í mánuð. Í
þá daga var sjaldgæft að óharðnaðir
unglingar færu svo langt einir og í
svo langan tíma en það var bæði
þroskandi og krefjandi.“
Anna Björk er enn geislandi
fögur og skrifar það á einskæra
lífsgleði.
„Mér finnst ofsalega gaman að
vera til. Ég lenti í veikindum fyrir
tólf árum sem gáfu mér nýtt tæki-
færi til lífsins og hef reynt að lifa
fyrir allan peninginn síðan. Þar
skiptir mestu að fást við hluti sem
kveikja áhuga og ástríðu en líka að
hafa neista í lífinu og setja sjálfan
sig stundum í fyrsta sætið. Það
er allt í lagi og á endanum græða
allir; fjölskyldan, eiginmaðurinn og
vinirnir.“
Anna Björk útbjó partírétt sem er
sniðinn fyrir fámenn sem fjölmenn
veisluhöld. Eftir því sem fjölgar í
samkvæminu þarf bara að kaupa
stærri ost og meira deig því að upp-
skriftin er alltaf sú sama.
Bakaður Camembert í brauð-
deigi með skinku og sultu
fyrir 3-4
1 stórt pitsudeig (XXL 30x40)
6 skinkusneiðar, skornar í bita
3-4 msk. týtuberjasulta
1 Camembert
Birki- og sesamfræ
Sulta og hunang
Hitið ofn í 225°C. Rúllið deiginu út á borð
og merkið í það hring, 32 cm í þvermál.
Hafið smjörpappír undir deiginu. Klipp-
ið út hringinn með hreinum skærum og
geymið afskurðinn. Setjið deighringinn
á bökunarplötu og dreifið helming skin-
kunnar á miðjuna (í rúmlega stærð osts-
ins), ásamt helmingi sultunnar. Setjið ost-
inn ofan á og svo rest af skinku og sultu
ofan á ostinn. Safnið deiginu saman ofan
á ostinn og búið til skjóðu sem er klipin
efst til að loka. Penslið með vatni og bakið
í 15-20 mínútur eða þar til brauðið er gyllt
og stökkt. Penslið afskurðinn með vatni,
merkið skurði með hníf og setjið birki-
og sesamfræ ofan á. Bakið í ofninum og
berið fram með ostinum með auka sultu
og hunangi. Verði ykkur að góðu!
Nýtur lífsins fyrir allan peninginn
Anna Björk Eðvarðsdóttir er matarbloggari og ungfrú Ísland 1977. Hún segir
frammistöðu Pollapönks hafa komið sér skemmtilega á óvart í undankeppninni og
vonar að Ísland lendi ofar en í 16. sæti. MYNDIR/GVA