Fréttablaðið - 10.05.2014, Síða 118
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 74
N 28
2014
Listahátíð
í Reykjavík
Leikhúsið og Listahátíð
Biðin
@ Þjóðleikhúsið — 3. & 4. júní
SAGA
@ Þjóðleikhúsið — 5. & 6. júní
Der Klang der Offenbarung des Göttlichen
@ Borgarleikhúsið — 28., 29. & 30. maí
ÆLT YFIR BAKIÐ Á HERU
Í einu atriðinu í Vonarstræti er pers-
óna Heru Hilmarsdóttur, Eik, mætt
í Íslendingapartí í útlöndum sem
er haldið um borð í snekkju. Sagan
segir að atriðið sé byggt á sannri sögu
sem segir frá íslenskri stúlku sem var
búsett erlendis og mætti í partí með
erlendum vini sínum. Partíið ku hafa
verið haldið af íslenskum auðjöfrum
og segir sagan að þjóðþekktur
maður hafi sést æla yfir
bakið á ungri konu sem
hann var að gamna sér
með. Íslensku auðjöfrarnir
ku hafa nálgast stúlkuna
og talað ensku við hana,
grunlausir um að þar
væri á ferð samlandi
þeirra. - glp
„Bentu mér á
fimmtíu mann-
eskjur á netinu
sem segja að ég
sé súpersexí. Ég
skal benda þér á
fimmtíu til við-
bótar sem segja að
ég sé gamall og líti
út eins og pabbi
einhvers.“
LEIKARINN JON
HAMM UM STÖÐU SÍNA
SEM KYNTÁKN Í VIÐTALI
VIÐ PEOPLE.
„Ég var sjö ára þegar Íslending-
ar kepptu fyrst árið 1986. Þá var
ég stödd heima hjá frænku minni
og vissi ekkert hvað þetta var. Ég
horfði bara og beið eftir stigunum
til Íslands og skildi ekki af hverju
við fengum engin stig. Það ár vann
Sandra Kim. Mér fannst hún æðis-
leg og í kjölfarið tók ég ástfóstri
við bæði hana og keppnina sjálfa,“
segir Jónína Kristín Guðmunds-
dóttir, einn gallharðasti Eurovisi-
on-aðdáandi Íslands. Hún á upp-
tökur af Eurovision-keppnunum
síðan 1985.
„Það var aldrei til vídjó á mínu
heimili þannig að ég átti ekki þessi
fyrstu ár til að byrja með. En for-
eldrar vinkonu minnar áttu keppn-
irnar á spólu síðan árið 1985 en
hættu að taka upp upp úr 1990.
Það passaði akkúrat við safnið
mitt því þá byrjaði ég að taka upp.
Ég keypti mér meira að segja tæki
til að kópera spólur yfir á DVD.
Núna á ég allar keppnirnar, nema
keppnina í fyrra. Þá var mikið
að gera hjá mér og ég gleymdi að
taka hana upp. Auð vitað er hægt
að panta þetta á netinu eða hlaða
niður en ég vil fá upprunalegu
útgáfuna með íslenska þulnum
að lýsa eins og þetta var þegar ég
var lítil,“ segir Jónina. Hún lenti
í bobba fyrir undankeppnina á
þriðjudaginn þegar Pollapönk
steig á svið fyrir hönd Íslands.
Upptökutækið hennar bilaði og þá
voru góð ráð dýr. Jónína kallaði
eftir hjálp á Facebook og fannst
mörgum það afar spaugilegt.
Spurði ein vinkona hennar meðal
annars hvort þetta væri nokkuð
stöðuuppfærsla úr fortíðinni.
„Vinkona mín tók upp endursýn-
inguna af keppninni og tók líka
upp seinna undanúrslitakvöldið
og ætlar að taka upp úrslitin fyrir
mig því tækið mitt er enn bilað,“
segir Jónína.
„Ég tek upp allt. Mér er alveg
sama hvort Ísland er að keppa
eða ekki. Ég er fyrst og fremst
aðdáandi keppninnar. Auðvitað
held ég alltaf pínulítið með Íslandi
en ég vel mér uppáhaldslag – óháð
því hvaða lag við sendum,“ segir
Jónina. „Ég held með Hollandi
núna en auðvitað held ég líka með
Íslandi. Pollapönkararnir eru
æðislegir. Þeir flytja ekki tónlist
sem ég fíla mest en boðskapurinn
er góður, þeir eru skemmtilegir og
vekja athygli með flottu búning-
unum sínum.“
Aðspurð hvort hún horfi ein-
hvern tíma á upptökurnar segist
Jónína svo sannarlega gera það.
„Það er oftast þannig að ég horfi
mest á keppnina sumarið eftir að
hún er haldin hvert ár. Svo tek
ég stundum maraþon og horfi á
gamlar keppnir. Eftir að ég eign-
aðist barn árið 2009 hef ég haft
minni tíma til að pæla í þessu. En
ég er næstum því eins og alfræði-
orðabók um keppnirnar þar á
undan.“
Jónína segir Eurovision-daga
heilaga daga. „Fólk hefur gert grín
að mér út af þessu í gegnum tíð-
ina. Á tímabili reyndi ég að halda
þessu fyrir mig. Seinna meir,
þegar ég hafði þroskast, var mér
alveg sama. Allir hafa sín áhuga-
mál og mér finnst aðdáunarvert
þegar fólk tekur þau alla leið. Í
dag er þetta ekkert feimnismál og
ég er meira að segja búin að smita
systur mína,“ segir Jónína hlæj-
andi. liljakatrin@frettabladid.is
Á allar Eurovision-
keppnirnar síðan 1985
Jónína Kristín er einn af heitustu aðdáendum Eurovision á Íslandi. Hún fékk
fyrst áhuga á keppninni þegar hún var sjö ára og er búin að taka keppnina upp
síðan hún var ung. Hún lenti í bobba á þriðjudag þegar upptökutækið bilaði.
„Mér finnst erfitt að svara því hvað uppáhalds Eurovision-lagið mitt er.
Wild Dances með Ruslönu stendur alltaf upp úr, sem og lagið Molitva frá
Serbíu árið 2007. Það er mest spilaða lagið í iTunes-listanum mínum og ég
fæ gæsahúð þegar ég hlusta á það.
Uppáhalds íslenska lagið mitt er Mundu eftir mér með Gretu Salóme og
Jónsa. Það er líka gæsahúðarlag fyrir mig og ég hlusta á það reglulega.“
Molitva mest spilað á iTunes
HELDUR ALLTAF PÍNULÍTIÐ MEÐ ÍSLANDI Jónína er fyrst og fremst aðdáandi
Eurovision-keppninnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MÁLNINGARMAMBÓ
Rithöfundurinn Þorbjörg Marínós
undirbýr nú komu frumburðarins
af kappi og er í óða önn að gera
barnaherbergið klárt. Hún og sam-
býlismaður hennar, Karl Sigurðsson,
gátu ekki komið sér saman um
litaval á veggina og úr varð að þau
blanda saman sínum
uppáhaldslitum á
veggina. Ágætis
málamiðlun en
Þorbjörg heldur
útgáfuteiti vegna
bókar sinnar, 20
tilefni til dagdrykkju,
á fimmtudaginn. -áp
SÁÁ-ÁLFURINN
Margir hafa velt fyrir sér SÁÁ-álfi
þessa árs sem kominn er í sölu en
mikil líkindi þykja með álfinum og
jólabjór Tuborg-verksmiðjunnar, en
báðir eru klæddir í bláan búning
með hvítum doppum. Rúnar Freyr
Gíslason, leikari og samskiptafulltrúi
SÁÁ, segir samtökin ekki hafa velt
líkindunum fyrir sér en kannski séu
þau við hæfi. „Hann ætti að höfða
til allra, en SÁÁ eru ekki
eingöngu samtök þeirra sem
hafa lent í vandræðum með
áfengi. Margir sem styðja
SÁÁ geta vel drukkið
áfengi í hófi,“ segir
Rúnar Freyr léttur í
bragði. - fbj
„Mér skilst að ef maður vinnur keppnina í sínu landi
þá kemst maður til Parísar í úrslitin og ég hef aldrei
farið til Parísar og langar mikið þangað,“ segir tón-
listarmaðurinn Viðar Örn Sævarsson en hann er í
þriðja sæti í keppninni EuroMusic Contest 2014 sem
er stærsta nettónlistarkeppni Evrópu.
Það sem vekur athygli er að Viðar Örn er í þriðja
sæti í keppninni í Danmörku, en keppnin fer fram í
40 Evrópulöndum. Hann keppir með hljómsveitinni
sinni, Lonesome Dukes. „Þetta er tríó sem ég er í
með tveimur Dönum,“ bætir Viðar Örn við.
Hann hefur búið í Danmörku síðan árið 2005 og
býr í Óðinsvéum. „Ég veit ekki hversu vinsæl þessi
keppni er í Danmörku en ég sá þetta bara á netinu
og skráði hljómsveitina.“
Kosningu lýkur í dag og þeir sem vilja aðstoða
Viðar Örn og félaga geta farið inn á síðuna euro-
music contest.com. Fleiri íslenskir tónlistarmenn
eru í sömu keppni, en eru þó að keppa á Íslandi. - glp
Íslendingur stríðir Dönum
Íslendingurinn Viðar Örn Sævarsson er í þriðja sæti í evrópskri tónlistarkeppni,
EuroMusic Contest 2014, en hann keppir í Danmörku þar sem hann býr.
SÁ KEPPNINA Á NETINU Viðar er í hljómsveitinni Lonesome
Dukes.
Ég tek
upp allt. Mér
er alveg sama
hvort Ísland
er að keppa
eða ekki. Ég
er fyrst og
fremst aðdá-
andi keppn-
innar.
Jónína Kristín
Guðmundsdóttir