Fréttablaðið - 13.05.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 13.05.2014, Blaðsíða 42
13. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26 visir.is Meira um leiki gærkvöldsins PEPSI-DEILDIN 2014 ÚRSLIT ÍBV - Fylkir 1-3 1-0 Jonathan Green (6.), 1-1 Andrew Sousa (18.), 1-2 Gunnar Örn Jónsson (25.), 1-3 Andrés Már Jóhannesson (85.). Fram - Þór 1-0 1-0 Jóhannes Karl Guðjónsson, víti (64.). Stjarnan - Víkingur 0-0 Keflavík - Breiðablik 2-0 1-0 Elías Már Ómarsson (62.), 2-0 Elías Már Ómarsson (82.). Viðureign KR og FH var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun. NÆSTU LEIKIR Sunnudagur 18. maí: 17.00 Þór - Stjarnan, FH - ÍBV, 19.15 Keflavík - KR, Breiðablik - Fjölnir. Mánudagur 19. maí: 19.15 Víkingur - Fylkir, 20.00 Valur Fram. FÓTBOLTI Árleg spá forráðamanna og fyrirliða í Pepsi-deild kvenna var birt á kynningarfundi deildar- innar í gær. Stjörnunni, sem varð Íslandsmeistari í fyrra með fullt hús stiga, var spáð titlinum í ár en Blikum öðru sæti. Valur, Þór/KA, Selfoss og ÍBV koma næst. ÍA og Aftureldingu er spáð falli úr deildinni en að Fylkir og FH komi til með að blanda sér í fall- baráttuna. Fyrsta umferð deildarinnar hefst í kvöld með fjórum leikj- um. Umferðinni lýkur svo annað kvöld er nýliðar ÍA taka á móti Fylkiskonum á Norðurálsvellin- um á Akranesi. - esá Stjörnunni spáð titlinum SPORT FÓTBOLTI „Stemningin er bara góð. Það er loksins að þetta byrj- ar,“ segir Ásgerður Stefanía Bald- ursdóttir, fyrirliði Íslandsmeist- ara Stjörnunnar, um Pepsi-deild kvenna sem hefst í kvöld með fjór- um leikjum. „Strákarnir eru byrjaðir þannig að maður er aðeins búinn að finna þefinn af sumrinu. Það er bara mikil tilhlökkun og spenna fyrir því að byrja þetta.“ Finnur ekki rólegri mann Stjarnan rúllaði upp Íslandsmótinu í fyrra en liðið vann alla átján leiki sína í deildinni með markatölunni 69-6. Fyrirliðanum líst vel á hópinn sem mætir til leiks í sumar. „Liðið lítur vel út. Við erum búin að bæta við okkur mannskap frá því í fyrra þannig við erum með sterkari hóp. Svo er líka kominn nýr þjálfari,“ segir Ásgerður. Ólafur Þór Guðbjörnsson tók við af Þorláki Árnasyni sem var búinn að skila tveimur Íslandsmeistara- titlum og einum bikarmeistaratitli á þremur árum í Garðabænum en Ásgerður segir breytinguna hafa heppnast vel. Það er þó smá munur á þeim tveimur. „Óli er náttúrlega fagmað- ur fram í fingurgóma þannig að þetta hefur gengið mjög vel. Hann hefur verið í bransanum í 20 ár en þeir eru frekar ólíkir. Yfirvegaðri mann en Óla er ekki hægt að finna en Láki á það til að fara aðeins upp. Línan hans Óla er flatari,“ segir hún og hlær. Undirbúningur Garðabæjar-liðsins hefur verið sérstakur vegna fjölda landsliðs- kvenna í liðinu en þær hafa verið mikið frá í vetur og vor. „Við erum alltaf að missa fimm til sex leikmenn í landsliðsferð- ir sem eru frekar langar þannig að undirbúningurinn hefur verið götóttur. Við byrjuðum líka aðeins seinna að undirbúa okkur því Óli tók ekki við liðinu fyrr en í janúar. En ég er ánægð með hvert liðið er komið núna,“ segir Ásgerður, sem er ein af landsliðskonunum í liði Stjörnunnar. Pakki á toppnum Stjarnan hefur leik í kvöld á móti bikarmeisturum Breiðabliks en liðin hafa mæst nýlega í tveimur stærstu vorleikjunum: Úrslitaleik Meistarakeppni KSÍ og úrslitaleik A-deildar Lengjubikarsins. „Mér finnst fínt að fá svona alvöru leik í byrjun móts en að mæta Blikunum þriðja skiptið í röð var kannski ekki alveg það sem maður vildi endilega. En það er flott að fá svona sex stiga leiki því við förum til Vestmannaeyja í ann- arri umferð og þar verður annar hörkuleikur. Það er reyndar svolítið sérstakt að við erum eina liðið sem spilar á gervigrasi en við byrjum á tveimur útileikjum og þurfum að spila í Fífunni. Það er svolítið sárt því ég mun sakna þess að spila ekki á Kópavogsvelli, gamla heimavell- inum,“ segir Ásgerður. Hún spáir mörgum liðum í bar- áttuna um Íslandsmeistaratitil- inn í sumar. „Þetta verður pakki á toppnum. Ég held að fjögur til fimm lið geri atlögu að titlinum. Þetta verða Breiðablik, Stjarnan, Valur, ÍBV og svo getur Selfoss alveg blandað sér í pakkann. Þetta verður engin einstefna.“ Ekkert 2012 aftur Stjarnan varð Íslandsmeistari 2011 með yfirburðum þegar liðið vann 17 leiki og tapaði aðeins einum en sumarið 2012 mistókst liðinu að verja titilinn þrátt fyrir að vera fyrir fram talið líklegast til þess í árlegum spám. Ásgerður segir Stjörnustúlkur meðvitaðar um hvað gerðist þá. „Það voru þessi fimm prósent sem leikmenn eiga til að gefa eftir. Þetta varð aðeins of þægi- legt fyrir okkur og við héldum að við værum búnar að vinna einhverja tíu titla í röð. Þetta var bara hugarfarið. Sumarið 2012 var víti til varnaðar og nú gefum við frekar aftur í eins og á síðasta ári. Við förum samt ekki í gegnum annað tímabil þar sem við töpum ekki leik,“ segir Ásgerður. tom@frettabladid.is Tökum ekki annað ár án taps Pepsi-deild kvenna í fótbolta hefst í kvöld með fj órum leikjum. Stórleikur er á dagskránni strax í fyrstu umferð en taplausir Íslandsmeistarar Stjörnunnar heimsækja bikarmeistara Breiðabliks í Fífuna í Kópavogi. ÍSLANDSBIKARINN FÓR Í GARÐABÆINN Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, og Danka Podovac með Íslandsbikarinn síðasta haust. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR 3,7 L/100 KM* CO2 ÚTBLÁSTUR 95 GRÖMM ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT P FRÍTT Í STÆÐI! FRÍTT Í STÆÐI Á MIÐBORGARSVÆÐINU RENAULT CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR – VERÐ 3.090.000 KR. Renault Clio er einn vinsælasti bílIinn á Íslandi. Þegar fallegt útlit, ríkulegur staðalbúnaður, úrval sparneytinna bensín- og dísilvéla, hagstætt verð og einstök ný „Dual Clutch“ sjálfskipting smellur saman er ástæðan augljós. Komdu og reynsluaktu nýjum Renault Clio. www.renault.is GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 6 2 3 0 2 *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.