Fréttablaðið - 13.05.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.05.2014, Blaðsíða 4
13. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 42,5% Íslendinga kaupa oft ast pitsu (flat böku) þegar skyndi biti verður fyrir valinu. MMR komst að því í könnun að einn af hverjum tíu hér á landi kaupir ekki skyndibitamat. NÁTTÚRA Starfsmenn Landsvirkj- unar hafa ítrekað staðið veiðiþjófa að verki við Efra-Sog, en í Þing- vallavatni og Efra-Sogi hefur um árabil staðið yfir fiskræktarátak. Engar upplýsingar liggja fyrir um umfang veiðiþjófnaðarins en upp- lýsingar gefa til kynna að hann hafi viðgengist lengi. Þetta kemur fram í skriflegu svari iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytisins við fyrirspurn Össur- ar Skarphéðinssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um rannsókn- ir og vöktunarverkefni sem varða urriða í Efra-Sogi. Össur spyr meðal annars um hvort, og hversu mikil, brögð séu talin að ólöglegum veiðum á urr- iða í Efra-Sogi, og um eftirlit með veiðunum. „Bæði starfsmenn Landsvirkj- unar og Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum hafa ítrekað rekist á veiðiþjófa eða ummerki um þá og stuggað við þeim. Ekkert skipulagt veiðieftirlit er viðhaft, starfsmenn Sogsstöðva hafa þó reynt að fylgj- ast með ferðum grunaðra en það eftirlit hefur verið minna en fyrr- um eftir að fækkaði í föstu starfs- liði,“ segir í svari ráðuneytisins. Það byggir á umsögn Landsvirkj- unar, sem að hluta til er byggt á sérfræðiálitum Veiðimálastofnunar og fyrirtækisins Laxfiska ehf., en eigandi þess, Jóhannes Sturlaugs- son, hefur stundað rannsóknir á urriðanum í Þingvallavatni um ára- bil. Eins kemur fram að til að mæta þörfinni á eftirliti er búið að koma fyrir öryggismyndavél sem fylg- ist með umferð við Efra-Sog. Þá er búið að setja upp skilti sem upplýsa um að svæðið sé vaktað, og er von- ast „til að þetta hafi einnig nokkurn fælingarmátt“, segir í svarinu. Í svarinu kemur fram að frá árinu 2006 hafa fundist urriða- seiði í uppeldi í Efra-Sogi. Árin 2007 til 2010 merktu Laxfiskar 48 urriða á riðunum á Efra-Sogi sem voru á bilinu 57 til 91 sentímetra langir og 2,3 til 9,0 kíló að þyngd. Samhliða veiði á þeim fiski til merkinga var reynt að meta fjölda þeirra urriða á riðunum sem ekki náðust til merkinga þannig að gróflega mætti átta sig á fjölda fiskanna sem hrygndu hverju sinni í Efra-Sogi. Þetta grófa mat sam- hliða merkingum 2007–2010 sýndi að mesti fjöldi hrygningarfiska á riðunum í Efra-Sogi þessi ár var nálægt fjórir tugir fiska árið 2008. Áður hafði lítið fundist við athugun 2006. svavar@frettabladid.is Veiðiþjófar ítrekað staðnir að verki í útfalli Þingvallavatns Bæði starfsmenn Landsvirkjunar og þeir sem stunda rannsóknir við Þingvallavatn hafa ítrekað orðið varir við veiðiþjófa í útfalli vatnsins. Vísir að hrygningarstofni er kominn eftir að vatni var veitt á útfall Þingvallavatns. VIÐ ÖXARÁ Jóhannes Sturlaugsson hefur lengi stundað rann- sóknir á Þingvalla- urriða og staðið veiðiþjófa að verki við Efra-Sog þar sem reynt er að ná upp hrygningu að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR Eins og kunnugt er rann ekkert vatn um náttúrulegt frárennsli Þingvallavatns um áratugaskeið eftir að Stein- grímsstöð við Efra-Sog var byggð á árunum 1958–60. Efra-Sog er náttúrulegt útfall Þingvallavatns til Úlfljóts- vatns. Stíflan sér til þess að vatn sem áður streymdi úr Þingvallavatni um þröngan farveg Efra-Sogs er nú að mestu leitt gegnum jarðgöng til rafmagnsframleiðslu í Steingrímsstöð á bökkum Úlfljótsvatns. Á árunum 1994–1996 var unnið að endurnýjun véla Steingrímsstöðvar. Á meðan á því verki stóð þurfti að veita vatni um árlokur niður farveg Efra-Sogs. Eftir að því verki lauk var ákveðið að halda nokkru vatnsrennsli áfram í árfarveginum og hefur það viðhaldist síðan. Líklegt er talið að núverandi rennsli um farveginn nemi um 3–5 prósentum af náttúrlegu rennsli um Efra-Sog. Efra-Sog vatnslaust með öllu í 35 ár TYRKLAND, AP Mannréttindadóm- stóll Evrópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Tyrkland eigi að greiða samtals 90 millj- ónir evra, eða jafnvirði 14 millj- arða króna, fyrir hernám Kýpur árið 1974 og skiptingu eyjunnar alla tíð síðan. Bótagreiðslurnar skiptast þannig að Tyrkir eiga að greiða 30 milljónir evra í skaðabæt- ur til ættingja þeirra sem féllu í innrásinni, og svo 60 milljónir til þeirra Kýpur-Grikkja sem æ síðan hafa búið innlyksa á Kar- pas-skaga. Þar búa enn nokkur hundruð Kýpur-Grikkja. Kýpur hefur verið tvískipt eyja frá því að Tyrkir gerðu innrás sína þar árið 1974, eftir að Kýp- ur-Grikkir höfðu gert stjórn- arbyltingu og vildu sameinast Grikklandi. Tyrkland er eina ríki heims sem viðurkennir sjálfstætt ríki Kýpur-Tyrkja, en Kýpur-Grikk- ir sömdu um aðild að Evrópu- sambandinu fyrir nokkru. Kýp- ur-Grikkir og Kýpur-Tyrkir hafa lengi rætt um sameiningu en án árangurs. - gb Mannréttindadómstóll Evrópu gerir Tyrkjum að greiða 90 milljónir evra: Tyrkir bótaskyldir vegna Kýpur DÓMSTÓLL Hernám og tvískipting Kýpur felur í sér mannréttindabrot. NORDICPHOTOS/AFP EVRÓPUMÁL Samkvæmt nýrri könnun MMR eru 37,3 prósent landsmanna nú hlynnt því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Niðurstaðan sýnir næstum fjögurra prósentustiga aukningu í stuðningi við inngöngu frá því að sama spurning var lögð fyrir þjóðina í apríl, en þá sögðust 33,5 prósent vera hlynnt inngöngu. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 49,5 prósent vera and- víg inngöngu samanborið við 49 prósent í apríl, svo hlutfall þeirra sem andstæðir eru inngöngu hefur nánast staðið í stað. - hrs Stuðningur við ESB eykst: Meirihluti enn á móti aðild BRUSSEL Höfuðstöðvar Evrópusam- bandsins eru í Berlaymont-byggingunni í Belgíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP DÓMSMÁL Hljómlistarmenn sem komu að uppfærslu Borgarleik- hússins á Mary Poppins höfðu betur í launadeilu sinni við Leik- félag Reykjavíkur fyrir Félags- dómi. Félagsdómur féllst á þá kröfu að sá sem leiddi hljóðfæri sitt í hljómsveit eða væri einn með hljóðfæri sitt væri skilgreindur sem leiðandi maður. Greidd eru hærri laun fyrir þá sem falla í þann hóp en almenna meðlimi hljómsveitar. - ssb Tónlistarmenn höfðu betur: Hærri laun fyrir Mary Poppins LÖGREGLUMÁL Rannsókn miðar vel áfram í máli lögreglumanns, lögfræðings og fyrrverandi starfsmanns fjarskiptafyrirtæk- isins Nova sem grunaðir eru um að hafa skoðað skjöl úr skráning- arkerfi lögreglunnar, LÖKE, á lokaðri síðu á netinu. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins en lög- reglumaðurinn sem grunaður er um að hafa lekið upplýsingum úr LÖKE starfaði hjá lögregluemb- ættinu á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir eru grunaðir um að hafa skoðað upplýsingar um konur sem hafa kært kynferðis- brot og rætt það frjálslega í lok- uðum hópi á Facebook. - ssb Rannsókn miðar vel áfram: Leki úr LÖKE enn í rannsókn Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM Þægilega rólegt veður um allt land þessa dagana. Skýjað með köflum og dálítil væta af og til en yfirleitt þurrt og hlýnar norðanlands á morgun. 7° 6 m/s 9° 6 m/s 11° 6 m/s 10° 8 m/s 3-8 m/s. Vindaspá Gildistími korta er um hádegi 19° 30° 17° 16° 27° 13° 12° 13° 13° 26° 16° 23° 23° 28° 20° 14° 13° 15° 10° 4 m/s 8° 6 m/s 5° 3 m/s 4° 7 m/s 7° 3 m/s 8° 4 m/s 4° 4 m/s 10° 10° 10° 6° 8° 12° 11° 10° 12° 7° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FIMMTUDAGUR Á MORGUN AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Frá kr. 9.900 aðra leið með sköttum Billund

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.