Fréttablaðið - 13.05.2014, Blaðsíða 6
13. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Við höfum séð að
stjórnin í Moskvu er til í
viðræður.
Didier Burkhalter
forseti Sviss
1 Hvers konar tækninýjung hafa fi m-
leikaþjálfarar hjá Gerplu tekið í notkun?
2 Hve margir milljarðamæringar, í
breskum pundum talið, búa í London?
3 Hvers konar fótabúnað segist Snæ-
björn Ragnarsson Pollapönkari vera
kominn í aftur?
SVÖR
1. Forrit fyrir spjaldtölvur sem sýnir mynd-
rænt hvað iðkendur gera vitlaust. 2. 7. 3.
Hermannaklossa.
KOSNINGAR Vísir hefur
opnað kosningavef sinn,
visir.is/kosningar, þar
sem sveitarstjórnarkosn-
ingum á öllu landinu þann
31. maí verða gerð góð
skil.
„Styrkur okkar sem
fréttastofu á öllum þrem-
ur miðlunum, Frétta-
blaðinu, Vísi og Stöð 2,
birtist glögglega á kosninga-
vefnum okkar,“ segir Kolbeinn
Tumi Daðason, fréttastjóri Vísis.
Á kosningavef Vísis er
safnað saman öllum frétt-
um úr öllum miðlum sem
snúa að sveitarstjórn-
arkosningunum. Þá er
einnig fylgst með skoðun-
um kjósenda og annarra
sem tjá sig á samfélags-
miðlum. Þar má einnig
finna innsendar greinar
frá frambjóðendum sem
stuðningsmönnum, auk Oddvita-
áskorunarinnar sem Vísir stend-
ur fyrir.
„Þar hafa oddvitar um allt land
tækifæri til þess að koma stefnu-
málum sínum á framfæri, auk
þess sem þeir svara spurningum
og bregða á leik,“ segir Kolbeinn
Tumi.
Fréttamenn Vísis eru þar með
komnir í kosningagírinn og ætla
sér að veita lesendum sínum góða
þjónustu með öflugum frétta-
flutningi af málefnum sveitar-
stjórnarkosninganna í öllum
sveitarfélögum landsins.
- sa
Sveitarstjórnarkosningum gerð ítarleg skil á nýjum kosningavef Vísis:
Kosningavefur kominn í loftið
KOLBEINN TUMI
DAÐASON
NÍGERÍA, AP Boko Haram, samtök öfgamanna í Nígeríu, krefjast þess
að fá liðsmenn sína lausa úr fangelsi í skiptum fyrir hundruð stúlkna
sem samtökin rændu í síðasta mánuði.
Samtökin birtu í gær myndband þar sem hluti stúlknanna sést biðja
bænir á arabísku og eru þær íklæddar hijab að hætti múslima.
Þetta myndband er fyrsta staðfesting þess að stúlkurnar hafi verið í
haldi samtakanna. - gb
Samtök öfgamanna í Nígeríu sýna stúlkur sem var rænt:
Vilja fá fanga í stað stúlkna
ÚR MYNDBANDINU Stúlkurnar sjást þylja bænir á arabísku, íklæddar hijab að
hætti múslima. NORDICPHOTOS/AFP
VESTMANNAEYJAR Elliði Vignis-
son, bæjarstjóri í Vestmanna-
eyjum, telur kjósendur þurfa að
sýna mikla ábyrgð í komandi
kosningum.
„Okkar áhersla í Sjálfstæðis-
flokknum hefur verið að sýna
ábyrga fjármálastjórnun og
viljum við halda því áfram. Við
höfum lækkað skuldir bæjar-
félagsins um á sjötta milljarð á
síðustu árum. Eyjamenn vilja
vonandi áfram slíka festu í
rekstri bæjarins.“
Sjálfstæðisflokkurinn mældist
með um 70% atkvæða í könnun
Félagsvísindastofnunar og fimm
menn í bæjarstjórn. Eyjalistinn
er með um 29% atkvæða og tvo
bæjarfulltrúa. - sa
Segir fjárhaginn traustan:
Ábyrgðin mikil
hjá kjósendum
STJÓRNMÁL Björt framtíð á Ísa-
firði hefur fengið frest til hádegis
í dag til að gera úrbætur á lista
sínum fyrir komandi sveitarstjórn-
arkosningar.
Að sögn Kristjáns G. Jóhanns-
sonar úr yfirkjörstjórn Ísafjarðar
var um að ræða ýmis atriði í sam-
bandi við undirskriftir og með-
mælendafjölda.
Alls bjóða fjórir listar fram í
bænum í kosningunum en fram-
boðsfrestur rann út á laugardag.
Auk Bjartrar framtíðar bjóða fram
Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur og Í-listi, sem í þetta sinn
er ekki formlegt kosningabandalag
flokka eins og í síðustu kosningum.
Allir listarnir nema Bjartrar fram-
tíðar voru samþykktir af yfirkjör-
stjórn á sunnudag. - fb
Björt framtíð fær frest:
Úrbóta er þörf
ÍSAFJÖRÐUR Björt framtíð á Ísafirði
þarf að gera úrbætur á lista sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
KOSNINGAR
Atkvæðagreiðsla hafin
Reykvíkingar geta greitt atkvæði utan
kjörstaðar á skrifstofu Sýslumannsins í
Reykjavík milli klukkan 8.30 og 15 fram
á föstudag. Opið verður um helgina
frá 12 til 14, en á mánudag færist
atkvæðagreiðslan í Laugardalshöll og
verður opin milli klukkan 10 og 22.
VOPNAFJARÐARHREPPUR Þrjú
framboð bjóða fram til sveitar-
stjórnar í Vopnafjarðarhreppi;
Betra Sigtún, K-listi og Fram-
sóknarflokkur.
Sjálfstæðismenn buðu fram
fyrir fjórum árum en bjóða ekki
fram núna. Björn Hreinsson,
oddviti sjálfstæðismanna í síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum,
sagði að ekki hefðu fundist nægi-
lega margir sjálfstæðismenn til
að setjast á lista hjá flokknum í
hreppnum. - sa
Þrjú framboð á Vopnafirði:
D-listi býður
ekki fram
VEISTU SVARIÐ?
Kvensjúkdómalæknir
Hef opnað stofu mína í Læknastöðinni Glæsibæ.
Tímapantanir í síma 535 6800.
Helga Medek
Sérfæðingur í fæðingar- og kvensjúkdómum
ÚKRAÍNA, AP Rússnesk stjórnvöld
hvetja Úkraínustjórn til þess að
hefja alvöru viðræður við upp-
reisnarmenn í austanverðri
Úkraínu. Skrifstofa Pútíns Rúss-
landsforseta leggur til að Örygg-
is- og samvinnustofnun Evrópu,
ÖSE, hafi milligöngu um slíkar
viðræður.
Rússar sýna því hins vegar
engan áhuga, enn sem komið er í
það minnsta, að innlima héruðin
Donetsk og Luhansk þrátt fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu sem upp-
reisnarmenn efndu til í þessum
héruðum á sunnudag.
Uppreisnarmenn lýstu því yfir
í gær að yfirgnæfandi meiri-
hluti kjósenda í báðum héruð-
um hefði samþykkt að lýst yrði
yfir sjálfstæði. Uppreisnarmenn
í Donetsk tóku síðan næsta skref
og lýstu yfir sjálfstæði héraðsins,
en í Luhansk gengu menn ekki
svo langt heldur létu sér nægja
að lýsa yfir að þeir myndu ekki
taka þátt í forsetakosningum í
Úkraínu, sem haldnar verða síðar
í þessum mánuði.
Í Donetsk voru 89 prósent kjós-
enda sögð hafa samþykkt þetta,
en í Luhansk 96 prósent. Kosn-
ingaþátttakan er sögð hafa verið
75 prósent í Donetsk, en 73 pró-
sent í Luhansk.
Engin leið hefur verið að sann-
reyna þessar tölur, þar sem
alþjóðlegt kosningaeftirlit var
ekki haft með þessum kosning-
um. Úkraínustjórn segir kosn-
ingarnar hafa verið farsa, sem
enginn geti tekið mark á.
„Þessi farsi, sem hryðjuverka-
menn kalla þjóðaratkvæða-
greiðslu, mun ekki hafa neinar
lagalegar afleiðingar nema sak-
næma ábyrgð þeirra sem skipu-
lögðu hana,“ sagði Oleksandr
Túrtsjínov, sem til bráðabirgða
gegnir embætti forseta Úkraínu.
Rússar brugðust snöggt við
eftir að sambærilegar kosning-
ar voru haldnar í skyndi á Krím-
skaga í síðasta mánuði. Uppreisn-
armenn þar lýstu yfir sjálfstæði
og óskuðu eftir sameiningu við
Rússland, og Rússar innlimuðu
héraðið stuttu síðar.
„Við höfum séð að stjórnin í
Moskvu er til í viðræður,“ segir
Didier Burkhalter, forseti Sviss,
sem nú fer með formennsku í ÖSE.
Burkhalter ræddi við Pútín í
síðustu viku og lagði fyrir hann
hugmyndir að lausn á deilunni.
Að fundi þeirra loknum breyttist
tónn Pútíns og hann tók að hvetja
uppreisnarmenn til að fresta
kosningum um sjálfstæði.
gudsteinn@frettabladid.is
Rússar vilja ekki
frekari innlimun
Uppreisnarmenn í Donetsk og Luhansk lýsa yfir sjálfstæði, en fá engar undirtektir
hjá rússneskum stjórnvöldum um hugsanlega innlimun héraðanna í Rússland.
Úkraínustjórn segir kosningar hafa verið farsa sem enginn geti tekið mark á.
VEIFAR NIÐURSTÖÐUTÖLUM Alexander Malyhin, formaður kjörnefndar í Luhansk,
lýsir yfir sigri sjálfstæðissinna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Önnur umræða um
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
séreignarsparnað hófst á Alþingi
síðdegis í gær og stóð enn er blaðið
fór í prentun.
Í áliti meirihluta efnahags- og við-
skiptanefndar segir að frumvarpið
feli í sér hvata til aukinnar vinnu og
sparnaðar. Til lengri tíma litið muni
aukning sparnaðar koma fram í því
að fólk eignist meiri hlut en ella í
fasteignum sínum. Með frumvarp-
inu sé komið til móts við heimilin í
landinu með almennum aðgerðum
án þess að fórna sjálfbærni og stöð-
ugleika við stjórnun ríkisfjármála.
Minnihluti efnahags- og við-
skiptanefndar segir að úrræðið
muni hvetja þá sem ekki spara í
séreign til að hefja slíkan sparnað.
Að öðru leyti sé óvíst hvort úrræði
frumvarpsins muni hafa aukinn
sparnað í för með sér. Þá er varað
við efnahagslegum afleiðingum
frumvarpsins og minnihlutinn
gagnrýnir að ákvæði um séreign-
arsparnað nýtist þeim sem hærri
hafa tekjurnar mun betur en hinum
tekjulágu.
Þingstörf gengu hratt fyrripart
dags í gær. Níu þingsályktunartillög-
ur voru samþykktar, þar má nefna
þingsályktunartillögu um endur-
skoðun laga og reglna með tilliti
til myglusveppa og tjóns af þeirra
völdum. Mikill samhljómur var í
atkvæðagreiðslunni en hún var sam-
þykkt af 58 þingmönnum.
Tillagan er um að umhverfis- og
auðlindaráðherra skipi starfshóp
sem taki til heildstæðrar endurskoð-
unar lög og reglur á sviði bygging-
armála með tilliti til myglusveppa
og þess tjóns sem þeir geta valdið.
Af öðrum tillögum má nefna að
samþykkt var þingsályktun um
stefnumótandi byggðaáætlun 2014
til 2017 auk stuðnings við sjálfs-
ákvörðunarrétt íbúa Vestur-Sahara.
Þá voru greidd atkvæði um mörg
frumvörp ríkisstjórnarinnar að lok-
inni annarri umræðu.
- jme
Mörg mál voru afgreidd á Alþingi í gær, þar á meðal 9 þingsályktunartillögur:
Séreignarsparnaður ræddur
klukkustundum saman
ÞINGHLÉ Kvöldfundur var á Alþingi í
gær enda styttist í að þingið fari í sum-
arfrí. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR