Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 14
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Fjaðrafokið sem þyrlast hefur upp kring-
um Framsóknarflokkinn hefur að formi
til tvær hliðar. Önnur snertir innan-
flokksmál, hin hliðin snýr að umfjöllun í
fjölmiðlum. Þar ber reyndar hæst grein-
arhöfunda á vegum Fréttablaðsins. Ef
lýsa ætti í fáum orðum þeirri hlið, sem
að innanflokksmálum snýr, einkennist
hún af veikburða forystu, ráðaleysi og
klúðri. Fárra orða lýsing á skrifum til-
tekinna greinarhöfunda um stefnu og
störf Framsóknarflokksins rúmast í einu
orði: ritsóðaskapur.
Á hvora hliðina sem maður lítur,
kemur í ljós það versta sem finnst í
íslenskri pólitík og umræðuháttum: aga-
leysi í orði og gerðum. Agaleysið er aug-
ljóst í stjórnarháttum framsóknarfor-
ystunnar í Reykjavík og agaleysi í orði,
rakalausar ásakanir og ályktunarlygi
einkenna skrif þeirra sem nú gera hróp
að Framsóknarflokknum, gera honum
upp skoðanir, viðhorf og stefnu, m.a.
ýjað að samlíkingu við rasistasamtök í
Evrópulöndum. Þótt Eiríki Bergmann
Einarssyni sé til alls trúandi í anda Guð-
mundar Hálfdanarsonar, koma mér skrif
Guðmundar Andra Thorssonar og Ólafs
Stephensen í þá átt mjög á óvart.
Veikburða forysta Framsóknarflokks-
ins er okkur gömlu framsóknarfólki hin
mesta ömun. Við munum tímana tvenna.
Þetta stórtæka framboðsklúður, sem for-
ysta flokksins hefur gert sig bera að frá
upphafi til enda, á sér enga hliðstæðu í
næstum 100 ára sögu Framsóknarflokks-
ins. Og þegar eftirleikur klúðursins er sá
sem raun ber vitni, að ályktunarlygurum
er lagt upp í hendurnar að skálda upp og
útbreiða ófrægingarmýtu um flokkinn,
þá er tímabært að flokksforystan taki
við sér.
Í fyrstu lotu framboðsklúðursins sagði
Óskar Bergsson af sér sem fyrsti maður
á framboðslista flokksins í Reykjavík –
reyndar að óþörfu. Er þá ekki tímabært
að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir
sýni kjark og segi af sér sem borgar-
fulltrúi, enda augljós tengsl milli orða
hennar og óhróðursskrifa um Framsókn-
arflokkinn?
Harðsvíruð ófrægingarmýta
STJÓRNMÁL
Ingvar Gíslason
fv. ráðherra og
alþingismaður
Framsóknarfl okks
ins
➜ Veikburða forysta Framsóknar-
fl okksins er okkur gömlu fram-
sóknarfólki hin mesta ömun. Við
munum tímana tvenna.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
T
ölvuleikir fyrir ung börn hafa verið í sviðsljósinu
undanfarið og athygli verið vakin á þeim gríðarlega
mun sem er á innihaldi slíkra leikja eftir því hvort
þeir eru markaðssettir fyrir drengi eða stúlkur.
Fjögurra til sex ára strákar eiga að læra að lesa og
leysa þrautir en stelpur á sama aldri eiga að læra hvernig
konur geti orðið sætari og mjórri og svo eiga þær auðvitað að
læra að elda. Lengst gengur sennilega leikurinn Plastic Sur-
gery þar sem málið snýst um að framkvæma rafrænt fitusog
og aðrar fegrunaraðgerðir á þar til gerðum eftirmyndum of
feitra kvenna. Sá leikur hefur reyndar verið fjarlægður af
Google Play og App Store en er enn í boði á ýmsum vefsíðum
sem bjóða upp á leiki fyrir börn, þrátt fyrir hávær mótmæli
úr ýmsum áttum.
Í samtali við Vísi í gær sagði
Auður Magndís Auðardóttir,
verkefnisstjóri Jafnréttisskóla
Reykjavíkurborgar, að sala
á slíkum leikjum væri mjög
skiljanleg út frá markaðssjón-
armiði. „Já, fegurðarbransinn
veltir milljörðum og þetta eru
tilraunir til að móta stúlkur frá unga aldri. Þannig að ef maður
horfir á þetta bara út frá markaðsfræði er þetta ekkert skrítið,“
sagði hún. Sjónarmið út af fyrir sig en vekur óneitanlega upp
spurningar um það hvort virkilega sé markaður fyrir lýtaað-
gerðaleiki fyrir fjögurra til sex ára stúlkubörn. Börn á þeim
aldri kaupa sér væntanlega ekki tölvuleikina sjálf þannig að ef
það er eftirspurn markaðarins eftir slíkum leikjum sem fram-
boðinu ræður hljóta það að vera foreldrarnir sem fóðra börnin
sín á þessu. Getur það virkilega verið?
Það er auðvelt og átakalítið að hneykslast á peningagræðgi
stóra ljóta markaðsúlfsins sem er að halda þessum ósóma að
börnunum okkar en um leið ógerlegt að horfa fram hjá þeirri
staðreynd að ef þessir leikir seljast ekki er framleiðslu þeirra
fljótlega hætt. Þannig virkar sá úlfur nú einu sinni. Ábyrgðin
liggur því fyrst og síðast hjá foreldrum stúlkna á þessum
aldri – og öllum aldri ef út í það er farið – að kaupa ekki þessa
mannskemmandi leiki og aðrar staðalímyndaviðhaldandi
markaðsvörur. Það erum við sem erum fyrirmyndir og upp-
alendur barnanna okkar, ekki einhver misvitur leikjafyrirtæki
úti í heimi. Bakslagið í kynjaumræðunni er ekki markaðsöfl-
unum að kenna heldur okkur sjálfum. Á meðan við látum okkur
detta í hug að fóðra dætur okkar á fegrunaraðgerðaleikjum
og stöðluðum prinsessufyrirmyndum mun ekkert breytast. Og
þótt rafrænir ranghalar internetsins séu vandrataðir þá ætti
það að vera á færi hvers foreldris að koma í veg fyrir að börn
þeirra leiki sér í slíkum leikjum. Kostar auðvitað tíma og yfir-
legu en hlýtur að vera margfaldlega þess virði þegar upp er
staðið. Hvaða foreldri vill að dóttir þess hafi þær hugmyndir
að hlutverk kvenna sé fyrst og fremst að vera sætar? Eða
liggur vandinn kannski einmitt í því að foreldrar sjái ekkert
athugavert við þá afstöðu? Þá er virkilega kominn tími á nýja
kvennabyltingu – og það strax í dag.
Hver kaupir barnatölvuleiki um fitusog?
Haltu kjafti, eldaðu
og vertu mjórri
Greining á stöðunni í ESB
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins og penni
á Evrópuvaktinni, skrifar pistil
í gær um umræðu í evrópskum
fjölmiðlum í kjölfar kosninga til
Evrópuþingsins í maí. Hann segir
þær hafa undirstrikað hyldýpi milli
sjónarmiða pólitískrar yfir-
stéttar á meginlandinu
og almennings í að-
ildarríkjum ESB. Hann
segir þau opinberu
sjónarmið sem heyrast
hér frá sambandinu
séu viðhorf pólitísku
yfirstéttarinnar en ekki
hins almenna borgara.
Þetta sé gagnlegt
að hafa í huga
þegar rætt er
um aðild Íslands að ESB og minnir
á að danski aðallinn hafi líka átt sér
talsmenn á Íslandi.
Löglegt að hygla þjóðkirkjunni
Brynjar Níelsson, hæstaréttarlög-
maður og þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, skrifaði vinsælan pistil um
umræðuna um úthlutun
lóðar undir mosku á
Pressuna. Hann segir
stjórnvöldum alls
óskylt að úthluta
ókeypis lóðum til
trúfélaga hvers kyns,
nema þjóð-
kirkjunnar.
Heimilt sé að hygla þjóðkirkjunni á
grundvelli stjórnarskrár, án þess að
það teljist brot gegn jafnræðisreglu.
Brynjar sagði alvarlega hlutinn í
þessu öllu, sem enginn hefði orð á,
að óheimilt væri að úthluta lóðum
án endurgjalds nema með heimild í
lögum, til annarra en þjóðkirkjunnar.
Þannig væri tillaga oddvita um
að kjósa um hvar lóðargjöfin
undir moskuna ætti að vera
því alveg jafnótæk. Brynjar
segir að ef mönnum þyki eðli-
legt að gera öllum trúfélögum
jafnt undir höfði, verði menn
að breyta stjórnarskrá og
lögum.
fanney@frettabladid.is