Fréttablaðið - 11.06.2014, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 11. júní 2014 | SKOÐUN | 15
Þegar ég kom inn á þing
um miðjan tíunda ára-
tuginn minnist ég kröft-
ugs málflutnings gegn
kvótakerfinu. Með því
væri verið að færa tiltekn-
um aðilum eignarhald á
sjávar auðlindinni. Fram-
salið væri augljósasta vís-
bending þessa auk veð-
setningar á óveiddum afla.
Þessu svöruðu verjend-
ur kerfisins með því að
vísa í fyrstu grein laga um
stjórn fiskveiða frá 1990 en þar
segir: „Nytjastofnar á Íslandsmið-
um eru sameign íslensku þjóðar-
innar. Markmið laga þessara er að
stuðla að verndun og hagkvæmri
nýtingu þeirra og tryggja með því
trausta atvinnu og byggð í landinu.
Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt
lögum þessum myndar ekki eign-
arrétt eða óafturkallanlegt for-
ræði einstakra aðila yfir veiði-
heimildum.“
Aðgangseyri að auðlindinni
Nú líður og bíður. Haldið er áfram
að veðsetja auðlindina og færist
smám saman í vöxt að taka fjár-
muni sem þannig eru fengnir út
úr sjávarútvegi og braska með á
óskyldum sviðum. Á bak við fjár-
magnið var hins vegar engin verð-
mætasköpun í núinu. Þarna hófst
ferill sem endaði í október 2008
með allsherjarhruni.
En til að gera langa sögu stutta
þá komu í tíð síðustu ríkisstjórn-
ar fram tillögur um að krefja
útgerðarfyrirtæki um talsverðan
aðgangseyri að auðlindinni. Þessu
var mótmælt af hálfu útgerðarfyr-
irtækja og bandamanna þeirra. Ég
minnist fyrrverandi lagaprófess-
ors sem hélt því blákalt fram að
með gjaldtökunni væri gengið á
eignarréttinn. Þrátt fyrir tilvitn-
aða grein fiskveiðistjórnunarlaga
hefði myndast hefðarréttur til
eignar. Hann yrði að virða! Gjald-
takan væri því óheimil.
Í náttúruverndarlögum eru skýr
ákvæði um heimildir til gjaldtöku.
Bannað að rukka ferðamenn í eig-
inhagnaðarskyni. Engu að síður
tíðkast það við Kerið í Grímsnesi.
Þar eru teknir peningar af fólki
þótt það stríði gegn landslögum
og þúsund ára hefð.
Ríkisstjórnin lætur þetta gott
heita. Ferðamálaráðherrann hefur
meira að segja sagt að rukkunin
gangi prýðisvel! Þar með hefur
ríkisstjórnin brugðist því grund-
vallarhlutverki sínu að verja fólk
gegn ránsmönnum. Slík ríkisstjórn
er handónýt.
Hvers vegna þá spurningar-
merkið í fyrirsögninni?
Það er vegna þess að ríkisstjórn-
in er meðvirk í því að kvótavæða
náttúru Íslands, skapa ránsmönn-
um hefðarrétt til tollheimtu. Þar
með er hún landeigendum við
Kerið ekki ónýt.
Handónýt
ríkisstjórn?
Við hötum öll eitthvað.
Það er þegar við förum
að hata aðrar manneskjur
sem hlutirnir verða alvar-
legir. Þá fyrst skemmtum
við skrattanum og bjóðum
honum í grill í leiðinni.
Fordæmum hatur en
ekki fólk. Við verðum að
tala saman, hvort sem
okkur líkar betur eða verr.
Í því felst ekki samþykki
á rasisma. Í því felst að
samræða og virk hlustun er eina
leiðin til að hafa jákvæð áhrif. Við
sem óttumst ekki nálægð við mús-
lima í samfélaginu megum ekki
sjálf gera okkur sek um hiklausa
réttlætingu á öllu sem kemur frá
okkur sjálfum og vandlætingu á
öllu sem kemur frá hinum. Skuld-
bindum okkur frekar til að reyna
að finna sameiginlegan flöt sem
við getum byrjað að tala saman út
frá. Kannski þurfum við að fara
alla leið til upphafsins í þeirri leit
og segja: Ókei, við erum öll mann-
eskjur, við getum verið sammála
um það.
Hættum að vera reaktíf og
verðum próaktíf. Hættum að vera
þolendur og verðum gerendur.
Annars kemur Breivik einhvern
daginn og bankar upp á.
Sagan segir okkur að einhliða
fordæming á fólki sem er hallt
undir áróður útlendingahatara
gerir tvennt: 1. Þjappar saman
þeim sem eru sammála okkur nú
þegar og brýnir þeirra vopn. 2.
Rekur þá sem eru ósammála okkur
í felur að brýna sín vopn.
Í umhverfi einhliða fordæm-
ingar verður engin samræða. Þótt
okkur langi óstjórnlega (í báðum
hópum) að það virki að segja:
„Þetta er rangt hjá þér, þú ert vit-
laus og málið er dautt,“ þá er það
ekki þannig. Enginn vill láta tala
niður til sín. Þetta á við um þá
sem eru hræddir við hatrið sem
streymir upp úr iðrum jarðar. Það
á við um þá sem hatrinu er hellt
yfir. Og það á líka við um þá sem
hata. Oft erum við í öllum þessum
hópum samtímis.
Arfavondir félagar
Rasismi og fasismi, þessir arfa-
vondu félagar, þrífast best í samfé-
lagi þar sem ekki er hlustað á fólk.
Þar sem fólk fær ekki aðgang að
kjötkötlunum, lýðræði er ábóta-
vant, margir hafa það skítt. Það er
ekki að ástæðulausu sem stórveldi
verða til. Það þarf svart og hvítt,
eitthvað til að hata hinum megin.
Í landi þar sem við ætlum von-
andi ekki að byggja Berlínarmúr
getum við ekki afgreitt hlutina
með köldu stríði. Við tökumst á,
hér og nú. Ég legg til nokkuð mjög
róttækt: Setjumst til borðs með
ætluðum óvinum okkar og athug-
um hvort ekki er hægt að hreyfa
málið eitthvað áfram í átt til frið-
ar. Hlustum á fólk segja frá því
hvað það er hrætt við, hverju því
er illa við. Höldum stillingu okkar.
Verum vel upplýst. Hlustum á til-
finningar.
Hættum að fordæma og förum
að hlusta, ekki á hatur – við tökum
aldrei undir það – heldur á fólk.
*Úr „Álfablokkin“,
lag og texti eftir KK.
„… allir eru skrýtnir,
og líka þú“ *
STJÓRNMÁL
Ögmundur
Jónasson
alþingismaður
SAMFÉLAG
Kristín Elfa
Guðnadóttir
frumkvöðull
➜ Ferðamálaráðherr-
ann hefur meira að
segja sagt að rukk-
unin gangi prýðisvel!
Þar með hefur ríkis-
stjórnin brugðist því
grundvallarhlutverki
sínu að verja fólk
gegn ránsmönnum.
➜ Hættum að vera
reaktíf og verðum
próaktíf. Hættum
að vera þolendur og
verðum gerendur.
Annars kemur Breivik
einhvern daginn og
bankar upp á.
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
GÓÐIR, NÝLEGIR,
TRAUSTIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
MM Pajero 3,2 GLS 33”
Árgerð 2006, dísil
Ekinn 161.000 km
sjálfskiptur
Ásett verð: 3.490.000
Tilboðsverð
2.790.000
MM Pajero 3,2 Intense
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 36.000 km, sjálfskiptur
Audi Q7 4,2 (USA)
Árgerð 2007, bensín
Ekinn 103.000 km, sjálfskiptur
VW Polo 1.4 Comfortl. AT
Árgerð 2012, bensín
Ekinn 44.500 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 8.190.000
Ásett verð: 4.890.000
Ásett verð: 2.420.000
Mitsubishi I-MIEV
rafmagnsbíll, Árgerð 2012,
rafmagn, ekinn 4.900 km,
Mercedes-Benz ML350
Árgerð 2006, bensín
Ekinn 164.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 3.190.000
Ásett verð: 3.7900.000
Toyota Land Cruiser
120 VX, Árgerð 2005, dísill
Ekinn 170.000 km, sjálfskiptur
VW Passat Comfortl 1.6
TDI, Árgerð 2012, dísil
Ekinn 25.000 km, sjálfskiptur
Audi A4 2.0TDI AT
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 24.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 4.190.000
Ásett verð: 4.490.000 Ásett verð: 5.750.000
Komdu og
skoðaðu úrvalið!
Skoda Rapid Amb. 1.4 Tsi
Árgerð 2013, bensín
Ekinn 27.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 3.350.000
Tilboðsverð: 3.290.000