Fréttablaðið - 11.06.2014, Síða 19
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 11. júní 2014 | 36. tölublað | 10. árgangur
STAFRÆN
PRENTUN!
➜ Vörur Sif Cosmetics,
dótturfyrirtækis ORF
Líftækni, eru fáanlegar
í um 700 verslunum og í
fi mm heimsálfum.
➜ Tekjur samstæðunnar
námu hálfum milljarði
króna árið 2013 og áætl-
anir gera ráð fyrir 650
milljóna króna sölu-
tekjum á þessu ári.
➜ Rekstur ORF Líftækni
gæti skilað hagnaði í
fyrsta sinn, segir Krist-
inn D. Grétarsson, for-
stjóri samstæðunnar.
Í 700 VERSLUNUM Í 25 LÖNDUM
Fjölgun þrátt fyrir verkföll
Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að ferða-
mönnum muni fjölga í það minnsta um 20 prósent
á þessu ári frá því í fyrra, þrátt fyrir að ferðum
hafi verið fækkað hjá Icelandair samhliða verkfalli
flugmanna. Alls fóru 66.700 ferðamenn frá landinu
um Keflavíkurflugvöll í maímánuði sem svarar til
24,4 prósenta fjölgunar milli ára en miðað við tölur
Isavia yfir úthlutuð stæði hefði mátt búast við
fjölgun um 31 prósent. Forsendur spárinnar kunna
þó að bresta verði af frekari verkföllum innan
flugstéttarinnar en flugvirkjar hafa boðað verkfall
í júní og flugmenn sömdu aðeins til 30. september.
- fbj
Ríkidæmi eykst í heiminum
Auður einkaaðila jókst um fjórtán prósent á
síðasta ári um heim allan og nú er svo komið að
einkaaðilar um heim allan eiga hundrað fimmtíu
og tvær trilljónir dollara. BBC greinir frá.
Hækkunina á síðasta ári má að mestu rekja til
hækkandi hlutabréfaverðs. Mest varð hækkunin í
Asíu, ef Japan er undanskilið, og þar jókst auður-
inn um rúm þrjátíu prósent á einu ári.
Tölurnar eru teknar saman af ráðgjafarfyrir-
tæki í Boston og þegar talað er um einka-auð er átt
við beinharða peninga, innstæður á bankabókum,
hlutabréf og aðrar eignir einkaaðila en fyrirtæki
og fasteignir eru ekki teknar með í reikninginn.
Þá fjölgaði milljónamæringum um rúmar þrjár
milljónir á árinu. - grv
LSR keypti bæði og seldi í gær
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) keypti í
gær átta milljónir hluta í fasteignafélaginu
Regin. Verðmæti bréf-
anna nam 130 milljónum
króna miðað við skráð
gengi við lokun markaða
í gær. LSR á nú 74 millj-
ónir hluta, eða 5,18 pró-
sent, í fasteignafélaginu.
LSR seldi einnig 7,75 milljónir hluta í Icelandair.
Gengi bréfanna var þá 17,65 krónur á hlut og
heildarsöluandvirðið því um 136 milljónir króna.
Sjóðurinn á nú 9,9 prósent í flugfélaginu, eða 495
milljónir hluta. - hg