Fréttablaðið - 11.06.2014, Side 24
FÓLK|MENNTUN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
MIKIL AF-
KÖST
„Annað sem gerir
það að verkum að
við náum svona
góðum afköstum
er að við kennum
þrjá daga í viku; á
mánudögum, mið-
vikudögum og
föstudögum. Hina
dagana eru nem-
endur í skólanum
að vinna heima-
vinnuna.“
Menntaskólinn Hraðbraut tekur til starfa á ný í haust. Þar er hægt að ljúka stúdentsprófi á
tveimur árum. Námið veitir góðan und-
irbúning undir fjölbreytt háskólanám.
Skólinn er með fyrstu skólum sem mun
kenna eftir nýrri aðalnámsskrá mennta-
og menningarmálaráðuneytisins.
LOTUKERFIÐ GEFIST VEL
En hvernig er hægt að komast yfir allt
námsefnið á helmingi skemmri tíma en
venja er?
„Það gerum við með góðri skipu-
lagningu á tíma nemenda. Við brjótum
námið upp í lotur sem hver er sex vikur
að lengd. Í lok hverrar lotu eru próf.
Námsgreinar í hverri lotu eru aðeins
þrjár eða mun færri en almennt er í
framhaldsskólunum. Námsgreinunum er
lokið eftir hverja lotu og þá taka næstu
námsgreinar við,“ útskýrir skólastjór-
inn Ólafur Haukur Johnson. „Þetta kerfi
hefur gefið góða raun og okkur hefur
tekist að fá nemendur til að vinna mjög
skipulega.
Annað sem gerir það að verkum að
við náum svona góðum afköstum er að
við kennum þrjá daga í viku; á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstudögum.
Hina dagana eru nemendur í skólanum
að vinna heimavinnuna. Þá eru kennar-
arnir til taks og geta aðstoðað ef þörf
krefur. Þegar í kennslustund er komið
er því gert ráð fyrir að nemendur séu
búnir að vinna heima. Kennslutíminn í
hverri námsgrein er vissulega skemmri
en í öðrum skólum en þetta kerfi hefur
gert okkur kleift að komast hraðar yfir
en ella,“ segir Ólafur.
NEMENDUR VITA HVERT ÞEIR STEFNA
Ólafur segir hægt að skipta nemenda-
hópnum í tvennt. „Þetta eru annars veg-
ar nemendur sem koma beint úr grunn-
skóla og hafa augastað á því sem þeir
ætla að gera í framtíðinni. Þeir vilja því
ljúka framhaldsskóla á sem skemmstum
tíma. Hins vegar eru nemendur sem hafa
af einhverri ástæðu ekki náð að fóta sig í
framhaldsskóla. Margir hafa verið úti í at-
vinnulífinu en fá svo augastað á tilteknu
háskólanámi og vilja því ljúka stúdents-
prófi á skömmum tíma.“
PERSÓNULEGUR SKÓLI
Skólinn er að sögn Ólafs lítill og persónu-
legur og er vel haldið utan um fólk. Nem-
endur eru á öllum aldri. „Við höfum náð
að virkja til vinnu einstaklinga sem hafa
jafnvel þvælst á milli skóla og ekki náð
árangri fyrr. Hjá okkur tekst þeim loks
að vinna skipulega og margir hafa haft
það á orði að þeir hefðu aldrei útskrifast
sem stúdentar ef þeir hefðu ekki verið í
þessu kerfi. Hér skipta öguð vinnubrögð
og samviskusemi öllu máli, jafnvel meira
máli en miklar námsgáfur.“
MIKILL ÁHUGI
Menntaskólinn Hraðbraut verður rekinn
án fjárstuðnings ríkisins í ár og því eru
skólagjöldin umtalsverð. Ráðherra hefur
hafnað því að gera þjónustusamning við
skólann vegna fjárhags ríkissjóðs. Engu
að síður var ákveðið að opna skólann,
enda áhuginn mikill. Skólagjöld verða því
að standa undir rekstri og verða 890.000
á hverju skólaári. Fjárhagslegur ávinning-
ur nemenda af því að ljúka háskólanámi
fyrr er þó að sögn Ólafs miklu meiri en
nemur skólagjöldunum enda aukast ævi-
tekjurnar til muna við að komast tveimur
árum fyrr út í atvinnulífið.
UMSÓKNARFRESTUR TIL 13. JÚNÍ
Hægt er að sækja um skólavist á heima-
síðu skólans, hradbraut.is, til föstudags-
ins 13. júní. Áhugasamir eru sömuleiðis
hvattir til að líta við en skólinn er til
húsa að Faxafeni 10. Hann er opinn frá 9
til 12 og 14 til 16.
STÚDENTSPRÓF
Á TVEIMUR ÁRUM
MENNTASKÓLINN HRAÐBRAUT KYNNIR Menntaskólinn Hraðbraut tekur til
starfa á ný í haust, eftir tveggja ára hlé. Þar er boðið upp á tveggja ára nám til
stúdentsprófs í stað fjögurra ára. Boðið er upp á tvær námsbrautir; náttúruvís-
indabraut og hugvísindabraut, og er samsetningunni hagað þannig að námið
veiti sem bestan undirbúning undir fjölbreytt nám á háskólastigi.
FJÁRHAGSLEGUR
ÁVINNINGUR Ólafur
segir það auka ævi-
tekjurnar til muna að
komast tveimur árum
fyrr út í atvinnulífið.
MYND/STEFÁN
NEMENDUR Á ÖLLUM
ALDRI Skólinn er til
húsa í Faxafeni 10. Nem-
endur eru á öllum aldri
og eiga það sameigin-
legt að vilja ljúka stúd-
entsprófi á skömmum
tíma.
Niðjasamtök Gunnlaugsstaðaættarinnar
Ættarmót og aðalfundur verður á Þórisstöðum í Svínadal,
helgina 4. til 6. júlí 2014.
www.thorisstadir.is sjá nánar á facebook síðu samtakanna
Aðalfundur verður laugardaginn 5. júlí kl.: 14.00
Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum.
Munið einnig skógarferð í Lundinn 21. júní n.k.
Stjórnin.
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI
Í ÖLLUM
HERBERGJUM