Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 34
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22
„Ég stofnaði þessa hátíð 2012 eftir að hafa
hugsað um hana í mörg ár,“ segir Víking-
ur Heiðar Ólafsson píanóleikari um tónlist-
arhátíðina Reykjavík Midsummer Music
sem hefst á föstudaginn. „Þegar Harpa
var risin vissi ég að hún væri akkúrat rétti
staðurinn til að laða kollega mína erlendis
til landsins, enda vilja allir koma og spila á
þessari hátíð sem ég leyfi mér að álykta að
sé bæði vegna listræns metnaðar viðkom-
andi tónlistarmanns og löngunar til að koma
til Íslands og spila í Hörpu. Það hefur reynst
alveg ótrúlega auðvelt fyrir mig að fá frá-
bæra listamenn til landsins til þess að gera
eitthvað skemmtilegt.“
Þema hátíðarinnar í ár er Minimal-Maxi-
mal og eru hugleiðingar um hið stóra og hið
smáa rauði þráðurinn í gegnum fjölbreytta
dagskrá alls níu tónleika, þar sem saman
kemur tón- og hljóðlist úr ýmsum áttum, frá
strengjakvartettum til plötusnúða. „Mér er
umhugað um að engin árgerð af hátíðinni
líkist öðrum árgerðum hennar,“ segir Vík-
ingur Heiðar. „Mér finnst gaman að reyna
að finna óvæntar tengingar og búa til boga
yfir þessa níu tónleika. Í ár hverfist allt um
þetta stóra og smáa og vangaveltur um það
hvað er stórt og hvað smátt.“
Á opnunartónleikunum á föstudaginn
leikur Víkingur Goldberg-tilbrigði Bachs
og auk þess sem japanska fiðlustjarnan
Sayaka Shoji, sem leikur á Stradivariusfiðlu
frá 1729, leikur Chaconnu Bachs. Síðan reka
hverjir tónleikarnir aðra, þrennir á laugar-
dag, þrennir á sunnudag og tvennir á mánu-
dag, en Víkingur segir hápunktinn sennilega
vera tónleika Mahler Chamber Orchestra
og finnska fiðluleikarans Pekka Kuusisto í
Eldborg á sunnudaginn. „Það eru rosaspenn-
andi tónleikar, finnst mér,“ segir hann. „Þau
eru með prógramm sem er mjög minimal/
maximal þar sem Bach er teflt saman við
bandarísku minimalistana John Adams og
Steve Reich.“
Menningarhúsið Skúrinn tekur þátt í
hátíðinni með sínum hætti, en honum hefur
þegar verið komið fyrir við Hörpu. „Skúrinn
er náttúrulega hjarta hátíðarinnar,“ segir
Víkingur Heiðar. „Um leið og ég var búinn
að ákveða þetta minimal/maximal þema
þá kom ekkert annað til greina en að Skúr-
inn yrði æfingaaðstaða hátíðarinnar. Hann
tekur sér mjög maximal stöðu við hliðina á
Hörpu og varpar annars vegar ljósi á líf tón-
listarmannsins; að vera 99 prósent af tím-
anum að æfa sig við spastískar aðstæður, og
eitt prósent að spila í Hörpu eða einhverjum
fínum sölum. Hins vegar er Skúrinn opinn
æfingasalur með tveimur píanóum í mis-
góðu ástandi þar sem ég æfi mitt prógramm
í eftirmiðdaginn – og fæ vonandi fleiri með
mér þegar hátíðin hefst – svo fólk getur
komið og fylgst með hátíðinni verða til. Mér
finnst klassísk tónlist vera dálítið bundin af
því að einblína á hina endanlegu útkomu,
þessar níutíu mínútur á sviðinu á tónleik-
um, og mér finnst skemmtilegt að veita fólki
pínu innsýn í ferlið. Það er svo margt í því
sem hefur ekki mikið verið miðlað.“
Meðal erlendra listamanna hátíðarinnar í
ár er ísraelski víóluleikarinn Amihai Grosz,
sem er leiðari í Berlínar-Fílharmóníunni og
meðal innlendra listamanna má nefna Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur, Davíð Þór Jónsson, Pétur Grétars-
son, Ghostigital og Finnboga Pétursson.
Hátíðinni lýkur svo með úrvinnslu þýska
plötusnúðsins DJ Georg Konrad á efni
hennar, þar sem hann nýtur liðsinnis ein-
leikara úr Mahler Chamber Orchestra.
Allar upplýsingar um dagskrá hátíðar-
innar og listamennina sem fram koma er að
finna á heimasíðunni reykjavikmidsumm-
ermusic.com.
fridrikab@frettabladid.is
Vangaveltur um hið smáa og stóra
Tónlistarhátíðin Reykjavík Midsummer Music hefst í þriðja sinn á föstudaginn og stendur fram á mánudag. Hátíðin er í samstarfi Hörpu og Víkings
Heiðars Ólafssonar píanóleikara sem segir alveg einstaklega auðvelt að lokka hingað frábæra erlenda listamenn eft ir að Harpa varð að veruleika.
REYKJAVÍK MIDSUMMER MUSIC „Í ár hverfist allt um þetta stóra og smáa og vangaveltur um það hvað
er stórt og hvað smátt,“ segir Víkingur Heiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þegar Harpa var risin vissi
ég að hún væri akkúrat rétti
staðurinn til að laða kollega
mína erlendis til landsins.
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is
Mercedes-Benz A 220 CDI
Árg. 2013, ekinn 8 þús. km,
dísil, 170 hö., sjálfskiptur, Urban
pakki (sportsæti, 17“ álfelgur,
tvöfalt púst), bakkmyndavél,
bluetooth, hiti í sætum ofl.
Verð: 5.290.000 kr.
MERCEDES-BENZ CLS 350
BLUETEC 4MATIC
Árgerð 2013, ekinn 12. þús. km, dísil,
252 hö., sjálfskiptur, leðuráklæði,
sóllúga, minni í sætum, ljósapakki
Xenon, 19“ álfelgur, bluetooth ofl.
Verð: 13.890.000 kr.
MERCEDES-BENZ GLK 220
CDI 4MATIC
Árg. 2012, ekinn 25. þúsund km,
dísil, 170 hö., sjálfsk., inniljósapakki,
hiti í framsætum, skyggðar rúður,
krómpakki utan, bluetooth ofl.
Verð: 7.390.000 kr.
Mercedes-Benz 420 SE
Árg. 1988, ekinn 197 þús. km,
bensín, 225 hö., sjálfskiptur.
Mikið endurnýjaður. Eins og nýr
innan sem utan. Eintak sem vert
er að skoða!
Verð: 1.990.000 kr.
Veldu notaðan
Mercedes-Benz
Mercedes-Benz E 250
CDI 4MATIC
Árg. 2013, ekinn 11 þús. km,
dísil, 205 hö., sjálfskiptur,
Led og Xenon ljós, minni
og rafmagn í sætum,
panorama sólþak, Elegance
útfærsla, leður, bluetooth ofl.
Verð: 11.490.000 kr.
Mercedes-Benz ML 350
BLUETEC 4MATIC
Árg. 2012, ekinn 12 þús. km,
dísil, 259 hö., sjálfskiptur,
Intelligent light system (framljós
aðlagast bílum fyrir framan),
íslandskort, dráttarbeisli, lykla-
laust aðgengi, Xenon og led ljós,
minni og rafmagn í sætum ofl.
Verð: 13.490.000 kr.
Opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
MENNING