Fréttablaðið - 11.06.2014, Page 38
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
OF
KIDMAN
NICOLE
FRANK LANGELLA
DAHANOLIVIERMYND EFTIR
ROTH
TIM
GAUMONT KYNNIR
35.000
GESTIR!
“ÉG HLÓ SVO MIKIÐ AÐ
ÉG SKAMMAÐIST MÍN!”
- GUARDIAN
22 JUMP STREET
22 JUMP STREET LÚXUS
FAULT IN OUR STARS
MILLION WAYS TO DIE . . .
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN 3D
X-MEN 2D
VONARSTRÆTI
LÁSI LÖGGUBÍLL
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5 - 8 - 10.40
KL.10.45
KL. 3.20
KL. 8 - 10.45
KL. 5
KL. 5.20 - 8
KL. 3.20
22 JUMP STREET
GRACE OF MONACO
FAULT IN OUR STARS
VONARSTRÆTI
THE OTHER WOMAN
Miðasala á:
Kauptu miða á X-Men með
17.000 GESTIR!
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40 - 8
KL. 6 - 9
KL. 5.20 - 8 - 10.40
KL. 5.30 – 10.30
-C.P., USA TODAY
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EMPIRE
VARIETY
TOTAL FILM
BIOGAGNRYNI VALDIMARS
HOLLYWOOD REPORTER NEW YORK DAILY NEWS
ANGELINA JOLIE OG ELLE FANNING
EKKI TRÚA ÆVINTÝRINUVINSÆLASTA MYNDIN
Í HEIMINUM Í DAG
Krakkarnir hanga í tölvunni, við fáum þá frið á meðan. Þetta hef ég oft hugs-
að. Núna síðast í langri bílferð norður yfir
heiðar. Tvö lítil skott sátu steinþegjandi
í aftursætinu með heyrnartól á eyrunum
og dunduðu sér í spjaldtölvu. Á meðan
söfnuðust kílómetrarnir að baki. Mig
hafði óað fyrir því að hafa ofan af fyrir
þeim klukkutímum saman í bílnum.
Með þessu keypti ég mér stundar-
frið. Tölvuhangs barna er þó ekki
alltaf vel séð. Hver kannast ekki við
umræðuna um áhrif ofbeldisleikja á
unga og ómótaða huga?
ÉG á erfitt með að leggja mat á þau
áhrif. Þegar ég var krakki snerust
tölvuleikir í mesta lagi um að
frelsa górillu úr búri og passa
sig á krókódílum á leiðinni,
eða hreyfa litla stiku upp og
niður og passa að litli depill-
inn hitti ekki í mark. Dídd,
dídd, dídd, heyrðist á meðan.
Leikjaveröld nútímans er mér
einfaldlega framandi. Er þetta
nokkuð „ljótur“ leikur? spyr
ég stundum þegar krakkarnir
virðast í miklum ham við skjáinn. Með
„ljótum“ leik á ég yfirleitt við hvort verið
sé að drepa einhvern.
DRÁPSLEIKIR eru nefnilega sívinsælir
og þó ég hafi ekki „drepið“ marga í tölvu-
heimum þegar ég var krakki, hef ég þó
nokkur „mannslíf“ á samviskunni eftir
æsilega byssubófaleiki í denn. Ekki það
að ég hafi alltaf verið að „drepa“ fólk. Ég
lék mér líka með Barbí og dúkkulísur sem
töldust til saklausari leikja en byssó. Eða
hvað? Er dúkkulísuleikurinn, pappírs-
stúlka á nærfötum sem hægt var að máta
á mismunandi föt, forveri vafasamra
leikja sem vinsælir eru í dag?
Á Vísi las ég frétt í gær um tölvuleiki
fyrir ung börn. Ekki nóg með að leikirn-
ir séu illilega kynjaskiptir, það er punt
og pjatt fyrir stúlkur, þrautir og hugsun
fyrir drengi, heldur hefur í alvörunni
verið búinn til fegrunaraðgerðaleikur
sem snýst um fitusog fyrir fjögurra ára
stúlkur!
ÉG held að ég þurfi að endurskoða alvar-
lega hvað ég kalla „ljótan“ leik í tölvunni.
Fjögurra ára í fi tusog
„Það má eiginleg segja að við séum
orðin fullþroska hljómsveit í dag,“
segir söngkonan Steinunn Jónsdótt-
ir, einn af stofnmeðlimum hljóm-
sveitarinnar Amaba Dama. Um er
að ræða tíu manna reggíhljómsveit
sem var stofnuð árið 2011. „Við
Gnúsi erum einu upprunalegu með-
limir sveitarinnar en hún varð til
árið 2011 og voru okkar fyrstu tón-
leikar á Iceland Airwaves-hátíðinni
það ár,“ bætir Steinunn við. Upp-
haflega voru einungis þrír meðlim-
ir í sveitinni en þeim hefur fjölgað
hægt og þétt. „Við erum tíu manna
band í dag og þar af þrír söngvarar
og höfum verið í þessari mynd í um
það bil eitt ár.“
Er ekki erfitt að ná tíu manns
saman á æfingar? „Það hefur
gengið furðu vel, við náum vel
saman og erum með sömu heims-
sýn. Við erum einnig með fasta
æfingatíma og þess vegna geng-
ur þetta svona ljómandi vel,“ segir
Steinunn.
Sveitina skipa auk Steinunnar
þau Magnús Jónsson (Gnúsi Yones)
og Salka Sól Eyfeld en þau syngja
einnig, Ellert B. Schram leikur á
hljómborð, Ingólfur Arason leik-
ur á gítar, Hannes Arason leikur
á trompet, Elías Bjartur Einars-
son lemur húðir, Páll Sólmundur
Eydal plokkar bassann, Hjálmar
Óli Hjálmarsson leikur á slagverk
og Björgvin Ragnar Hjálmarsson
spilar á saxófón.
Gnúsi semur lögin en Steinunn
aðstoðar hann svo við textasmíð-
ar. „Við erum að taka upp plötu, og
stefnum á að gefa hana út í haust.
Við erum komin með efni í heila
plötu.“
Hljómsveitin gaf nýverið út
lagið Hossa hossa og er það fáan-
legt á tónlist.is. „Við erum ótrúlega
ánægð og þakklát með viðtökurn-
ar á nýja laginu. Við erum byrjuð
að huga að myndabandagerð þess
dagana og því myndband við lagið
væntanlegt.“
Amaba Dama kemur fram á tón-
leikum á Lofti Hosteli á fimmtu-
dagskvöld og lofar Steinunn mik-
illi stemningu.
gunnarleo@frettabladid.is
Loksins fullþroska
Reggíhljómsveitin Amaba Dama var stofnuð árið 2011 en liðsskipan sveitarinn-
ar er talsvert breytt frá því þá. Nú eru meðlimir sveitarinnar orðnir tíu talsins.
NÁ VEL SAMAN Hljómsveitina Amaba Dama skipa tíu hressir einstaklingar en sveitin gaf nýverið út lagið Hossa hossa.
MYND/MARGRÈT GUÐMUNDSDOTTIR
Við erum að taka upp
plötu og stefnum á að gefa
hana út í haust. Við erum
komin með efni í heila
plötu.
Steinunn Jónsdóttir
22 JUMP STREET 5:40, 8, 10:20
MILLION WAYS TO DIE IN THE WEST 5:20, 8, 10:30
VONARSTRÆTI 5:20, 8, 10:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
Miðasala og nánari upplýsingar