Fréttablaðið - 22.07.2014, Page 2
22. júlí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Edda, er þetta dæmigert fyrir
fyrrverandi landsliðskonur?
„Það myndi nú einhver segja að
þetta væri vítavert.“
Edda Garðarsdóttir, fyrrverandi landsliðs-
kona í knattspyrnu, var í hlutverki dómara í
leik Fjölnis og Hamranna í 1. deild kvenna í
fyrradag.
NÝSKÖPUN Karl Gunnarsson líf-
fræðingur og japanski meistara-
kokkurinn Kuniko Ibayashi Chang-
chien héldu nýlega námskeið að Nýp
á Skarðsströnd en það hófst með því
að farið var í fjöruna við Saurbæ til
að ná í hráefnið.
Þetta kann að þykja nýstárlegt
en Karl segir að í raun sé um forn-
íslenska matarhefð að ræða.
„Við eigum elstu heimildir um
nýtingu sjávarþörunga til matar á
Vesturlöndum,“ segir Karl. „Þær
koma til dæmis úr Íslendingasög-
um, Sturlungu og svo er kveðið á
um það í Grágás hver á réttinn til
að tína þetta úr fjöru.“
Það er því ljóst að sá er greip þara
í leyfisleysi gat átt hegningu yfir
höfði sér. Söl skipuðu meira að segja
nokkurn sess í Egils sögu en skáldið
fastaði í sorg sinni við fráfall sona
sinna. Þorgerður dóttir hans fékk
hann hins vegar til þess að borða söl
sem varð til þess að hann tók sér tak
og orti þá Sonatorrek, endurnærður.
„Það er gaman að geta þess að
Egill þekkti ekki til sölvanna en það
gerði Þorgerður hins vegar,“ segir
Karl sem greinilega hefur álíka
gaman af fornsögum og fjörugróðri.
„Enda var hún tengdadóttir Mel-
korku, sem var dóttir Mýrkjartans
Írlandskonungs, en það er einmitt
þaðan sem við Íslendingar lærðum
þessa matargerð. Hún tíðkaðist hins
vegar ekki í Noregi á þeim tíma.“
Vitað er að á 17. og 18. öld fór
fram mikil sölvatekja á Eyrarbakka
og Stokkseyri. Fjölmenntu bændur
þangað og keyptu sér tunnu fyrir
veturinn og borðuðu svo upp úr
henni söl rétt eins og við borðum
kartöfluflögur og poppkorn nú til
dags.
Námskeið Karls og Kuniko að
Nýp um síðustu helgi var svo vel
sótt að halda varð annað á þriðju-
dag en einnig var uppselt á það.
Karl hefur um langt skeið kynnt
þessa hefð og möguleika á frekari
nýtingu þörunga.
Þóra Sigurðardóttir myndlistar-
kona hefur í þrjú undanfarin ár
staðið fyrir námskeiðum sem þess-
um sem sífellt verða vinsælli. Þrjú
fyrirtæki stunda síðan sölvavinnslu
hér á landi og er til dæmis eitt
þeirra, Iceland Seaweed, með sölu
á netinu. Það er því aldrei að vita
nema snakk fornmannanna verði
móðins á nýjan leik.
jse@frettabladid.is
Íslendingar fræddir
um fornt fjörusnakk
Íslendingar hafa borðað fjörugróður frá ómunatíð. Nú fara íslenskur líffræðingur
og japanskur sérfræðingur um og kenna Íslendingum að höndla þetta góss sem
fornmennirnir borðuðu og gaf Agli Skallagrímssyni fjör til að yrkja Sonatorrek.
GÓSS FUNDIÐ Í FJÖRU Hér er Karl í fjörugróðrinum en slíku góssi getum við eflaust
þakkað að Egill Skallagrímsson tók á sig rögg og orti Sonatorrek. mynd/Anna Hallin
Við eigum elstu
heimildir um nýtingu
sjávarþörunga til matar
á Vesturlöndum.
Karl Gunnarsson líffræðingur.
MENNTAMÁL Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri (LbhÍ) hefur
borist staðfesting frá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu um að
skila eigi inn uppfærðri rekstrar-
áætlun skólans sem geri ráð fyrir
tíu milljóna króna
rekstrarafgangi á
þessu ári.
Í síðustu fund-
argerð háskóla-
ráðs LbhÍ segir
að unnið sé að því
að koma henni
saman og skila
inn svo fljótt sem
auðið verði.
Drögum að rekstraráætlun
til þriggja ára var skilað inn um
mánaðamótin mars/apríl á þessu
ári. Ágúst Sigurðsson, fráfarandi
rektor skólans, sagði þá að í henni
væru dregin saman seglin í rekstri
skólans um sem næmi 70 milljón-
um króna á ári. Að óbreyttu þyrfti
að skera niður um 15 stöðugildi í
skólanum.
Ljóst var að niðurskurðar og
endurgreiðslu á uppsöfnuðum
halla yrði krafist af hálfu ríkis-
ins þegar fyrr á árinu kom í ljós
að aðstandendur skólans höfnuðu
sameiningu við Háskóla Íslands
og fyrirhugaðri uppbyggingu í
tengslum við þann samruna.
Í fundargerð háskólaráðsins
kemur fram að Ágúst hafi ekki
sóst eftir endurráðningu, en skip-
unartími hans rennur út í lok þessa
mánaðar. Dr. Björn Þorsteinsson,
aðstoðarrektor kennslumála, hefur
verið skipaður rektor tímabundið á
meðan staðan er auglýst. - óká
Menntamálaráðuneytið kallar eftir uppfærðri rekstraráætlun LbhÍ:
Á að skila 10 milljóna afgangi
FERÐAÞJÓNUSTA Gjaldheimta á
vegum Landeigenda Reykjahlíð-
ar ehf. var stöðvuð um hádegis-
bilið í gær. Þá hafði Svavar Páls-
son, sýslumaður á Húsavík, fallist á
þær fjörutíu milljónir sem gerðar-
beiðendur lögbanns á gjaldheimtu
í Reykjahlíð lögðu fram sem trygg-
ingu. Gerðarbeiðendur, sem einnig
eru landeigendur í Reykjahlíð, höfðu
frest til morgundags til að leggja
fram trygginguna.
Í yfirlýsingu stjórnar Landeig-
enda Reykjahlíðar ehf. segir að
niðurstaðan sé bæði íslenskri nátt-
úru og ferðaþjónustu landsmanna í
óhag og því óskynsamleg.
Í framhaldi af úrskurði sýslu-
manns mælist stjórn félagsins til
þess að ferðaþjónustufyrirtækin
gangi í lið með þeim og fari ekki
með hópa ferðamanna inn á land-
svæði til að draga úr átroðningi.
Umferð ferðamanna um svæðið sé
mikil með tilheyrandi náttúruspjöll-
um.
Ólafur H. Jónsson, talsmaður
gjaldheimtu einkahlutafélagsins,
telur félagið nú þurfa að kanna
stöðu sína gagnvart lögum. „Nú
þurfa dómstólar að skera úr um það
hvað menn eiga og mega gera í sínu
landi. Við munum fara með þetta
mál lengra og kanna stöðuna. Þetta
endar ekki hér,“ sagði Ólafur. - sa
Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ósátt við úrskurð sýslumanns á Húsavík um lögbann á gjaldheimtu:
Landeigendur una ekki lögbannsúrskurði
ÓLAFUR H. JÓNSSON
Við munum fara
með þetta mál lengra
og kanna stöðuna.
Þetta endar ekki hér.
LBHÍ Meiri-
hluti aka-
demískra
starfsmanna
hefur verið
hlynntur sam-
einingu LbhÍ
og HÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/
HÖRÐUR
ÁGÚST
SIGURÐSSON
LÍBÍA, AFP Sprengjuleifar liggja á flugbraut alþjóðaflugvallarins í Trí-
pólí, höfuðborgar Líbíu, eftir að herskáir íslamistar réðust harkalega
til atlögu þar í gær. Flugvöllurinn hefur verið lokaður í rúma níu daga,
og allt flug til og frá Trípóli liggur niðri. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar
hafa látið þau orð falla að flugvöllurinn gæti verið ónothæfur mánuð-
um saman, þar sem átökin hafa gjöreyðilagt aðalbyggingu flugvallar-
ins, flugbrautir og fleiri tugi flugvéla. Allt að 120 manns hafa særst í
átökunum. - kóh
Um 120 manns hafa særst og öll flugumferð er í lamasessi:
Stríðsátök loka flugvelli í Líbíu
FLUGUMFERÐ STÖÐVUÐ Átök hafa stórskemmt alþjóðlega flugvöllinn í Trípólí,
höfuðborg Líbíu. Byggingar og flugbrautir eru mjög illa farnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SKAÐABÓTAMÁL Alls munu 140
íslenskar konur fara í mál vegna
PIP-brjóstapúðanna. Talið er
að um fjögur hundruð íslensk-
ar konur hafi fengið gallaðar
brjóstafyllingar hér á landi.
Olivier Aumaitre, franski lög-
fræðingurinn sem sér um málið
fyrir konurnar, segir enn tæki-
færi fyrir fleiri konur að taka
þátt í lögsókninni.
Hver og ein kona sem slæst í
hópinn greiðir 25 þúsund krónur
fyrir málsóknina.
Olivier segir konurnar geta átt
von á tveimur milljónum króna í
miskabætur vinnist málið. - lb
Íslenskar konur krefjast bóta:
140 lögsækja
vegna PIP-púða
HJÁLPARSTARF Íslenski Rauði
krossinn tilkynnti í gær um tíu
milljóna króna framlag til hjálp-
arstarfs palestínska Rauða hálf-
mánans á Gasa.
Einnig hefur verið opnaður
söfnunarsími fyrir þá sem vilja
styðja við bakið á hjálparstarfi
Rauða hálfmánans.
Sjúkraliðar Rauða hálfmán-
ans hafa unnið hættulegt starf
síðustu daga við að hjúkra
særðum, flytja þá á spítala og
sjá um dreifingu hjálpargagna.
Sjúkraflutningamenn hafa jafn-
vel orðið fyrir árásum sjálfir.
- kóh
Styrkja Rauða hálfmánann:
Rauði krossinn
styrkir Gasa
SPURNING DAGSINS
Ora grillsósur fást í næstu verslun!
Lúxus
Bernaisesósa