Fréttablaðið - 22.07.2014, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 22. júlí 2014 | SKOÐUN | 15
Það er ekki ofsögum sagt að
sumum þykir þeir vera meðhöndl-
aðir á annan hátt en þeir hefðu
kosið eða átt von á og er slíkt baga-
legt. Margir kynnu að segja að þeir
hefðu fengið slæma meðhöndlun
eða jafnvel skítameðhöndlun eins
og fyrirsögnin gefur til kynna. Í
flestum slíkum tilvikum fyndist
okkur það ekki gott og líklega ekki
til eftirbreytni. Þarna er vissu-
lega verið að leika sér að orðum og
er ég í þessari grein á engan hátt
að vísa til þess að sjúklingar séu
illa meðhöndlaðir, þvert á móti að
hvetja til þess að sumir væru bein-
línis meðhöndlaðir á þennan hátt í
bókstaflegri merkingu, með saur.
Það er merkilegt hvað okkur
þykir orðið skítur, kúkur, saur eða
önnur orð um sama hlutinn hafa
neikvæða merkingu, í eðli sínu er
um úrgang að ræða og því fylgir
umræðunni ákveðin feimni. Skíta-
lykt er heldur ekki sérlega góð og
viljum við fyrir alla muni forð-
ast hana og almennt er ekki mikill
spenningur fyrir meðhöndlun eða
umræðu um saur, nema þá í gamni
eða neikvæðum tón eins og að vera
skíthæll svo dæmi sé tekið. Vafa-
laust væri hægt að fylla margar
blaðsíður um þetta umræðuefni,
en ég vil einbeita mér að hinum
jákvæðu hliðum og fjalla um þær í
samhengi við sjúkdóma hér á eftir.
Við vitum í dag að meltingar-
vegurinn gegnir afar mikilvægu
hlutverki, fyrst og fremst í því efni
að melta og frásoga næringarefni,
vernda okkur gegn sýkingum og
viðhalda styrk okkar með því að
hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerf-
ið. Undanfarin ár höfum við séð
að við andlega vanlíðan og ýmsa
sjúkdóma spilar meltingarvegur-
inn drjúgan þátt þó erfitt sé að átta
sig á orsökum og afleiðingum. Sem
dæmi þekkja flestir að andlegt
ójafnvægi og kvíði getur valdið
meltingartruflunum, niðurgangi
eða jafnvel hægðatregðu. Flestir
hafa talið að slík einkenni væru
afleiðing, en hvað ef þar væri að
finna orsök? Þá benda rannsóknir
til að meltingarflóran sem hver
einstaklingur ber með sér sé mikil-
vægur hluti af líðan viðkomandi,
hvort sem er andlega eða líkam-
lega. Við erum á byrjunarstigi að
skilja þessa hluti þó okkur hafi
orðið nokkuð ágengt á undanförn-
um misserum.
Röskun á starfseminni
Það er of flókið mál að útskýra flóru
í meltingarvegi í þessari grein, en
til einföldunar skulum við ímynda
okkur að hún sé samfélag sem vinn-
ur sameiginlega að einu markmiði,
að viðhalda sér og starfssemi sinni.
Með því skilar hún heilbrigðum ein-
staklingi og tryggir frásog næring-
arefna og útskilnað úrgangsefna.
Þannig er auðvelt að sjá fyrir sér að
ef röskun verður á þessari starfs-
semi geti það leitt til sjúkdóma,
sérstaklega ef hún er langvarandi
eða tíð. Fyrir því geta verið margar
ástæður, þær algengustu eru notk-
un sýkla- og bólgueyðandi lyfja, sýk-
ingar, áfengisneysla, koffein, fæðu-
val og ýmislegt fleira.
Sjúkdómar í meltingarvegi eru
margir og má ljóst vera að flestir
þeirra tengjast á einn eða annan
hátt því hvernig flóra viðkomandi
einstaklings er, hið merkilega er
þó að það virðist líka hafa áhrif
á aðra sjúkdóma svo sem eins og
liðagigt, sykursýki af tegund 1 og
2, offitu og metabólískt syndrome,
hjarta- og æðasjúkdóma, Parkin-
son og ýmsan vanda sem tengja
má við ónæmissjúkdóma og bólgu.
Líklega liggur skýringin í þessu
orði „bólga“ en iðulega er hún eða
það ástand undanfari sjúkdóma að
því er virðist og við erum alltaf að
átta okkur betur og betur á því í
heimi vísindanna.
Þannig að til að taka það fram
þá tel ég að skítameðhöndlun geti
verið af tvennum toga, hér er ég
að vísa í hina eiginlegu meðferð
með hægðaflutningi sem er byrjað
að framkvæma víða í lækninga-
skyni. Þar fær sá veiki hægðaflóru
úr hraustum einstaklingi í þeim
tilgangi að lækna vanda viðkom-
andi. Sannast sagna hefur náðst
ótrúlegur árangur í meðhöndlun
sjúkdóma með þessum hætti, mest
hefur það verið skoðað í tengslum
við ákveðna sýkingu í meltingar-
vegi sem kallast clostridium diff-
icile, en dæmi eru um að sjúkling-
ar sem hafi verið rúmliggjandi
með niðurgang vikum saman hafi
lagast á nokkrum dögum. Verið er
að skoða þessa tegund meðhöndl-
unar við mjög mörgum öðrum
sjúkdómum í dag samanber hér
að ofan og bíðum við spennt eftir
niðurstöðum þar að lútandi. Mögu-
lega verður skítameðhöndlun bara
standard treatment í framtíðinni,
hver veit?
Skítameðhöndlun?
Íslensk stjórnvöld skipuðu
nýverið nefndir og hópa til
að bæta „snemmgreiningu
á EES-löggjöf“ svo ráð-
herrar og embættismenn
geti beðið ESB, óform-
lega og vinsamlegast, að
þróa ekki löggjöf sem gæti
komið sér illa fyrir Ísland.
Þetta er hin „eflda hags-
munagæsla á vettvangi
EES“ sem íslensk stjórn-
völd boða í dag. Stjórnvöld
virðast ætla sér það sem
hin EES-ríkin hafa viðurkennt að
virki ekki. Meira að segja Norð-
menn, með alla sína fjárhagslegu
getu og mannafla, segja að til-
raunir til efldrar hagsmunagæslu
í Brussel hafi ekki gengið sem
skyldi. Við neyðumst því til að
sætta okkur við það að á meðan við
erum EES-ríki þá höfum við ekki
sambærilegt áhrifavald á evrópsk-
íslenska löggjöf og aðildarríki ESB
og stöndum þeim þar af leiðandi
ekki jafnfætis.
„Efld hagsmunagæsla“– orðin tóm?
Eins og sakir standa er Ísland
ófært um að taka þátt í Evrópu-
samstarfi á jafningjagrundvelli
við aðildarríki Evrópusambands-
ins. Þetta er óumflýjanleg stað-
reynd og afleiðing aukaaðildar
Íslands að ESB. Allar ákvarðan-
ir um EES-löggjöf eru nefnilega
teknar af Evrópusambandinu en
Íslendingar hafa hvorki tillögu-
né atkvæðisrétt þar sem mikil-
vægustu ákvarðanirnar um þessa
evrópsk-íslensku löggjöf eru tekn-
ar. Sem EES-ríki hefur Ísland þar
af leiðandi ekki jafna aðkomu á
við aðildarríki Evrópu-
sambandsins að mótun
löggjafar sem við erum
skuldbundin til að fara eftir. Ísland
framselur því mikil völd yfir inn-
anríkismálum landsins til ESB án
þess þó að fá ákvarðanatökuvald
í staðinn, líkt og nágrannaþjóðir
okkar í ESB hafa fengið.
Evrópustefnan
Í nýrri Evrópustefnu ríkisstjórn-
arinnar segir að Ísland eigi að
vera sýnilegt í Evrópusamstarfi
og taka þátt í því á jafningja-
grundvelli. Þetta er metnaðar-
fullt markmið og virðingarvert
en aðferðirnar að settu marki eru
ekki nægilega vel ígrundaðar.
Á meðan Ísland tekur ekki þátt í
ákvarðanatöku á vettvangi ESB,
þá stöndum við því miður skör
lægra en þjóðir Evrópusambands-
ins. Spurningin er hvort sé betra
fyrir ríki eins og Ísland: Að halda
áfram að framselja stóran hluta
fullveldisins og fá ekkert ákvarð-
anatökuvald í staðinn, eða að taka
sér ákvarðanatökuvald til jafns við
nágrannaríki okkar í Evrópusam-
bandinu og lágmarka þannig það
fullveldisframsal sem nú þegar er
orðið.
Fullveldisframsal
án fyrirsvarsÞar fær sá veiki
hægða flóru úr
hraustum einstaklingi…
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir ➜ Allar ákvarðanir
um EES-löggjöf eru
nefnilega teknar af
Evrópusambandinu
en Íslendingar hafa
hvorki tillögu- né
atkvæðisrétt…
EVRÓPUMÁL
Jóna Sólveig
Elínardóttir
alþjóðastjórnmála-
fræðingur
KAFFIVÉLAR,
ELDHÚSÁHÖLD,
POTTAR OG PÖNNUR,
VÖFFLUJÁRN, BLANDARAR,
DISKAR OG GLÖS, HEILSUGRILL,
BORÐBÚNAÐUR, SAFAPRESSUR,
BÖKUNARVÖRUR, RYKSUGUR, SUMAR-
OG GRILLVÖRUR, BRAUÐRISTAR,
HRAÐSUÐUKÖNNUR, ELDFÖST MÓT,
HITAKÖNNUR OG BRÚSAR,
BAÐVOGIR OG MARGT
FLEIRA!
Líkaðu við okku
r
á Facebook:
www.facebook
.com/
byggtogbuid
SUMARÚTSALAN
ER HAFIN!
RISA
Nú má skoða útsöluvörurnar líka á byggtogbuid.is
20-90%
afsláttur!
HUNDRUÐIR
VARA!